01.11.1967
Sameinað þing: 8. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 539 í D-deild Alþingistíðinda. (3055)
193. mál, dreifing sjónvarps
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason) :
Herra forseti. Í tilefni af ræðu hv. 1. þm. Vestf. vil ég staðfesta að sá skilningur hans er réttur, að gert er ráð fyrir því, að fyrir árslok 1969 eða á árinu 1969 hafi allar aðalstöðvar dreifikerfisins um landið verið byggðar, þ.e.a.s. stöðin á Skálafelli, sem byggð verður á næsta ári, árinu 1968 bráðabirgðastöð á Vaðlaheiði, sem komin verður í notkun haustið 1968, og síðan endanleg stöð á Vaðlaheiði og stöðin á Fjarðarheiði á árinu 1969.
Þá spurði hv. þm. um, hvort jafnframt væri hægt að vinna að tæknilegum undirbúningi undirdreifikerfisins, ef ég mætti nota það orð. Það hefur þegar verið unnið mjög mikið verk á þessu sviði og mjög mikilvæg reynsla fengizt á Suðurlandsundirlendinu og á Miðvesturlandi varðandi notkun mismunandi stórra endurvarpsstöðva til dreifingar sjónvarpsmyndarinnar. En á því vil ég vekja alveg sérstaka athygli og leggja á það sérstaka áherzlu, að hér er ekki um að ræða neina eina tegund dreifikerfis eða neina eina tegund endurvarpsstöðva og auk þess ekki heldur hægt að búa sér til neitt ákveðið „módel“ varðandi dreifimöguleika sjónvarpsmyndar um landið, sem byggja megi á óyggjandi reynslu. Það, sem gert hefur verið á því svæði, sem sjónvarpið núna nær til, þ.e.a.s. öllu Suðurlandi og Miðvesturlandi, er að nota margar mismunandi tegundir og mismunandi stærðir af endurvarpsstöðvum til þess að kanna skilyrðin til dreifingar góðrar sjónvarpsmyndar. Sú reynsla sem þegar hefur fengizt í þessum efnum, er ómetanleg varðandi skilyrði til dreifingar sjónvarpskerfisins frá aðalstöðvunum norðanlands og austanlands, frá Vaðlaheiðarstöðinni og Fjarðarheiðarstöðinni, og sú reynsla mun að sjálfsögðu verða hagnýtt, þegar endanlegar undiráætlanir verða gerðar að byggingu þessara stöðva lokinni. En nákvæmar áætlanir um undirdreifikerfið, ef ég mætti nota svo ófullkomið orð, á Norðurlandi og Austurlandi er ekki hægt að gera, — nákvæmar áætlanir í einstökum atriðum er ekki hægt að gera fyrr en fullnaðarmælingum er lokið frá Vaðlaheiði og frá Fjarðarheiði, því að aðstæður á Norðurlandi og Austurlandi eru að mörgu leyti svo ólíkar aðstæðum á Suðurlandi og Miðvesturlandi, jafnvel í Dölum, og þar sem um fjöll er að ræða, að því er ekki að fullu treystandi, að reynsla sú, sem fengizt hefur á Suðurlandi og Miðvesturlandi í þessum efnum, eigi algerlega við um Norðurland og Austurland. En það mun að sjálfsögðu verða kannað og að því unnið, eftir því sem unnt er að fá skorið úr allri tæknilegri óvissu í þessum efnum.
Hv 1. þm. Vestf. spurði, hvort ég teldi sjónvarpið ná til allra landshluta, þegar komið hefði verið upp aðalstöðvum dreifikerfisins, þ.e.a.s. Skálafellsstöðinni, Vaðlaheiðarstöðinni og Fjarðarheiðarstöðinni, eins og gert er ráð fyrir, að verði á árinu 1969. Það er óþarfi að viðhafa í þessu efni nokkurn orðaleik. Auðvitað er sjónvarpið þá komið í alla landsfjórðunga, ef nota ætti það orð, og þess vegna held ég einnig, að segja mætti, að það yrði komið með því móti í alla landshluta. En það skal ég með ánægju staðfesta að að sjálfsögðu verður ekki látið við það eitt sitja að koma upp þessum aðalstöðvum. Öllum, sem um þessi mál fjalla er ljóst, að þær leysa að vísu verulegan hluta vandans, en ekki allan. Það hefur alltaf verið gert ráð fyrir því, að strax í kjölfar aðalstöðvanna komi heilt kerfi af mismunandi stórum endurvarpsstöðvum í hverjum landshluta eða hverjum landsfjórðungi um sig, og það má fastlega gera ráð fyrir því, alveg eins og hér sunnanlands og miðvestanlands, að strax í kjölfar Vaðlaheiðarstöðvarinnar og Fjarðarheiðarstöðvarinnar komi kerfi af mismunandi stórum og mismunandi endurvarpsstöðvum í þessa landsfjórðunga eða í þessa landshluta. Hitt er svo annað mál, að ekki hefur enn verið gerð áætlun um það, að sjónvarpið nái til bókstaflega hvers heimilis í þessum landshlutum eða þessum landsfjórðungum. Í þessu efni mun verða fylgt þeirri sömu stefnu, sem fylgt hefur verið við dreifingu sjónvarpsins á Suðurlandi og Miðvesturlandi, að láta þéttbýlu svæðin ganga fyrir, byggja fyrst endurvarpsstöðvar, sem henta og hæfa þéttbýlustu svæðunum, og síðan fikra sig smám saman lengra og lengra niður í smærri stöðvar, sem ná til fámennari hópa fólks. Hygg ég, að þetta sé skynsamleg stefna í þessum efnum, og mér vitanlega er enginn ágreiningur um það meðal þeirra manna sem um þessi mál fjalla frá tæknilegu og fjárhagslegu sjónarmiði séð, að halda þannig á málum. En stefnan er að sjálfsögðu sú, að yfirleitt allir landsmenn geti átt kost á sjónvarpsþjónustu, þó að ég treysti mér ekki til að segja á þessari stundu, hvenær því endanlega marki getur orðið náð, enda held ég, að enginn geti ætlazt til þess, að svo nákvæmar áætlanir geti legið fyrir þegar á öðru ári starfrækslu íslenzks sjónvarps.