06.12.1967
Sameinað þing: 18. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 557 í D-deild Alþingistíðinda. (3080)

34. mál, skólarannsóknir

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason) :

Herra forseti. Fsp. þessi er í tveim liðum. Annars vegar er um það spurt, að hverju skólarannsóknir menntmrn. hafi aðallega beinzt til þessa. Hins vegar er spurt, hvort ríkisstj. telji, að með núverandi starfskröftum við skólarannsóknir verði hægt að framkvæma fyrirhugaða endurskoðun á fræðslulöggjöfinni innan hæfilegs tíma.

Fyrri liður fsp. veitir mér kærkomið tilefni til þess að greina hinu háa Alþ. frá því, að hvaða verkefnum skólarannsóknir menntmrn. hafi unnið fram til þessa, eru að vinna og munu vinna nú á næstunni. Síðari liður fsp. á hins vegar sumpart rót sína að rekja til mjög algengs og útbreidds misskilnings á þeim viðfangsefnum, sem við er að etja í íslenzkum skólamálum nú í dag.

Ég mun fyrst fara nokkrum orðum um síðari lið fsp., en síðan láta í té umbeðnar upplýsingar um störf skólarannsóknanna.

Flestir þeir, sem um skólamál fjalla og um þau hugsa af alvöru, munu gera sér ljóst, að breyttir tímar kalla jafnan á breytingar í skólamálum. Á þetta ekki aðeins við hér á Íslandi, heldur hvarvetna í menningarlöndum.

Á undanförnum áratugum og árum hafa gerzt svo gagngerar breytingar á þjóðfélagsháttum öllum, að námsefni hefur orðið að taka miklum breytingum. Jafnframt hafa orðið framfarir í fræðsluháttum og nýjar aðferðir við kennslu og nám komið til skjalanna. Þjóðfélagið hefur gert nýjar og breyttar kröfur til þegna sinna og þó ekki sízt til skólaæskunnar. Borgararnir — og þá ekki sízt skólaæskan — hafa þurft á nýrri og breyttri þekkingu, nýju og breyttu viðhorfi að halda til þess annars vegar að geta komizt áfram í lífinu og hins vegar til þess að geta notið þess í vaxandi mæli. Allt hlýtur þetta að breyta viðhorfi skólanna í þjóðfélaginu, hlutverki þeirra og starfsaðferðum. Fáum stofnunum þjóðfélagsins er því jafnnauðsynlegt og einmitt skólunum að hafa augun opin fyrir þeim þjóðfélagsbreytingum, sem eru að eiga sér stað á hverjum tíma til þess að verða ekki hemill á breytingu í heilbrigða átt, heldur þvert á móti afl. sem ýtir undir slíka breytingu og flýtir henni. Hvort slík stöðubreyting á skólastarfi gerir nauðsynlegt að breyta í sífellu sjálfri skólalöggjöfinni, er auðvitað undir því komið, hvers eðlis skólalöggjöfin er. Sé hún þannig, að hún setji nákvæm fyrirmæli í einstökum atriðum um skólastarfið á hverju einstöku skólastigi og á hverri einstakri námsbraut, er auðvitað nauðsynlegt að gera mjög oft breytingar á skólalöggjöfinni. Skólalöggjöf einstakra landa er að þessu leyti nokkuð ólík. Íslenzk skólalöggjöf um þann þátt skólakerfisins, sem annast lögboðna fræðsluskyldu, lýtur að nokkrum grundvallaratriðum. Hún kveður t.d. á um, að fræðsluskylda sé frá 7—15 ára aldurs, að fræðsluskyldan skiptist í tvö skólastig, barnastig, sem ljúki við 13 ára aldur, og unglingastig, sem ljúki með unglingaprófi. Síðan gerir fræðslulöggjöfin ráð fyrir miðskólum, er veiti eins árs fræðslu til viðbótar unglingaprófi, og gagnfræðaskólum, er velti tveggja ára fræðslu frá unglingaprófi. Fræðslulöggjöfin sjálf kveður hins vegar ekkert á um það, hvaða námsefni eða hversu mikið skuli kennt til barnaprófs, unglingaprófs, miðskólaprófs eða gagnfræðaprófs. Fræðslulöggjöfin sjálf kveður ekki heldur neitt á um það, hvaða eða hvers konar kennsluaðferðum skuli beita eða hvernig próftilhögun skuli vera.

