22.11.1967
Sameinað þing: 14. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í D-deild Alþingistíðinda. (3071)

55. mál, raforkuþörf Vestur-Skaftfellinga austan Mýrdalssands

Landbrh. (Ingólfur Jónsson) :

Herra forseti. Eins og hv. alþm. er kunnugt, var samþykkt þáltill., sem þm. Ragnar Jónsson og Guðlaugur Gíslason fluttu í lok þingsins 1966, um það að skora á ríkisstj. að láta fram fara athugun á því, hvernig raforkumál Vestur-Skaftfellinga eða Skaftfellinga fyrir austan Mýrdalssand yrðu heppilegast leyst. Eftir að þessi till. var samþ., skipaði ég n. sérfróðra manna til þess að láta bessa athugun fram fara. Í n. eiga sæti Jakob Gíslason formaður, Valgarð Thoroddsen rafmagnsveitustjóri og Eiríkur Briem, sem þá var rafmagnsveitustjóri. N. hefur unnið allýtarlega að þessu máli. Nefndarmenn hafa farið austur og ferðazt um héraðið, kynnt sér aðstöðu og fjarlægðir á milli bæja og þá möguleika sem hugsanlegir væru til að leysa þetta mál. Nál. hef ég hins vegar ekki fengið enn þá, en ég hef í höndunum bréf, undirskrifað af öllum nefndarmönnum sem skýrir þetta mál nokkuð, og vil ég, með leyfi hæstv, forseta, lesa þetta bréf upp:

„Með vísun til samtals yðar, hæstv. ráðh,. við orkumálastjóra nýverið varðandi nál. um rafvæðingu Vestur-Skaftafellssýslu austan Mýrdalssands, sbr. þál. Alþ. frá 5. maí 1966, viljum við hér með láta yður í té meginniðurstöður af athugun okkar á því máli, en sjálft nál. verður væntanlega tilbúið innan fárra daga.

Eftirtaldir þrír valkostir voru athugaðir:

1) Háspennulína frá Háafelli á Höfðabrekkuhálsi að Kirkjubæjarklaustri með dreifilínum upp sveitirnar og dísilrafstöð til vara á Klaustri.

2) Dísilrafstöð á Kirkjubæjarklaustri og dreifilínur.

3) Virkjun í Tungufljóti með dreifilínum. Við samanburð á stofnkostnaði þessara þriggja valkosta höfum við komizt að eftirfarandi niðurstöðum, og eru þá eingöngu teknir með í áætlunina þeir bæir, sem hafa minna en 2 km vegalengd að meðaltali, en þeir eru alls 74 talsins, auk annarra notenda.

Fyrstu tveir valkostirnir, þ.e. háspennulína frá Háafelli að Klaustri með dreifilínum og dísilrafstöð á Kirkjubæjarklaustri með dreifilínum, eru álíka dýrir í stofnkostnaði, eða um 20 millj. kr. í hvoru tilfelli.

Þriðji kosturinn, þ.e. virkjun í Tungufljóti með dreifilínum, er svo miklu dýrari en hinir kostirnir, að hann virðist ekkí koma til greina. Ef nægilegt fjármagn væri fyrir hendi, væri í sjálfu sér æskilegt að geta ráðizt strax í línubyggingu austur yfir Mýrdalssand frá Háafelli, en sú lína ein út af fyrir sig ásamt varastöð á Klaustri er áætlað, að kosti rúmlega 11 millj. kr. Með því hins vegar að byrja á að setja niður dísilrafstöð á Klaustri, sem þá yrði að vera nokkru betur úr garði gerð en ef um hreina varastöð væri að ræða og leggja frá henni dreifilínur til þéttbýlasta nágrennisins, þ.e. auk Klausturs um Landbrot og Síðu, væri hægt að rafvæða 51 býli og 11 aðra notendur fyrir sömu upphæð og háspennulínan ein á milli Háafells og Klausturs ásamt varastöð telst eiga að kosta, eða um 11 millj. kr. Þessi byrjunaráfangi er aðeins rúmlega 1 km línulengd á býli að meðaltali. Í framhaldi af þessum áfanga rafvæðingar sveitanna austan Mýrdalssands yrði veitan síðan tengd við háspennulínuna á Háafelli, og dísilrafstöðin Klaustri yrði þá rekin sem varastöð. Við samtengingu veitunnar áætlast, að 23 býli til viðbótar fengju rafmagn frá samveitunni, það eru bæirnir neðst í Skaftártungu og í Álftaveri.

Í þessu sambandi skal þess getið, að eftir að n. hóf starf sitt hefur verið lögð lína frá Háafelli að Höfðabrekkuhálsi, sem kostuð er af öðrum aðilum en Rafmagnsveitum ríkisins, og breytir það viðhorfinu til línu austur eftir Mýrdalssandi til hins betra. Þessi lína sem hefur verið lögð frá Háafelli, er um 10 km að lengd, og við það fá 4 bæir austan Víkur rafmagn. Hér er gert ráð fyrir, að 74 býli fengju fljótlega rafmagn frá dísilstöð á Klaustri, ef hún yrði byggð. Það eru bæir, sem eru með línulengd að meðaltali á milli bæja innan við 2 km, en þá eru það 43 býli, sem eru eftir. Þar eru 2.36 km á milli bæja.

Eins og hér er sagt, væri í fyrsta áfanga 51 býli og 11 aðrir notendur, sem gætu fengið rafmagn út frá dísilstöðinni, sem hafa ekki nema 1 km línulengd á milli notenda að meðaltall. Og þar sem það er viðurkennt, að ekki sé vit í því að treysta á línuna eina yfir Mýrdalssand og það verði að byggja varastöð, þegar til þess kemur að rafvæða sveitirnar fyrir austan sand, sýnist vera eðlilegt að byrja á því að setja dísilstöðina upp og rafvæða þéttbýlustu sveitirnar næst Klaustri út frá dísilstöðinni.“

Þetta er nú það, sem n. hefur fram að leggja í þessu máli, og er eiginlega mest af því þegar sagt, sem þeir hafa til þessara mála að leggja að svo stöddu, þ.e. að með því að setja upp dísilstöð á Klaustri mætti tiltölulega fljótt rafvæða 51 býli og 11 hús til viðbótar, þ.e. 62 heimili, og vegalengdin að þessum heimilum væri ekki nema 1 km að meðaltali. Síðan yrði prjónað við, eftir því sem ástandið leyfði, þannig að þegar línan væri lögð austur, kæmu fljótlega 23 býli til viðbótar, en 43 býli eru með 2.36 km vegalengd að meðaltali, og það yrði vitanlega meiri dráttur á því, að þau fengju rafmagn.