01.11.1967
Sameinað þing: 8. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 538 í D-deild Alþingistíðinda. (3053)
193. mál, dreifing sjónvarps
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Ég vil gera það sama nú og ég hef gert í hvert skipti, sem þetta mál hefur borið á góma hér á hv. Alþ., en það er að leggja áherzlu á, að svo mikill kraftur verði lagður í tæknilegan undirbúning þessara mála, að aðalendurvarpsstöðvarnar geti komið upp samtímis í öllum landshlutum.
Mér skilst á því, sem hæstv. ráðh, segir, að það muni vera mögulegt, að þannig sé unnið, og læt ég í ljós ánægju mína yfir því, ef ég hef skilið það rétt. Ég skil það svo, að þetta sé allt haft undir í einu, t.d. Fjarðarheiði og Vaðlaheiði og aðrir staðir, sem þarna koma til greina og sé athugað tæknilega samtímis. Ég vil leggja mjög mikla áherzlu á að halda þessari stefnu áfram og þá þannig, að það geti farið saman að koma stöðvunum upp og þær geti samtímis tekið til starfa. Ég legg feikilega áherzlu á þetta.
Ég vil lýsa því yfir enn einu sinni, að ég er fylgjandi því, að það verði tekin lán eins og þarf til þessa, svo að ekki standi á fé. Mér skilst, að sjónvarpið sé sæmilega búið fé. Mér finnst það ekkert áhorfsmál að taka talsverð lán til að flýta þessum framkvæmdum, ef þarf. Og svo langar mig til þess að spyrja um eitt, sem mér finnst ekki alveg ljóst. Þegar búið verður að koma sjónvarpinu áleiðis í landshlutana og setja endurvarpsstöðvar á fjöllin í því skyni, hvernig á að koma því ofan í firðina og dalina? Jú, það á að gerast með aðstoð lítilla endurvarpsstöðva sem mér skildist á hv. þm. Benedikt Gröndal að mundu kosta í kringum 500.000 kr. hver. Það eru góðar fréttir, að þessar stöðvar kosta ekki meira því að það er eins og hálf meðalíbúð, og ætti því að vera hægt að dreifa sjónvarpinu til allra byggðarlaga, ef tæknilegir erfiðleikar koma ekki þar í veginn. En út af þessu vil ég spyrja hæstv. ráðh.: Hvað um þann tæknilega undirbúning, sem þarf að fara fram, til þess að litlu stöðvarnar geti komizt upp, þeim sé ákveðinn staður og menn átti sig á því, hvernig þær þurfi að vera? Er sá tæknilegi undirbúningur í gangi nú þegar, því að hann verður að fara fram jafnhliða hinum, sem snertir undirbúning stóru endurvarpsstöðvanna? Það er auðvitað stórfellt atriði, að þessi tækniundirbúningur geti farið fram einnig núna, til þess að litlu stöðvarnar gætu komið í beinu órofa framhaldi af þeim stærri svo ekki þyrfti að verða þarna hlé. Þetta er afar þýðingarmikið atriði.