Þegar rætt er um nauðsyn þess, að skólarnir lagi sig eftir breyttum þjóðfélagsháttum á hverjum tíma, á það auðvitað fyrst og fremst við um námsefni, kennsluaðferðir og próftilhögun. En allar breytingar, sem æskilegt kann að vera talið að gera í þessum efnum, hefur verið hægt að gera er hægt að gera og verður hægt að gera án breytinga á grundvallaratriðum skólalöggjafarinnar, eins og hún er á Íslandi. Að þessu leyti er það grundvallarmisskilningur, þegar talað er um nauðsyn á endurskoðun á fræðslulöggjöfinni í því skyni að gera breytingar á námsefni, kennsluaðferðum og próftilhögun á fræðsluskyldustiginu,

Gildandi lagaákvæði um þá 8 ára fræðsluskyldu, sem hér er nú lögbundin, eru í löggjöf frá 1948. Það var mjög viturlega ráðið af höfundum þeirrar fræðslulöggjafar að hafa hana rammalöggjöf, eins og hún er, þannig að þeim, sem með stjórn fræðslumálanna fara og annast sjálfa kennsluna, séu gefnar sem frjálsastar hendur um breytingar á námsefni, kennsluaðferðum og próftilhögun. Þó að þessi lagaákvæði hafi staðið óbreytt í meira en 20 ár, hafa mjög margvíslegar breytingar verið gerðar á þeim atriðum, sem eru kjarni og tilgangur skólastarfsins, þ.e.a.s. námsefninu, kennsluaðferðunum og próftilhöguninni. Ákvæði fræðslulaga frá 1946 hafa ekki staðið í vegi fyrir slíkum breytingum. Þess vegna hefur þeim ákvæðum ekki verið breytt.

Nokkru eftir að ég tók við starfi menntmrh., eða fyrir næstum 10 árum, skipaði ég n. til þess að athuga núgildandi fræðslukerfi og framkvæmd þess og gera till. um breytingar á framkvæmd núgildandi laga eða lagasetningunni sjálfri, eftir því sem ástæða virðist til, eins og segir í skipunarbréfi n. Í n. áttu sæti þessir menn: Halldór Halldórsson prófessor, formaður, Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri, Helgi Elíasson fræðslumálastjóri, Sigtryggur Klemenzson ráðuneytisstjóri, tilnefndur af fjmrn., Helgi Þorláksson yfirkennari, tilnefndur af Landssambandi framhaldsskólakennara, Kristján J. Gunnarsson yfirkennari, tilnefndur af Sambandi ísl. barnakennara, Einar Magnússon yfirkennari, tilnefndur af Félagi menntaskólakennara Jónas Guðmundsson skrifstofustjóri, tilnefndur af Sambandi ísl. sveitarfélaga, Sigurður Ingimundarson verkfræðingur, tilnefndur af Alþfl., frú Ragnhildur Helgadóttir alþm., tilnefnd að Sjálfstfl., Páll Þorsteinsson alþm., tilnefndur af Framsfl., og Haraldur Steinþórsson kennari, tilnefndur af Alþb.

Þessi n. skilaði ýtarlegri álitsgerð í ágúst 1959. Hún gerði samþykktir um námsstjórn, um skólakerfi barnaskóla og gagnfræðaskóla um menntaskóla, kennaramenntun o. fl., um fjármál skóla og um erindisbréf fyrir kennara og skólastjóra í barna- og unglingaskólum, fræðsluráð og skólanefndir. En n. gerði ekki till. um breytingu á grundvallaratriðum löggjafarinnar um fræðsluskyldu. Veigamestu brtt. n. lutu að menntaskólanámi, kennaramenntuninni og fjármálum skólanna. Aðalatriði till. um menntaskólanámið hefur smám saman verið framkvæmt á undanförnum árum. Svo sem kunnugt er, hefur löggjöf verið sett um kennaramenntunina, Kennaraskólanum verið breytt í stúdentaskóla, og enn fremur hefur verið sett ný löggjöf um greiðslu skólakostnaðar. Þá hafa verið sett erindisbréf til kennara og skólastjóra og tilhögun námsstjórnar verið endurskoðuð.

