22.11.1967
Sameinað þing: 14. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 555 í D-deild Alþingistíðinda. (3072)
55. mál, raforkuþörf Vestur-Skaftfellinga austan Mýrdalssands
Fyrirspyrjandi (Björn Fr. Björnsson) :
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv, ráðh. svörin, þó að niðurstaða n. sé mjög andstæð því, sem ég og margir fleiri hugðum vera hina réttu leið, en það er að fara með línuna frá aðalveitukerfinu áfram þegar í stað. Verð ég þó að lýsa því yfir, að mér er ánægja að heyra það, að ganga á strax til þess verks að reisa fullkomna dísilstöð að Klaustri. Ef það mál gengur sæmilega greiðlega fyrir sig, komast þarna æðimörg býli í samband við traust rafmagn. Og þá er ekki hitt lakara, ef Skaftfellingar eiga von á því að fá höfuðlínu yfir sandinn og áfram, eftir því sem henta þykir. Að sjálfsögðu er dísilstöð að Klaustri mikið öryggi, þegar línan verður lögð frá Höfðabrekku og austur úr, vegna þess að Mýrdalssandur er að sjálfsögðu mjög viðsjárverður í sambandi við rafmagnsstaura og línulagnir. Það er vissulega mikið rétt.
Með lögum um Landsvirkjun sýndist vera sú stefnubreyting m.a., að hætta skyldi við smærri virkjanir en leggja kapp á stórvirkjanir. Og það var ekki sízt vegna þessarar stefnubreytingar í lögum um Landsvirkjun, sem ég hugði, að það yrði farið í aðalveitukerfið með þessa 5 hreppa í Skaftafellssýslu. Ég á þá ósk, að hæstv. raforkumálarh. leggi kapp á framkvæmdir í þessu efni, þannig að Vestur-Skaftfellingar geti hið allra fyrsta fengið fullkomið rafmagn.