08.11.1967
Sameinað þing: 10. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í D-deild Alþingistíðinda. (3059)

194. mál, framkvæmd stefnuyfirlýsingar

Forsrh. (Bjarni Benediktsson) :

Herra forseti. Ákvörðun um, hvort Ísland skuli vera varið eða óvarið, er svo afdrifarík, að æskilegt er að geta stuðzt við öruggt, hlutlaust mat sérfræðinga í þeim efnum. Hins vegar hafa fáir eða engir Íslendingar lagt stund á slík fræði svo að verulegu nemi, þó að nokkrir hafi raunar gengið á liðsforingjaskóla og allmargir kynnzt ýmsum þáttum varnarmála við störf í utanrrn. á undanförnum árum. Á meðan öðrum er ekki til að dreifa, þykir eðlilegt, að einhverjum úr þessum hópi verði fengið það verkefni að kynna sér fræðilega sem flest atriði, er varða varnir landsins, bæði með því að rannsaka heimildir, sem um þær eru til innan Atlantshafsbandalagsins, og á öðrum vettvangi.