Þegar sú niðurstaða þessarar n. lá fyrir, að hún gerði ekki till. um grundvallarbreytingu á skipulagi fræðsluskyldunnar, var af hálfu menntmrn. lögð á það megináherzla að ljúka sem fyrst endurskoðun námsskrár fyrir allt fræðsluskyldustigið. Var því verki lokið 1961 og þá í fyrsta sinn gefin út námsskrá fyrir fræðsluskyldustigið allt. Hefur sú námsskrá smám saman verið að koma til framkvæmda, og má með miklu meiri rétti segja að hún sé grundvöllur skólastarfsins á fræðsluskyldustiginu nú í dag en lagaákvæðin frá 1946. Þessari námsskrá er auðvitað hvenær sem er hægt að breyta ef breyttar aðstæður eru taldar gera slíka breytingu nauðsynlega. Eina verulega mikilvæga atriðið varðandi fræðsluskylduna sem nú er lögbundið, er, að hún skuli vera 8 ár, eða frá 7—15 ára aldurs. Skólamálanefndin gerði á sínum tíma ekki till. um að breyta þessu. Ég var henni á sínum tíma sammála um, að það væri þá ekki tímabært. Hins vegar tel ég nú, að rækileg athugun á þessu atriði sé orðin tímabær, og er hér einmitt um að ræða eitt af verkefnum skólarannsóknanna, sem ég mun síðar víkja að.

Annað mikilvægt atriði skólakerfisins, sem mikið hefur verið rætt á undanförnum árum, er einnig lögbundið, þótt ekki snerti það fræðsluskylduna. En það er, að haldið skuli eitt allsherjar inntökupróf í menntaskóla um land allt, svokallað landspróf. Um þetta atriði segir gildandi löggjöf ekki annað en að inntökupróf í menntaskóla skuli samræmt um land allt. Í löggjöfinni eru engin fyrirmæli um það, hverjar prófkröfur skuli gera á landsprófi. Lagaákvæði um landspróf voru lögtekin 1946, og var tilgangur þess þá að tryggja öllum unglingum, hvar sem er á landinu, hliðstæða aðstöðu til inngöngu í menntaskóla. Áður en landspróf var tekið upp, voru engar samræmdar eða almennar reglur til um inntökuskilyrði í menntaskóla og var þetta talið valda miklu, jafnvel óverjandi misrétti varðandi aðstöðu unglinga til þess að hefja menntaskólanám. Á sínum tíma mun landsprófið því yfirleitt hafa verið talið mikið framfaraspor miðað við það ástand, sem áður ríkti.

Á síðustu árum virðist landsprófið hins vegar hafa sætt vaxandi gagnrýni, að því er virðist einkum vegna þess, að ýmsir hafa talið það þröskuld á vegi unglinga til menntaskólanáms. Hafa ýmsir krafizt breytinga á fræðslulöggjöfinni til þess að draga úr þeim hömlum, sem þeir hafa talið landsprófið vera á aðgangi til framhaldsnáms. En hér er enn um grundvallarmisskilning að ræða. Í lagaákvæðum um landspróf felst ekkert annað en það, að sams konar inntökupróf skuli haldið í alla menntaskóla. Ef menn vilja er enginn vandi að auðvelda inngöngu í menntaskólana án lagabreytingar. Hér er engin spurning um það, hvort löggjafinn þurfi að breyta sínum ákvæðum.

Ég geri ekki ráð fyrir, að neinn geti haft á móti því, að samræmi sé í kröfum til inngöngu í einstaka menntaskóla. Um hitt getur mönnum hins vegar sýnzt sitt hvað, hversu strangar kröfur eigi að gera og hvaða kröfur eigi að gera en hvorugt er lögbundið. Ef menn vilja auðvelda inngöngu í menntaskólana eða haga vali nemenda þangað öðruvísi en nú er gert, þarf ekki til þess að breyta neinu í sjálfri fræðslulöggjöfinni, heldur þeim reglum, sem starfað er eftir á grundvelli fræðslulöggjafarinnar. Skólamönnum sýnist nokkuð sitt hvað um landsprófið. Sumir telja það of einstrengingslegt, t.d. leggja of mikið upp úr minnisatriðum. Aðrir telja það beinlínis of þungt og segja, að fleiri ættu að komast í menntaskóla en yfirleitt standast landspróf. Enn aðrir telja það of létt, eins og komi fram í því, að verulegur hluti þeirra, sem standist landspróf, standist síðan ekki próf upp úr 1. bekk menntaskólanna og hefði því frekar átt að velja sér aðra námsbraut til framhaldsnáms en menntaskólanám. Allt þarf þetta rækilegrar athugunar við. Einmitt þetta er m.a. verkefni skólarannsóknanna. En breytinga á sjálfri fræðslulöggjöfinni er ekki þörf til þess að koma fram breytingum í þessum efnum.

Það eru hins vegar beinlínis rangar staðhæfingar, sem imprað hefur verið á opinberlega, að prófkröfur í landsprófi hafi verið miðaðar við það að bægja nemendum frá menntaskólanámi vegna húsnæðisskorts. Landsprófsnefnd er algerlega sjálfstæð og óháð í starfi sinu og hefur ekkert samband hvorki við fræðsluyfirvöld né menntaskóla um prófkröfur sínar. Öllum, sem staðizt hafa landspróf, hefur jafnan verið veitt skólavist í menntaskóla.

Þá hefur enn talsvert verið rætt um eitt atriði, mjög mikilvægt atriði, í sambandi við skólakerfið í heild, en það er, að stúdentsaldur sé hér á landi of hár, þ.e.a.s., að ekki eigi að þurfa að taka 13 ár að ljúka skólagöngu til stúdentsprófs, eins og nú á sér stað hér á landi. Ég er persónulega sammála þessu og tel það eitt brýnasta verkefnið í íslenzkum skólamálum að breyta hér til, þannig að unglingar geti orðið hér stúdentar einu ári fyrr en nú á sér stað. Menntaskólanám er eflaust ekki hægt að stytta frá því, sem nú á sér stað. Síðasta ár gagnfræðanáms undir inngöngu í menntaskóla, þ.e.a.s. landsprófsbekkurinn svonefndi, er einnig án efa svo þungur, að ekki kemur til mála, að unnt væri að ljúka því námsefni á skemmri tíma en nú er gert. Styttingin yrði því að vera á fræðsluskyldustiginu sjálfu. Hins vegar eru skólamenn mjög ósammála um það, hvort það sé hægt og þá á hvaða stigi innan fræðsluskyldukerfisins. Sú hugmynd að skipta börnum og unglingum í bekkjardeildir eftir námsgetu á sér marga formælendur, en einnig marga andstæðinga. Hér er um vandasöm framkvæmdaatriði að ræða, og eflaust er nauðsynlegt að gera ýmsar tilraunir og fikra sig áfram, áður en endanlegt og gott skipulag finnst. Þessa mikilvægu breytingu er einnig hægt að gera án margumtalaðrar endurskoðunar á fræðslulöggjöfinni, ef menn verða nægilega á eitt sáttir um, að breytingin sé æskileg og hún er studd nægilegum kennslufræðilegum og vísindalegum rökum.

Ég hef fjölyrt nokkuð um þessi grundvallaratriði, vegna þess að mér virðist það óþarflega algengt, að blandað sé saman umtali um endurskoðun á fræðslulöggjöfinni og endurskoðun á skólastarfinu. Það heyrist allt of oft, að eitthvað meira en lítið hljóti að vera bogið við íslenzk skólamál, vegna þess að grundvallarlöggjöfin um þau sé meira en 20 ára gömul. Af þessu virðast ýmsir draga þá ályktun, að skipulag og starfsemi íslenzkra skóla hafi ekki breytzt í 20 ár. En það er auðvitað herfilegur misskilningur. Lengd skólaskyldunnar hefur að vísu ekki breytzt í 20 ár, en sjálft skólastarfið hefur tekið miklum breytingum. Námsefnið er orðið mjög annað en það var fyrir 20 árum. Kennsluaðferðir hafa breytzt gífurlega, próftilhögun er ekki lengur með sama hætti og þá var. Með þessu er ég auðvitað ekki að segja, að skólastarfið hafi í einu og öllu breytzt eins mikið og æskilegt væri og það sé nú fullkomið. Eflaust stendur þar enn þá ótalmargt til mikilla bóta. En það er grundvallarmisskilningur, að ákvæði skólalöggjafarinnar frá 1946 hafi staðið í vegi fyrir breytingum, sem margir kunna að hafa viljað gera, en ekki hafa verið gerðar.

Þótt löggjöfin um fræðsluskylduna sé rammalöggjöf, mikilvægar breytingar á skólakerfinu sé því hægt að gera án breytingar á henni, á þetta ekki við um framhaldsskólalöggjöfina og sérskólalöggjöfina. Þess vegna hefur þessi löggjöf verið endurskoðuð svo að segja öll á undanförnum árum eða er í endurskoðun. 1957 var sett ný löggjöf um Háskóla Íslands. 1963 var komið á fót Tækniskóla Íslands. Sama ár voru sett ný lög um kennaramenntunina og Kennaraskóli Íslands gerður að stúdentaskóla. 1965 var iðnfræðslulöggjöfin öll endurskoðuð og sett um hana ný löggjöf. 1963 var sett ný löggjöf um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla og 1965 um Húsmæðrakennaraskóla Íslands. Undanfarið ár hefur starfað opinber n. að endurskoðun menntaskólalöggjafarinnar, og einnig starfar nú n. að tillögugerð um uppbyggingu Háskóla Íslands næstu 20 ár.

Ég leyfi mér að staðhæfa, að allir þeir þættir íslenzkrar skólalögjafar, að menntaskólalöggjöfinni undantekinni, sem þörf hefur verið á að endurskoða til þess að koma fram nauðsynlegum breytingum í samræmi við breytt viðhorf nýs tíma hafi verið endurskoðaðir á undanförnum árum. Um alla þætti íslenzks skólastarfs gildir nú tiltölulega ný löggjöf, að svo miklu leyti sem breytt löggjöf er skilyrði nauðsynlegra breytinga, enda hefur aldrei verið sett jafnmargháttuð löggjöf um skólamál á Íslandi og einmitt á undanförnum árum. Endurskoðun menntaskólalöggjafarinnar hefur því miður gengið seinna en ég hafði vonað. Hins vegar hefur verið hægt að gera margs konar breytingar á deildaskiptingu og kennslutilhögun án lagabreytinga og hefur það verið gert. Ein af ástæðum þess, að n. sú, sem starfar að endurskoðun menntaskólalöggjafarinnar, hefur ekki enn lokið störfum, mun vera sú, að hún vill gjarnan vita meira um árangur þeirra tilrauna, sem nú fara fram í menntaskólanáminu, áður en hún gerir endanlegar tillögur um nýja löggjöf á þessu sviði. Ég hef hins vegar ekki séð ástæðu til þess að beita mér fyrir endurskoðun lagaákvæðanna frá 1946 um sjálft skipulag fræðsluskyldunnar, eingöngu vegna þess, að þau lagaákvæði eru ekki til neins trafala við þær breytingar, sem hugmyndir hafa verið uppi um að gera innan skyldufræðslukerfisins. Eina veigamikla breytingin, sem til athugunar og umræðu er og gera mundi lagabreytingu nauðsynlega, er lenging sjálfrar skólaskyldunnar t.d. með því að láta börn hefja skólagöngu 6 ára í stað 7 nú. Hér er hins vegar um mál að ræða, sem ekki aðeins hefur uppeldisfræðilega og kennslufræðilega þýðingu, heldur stórfellda fjárhagsþýðingu, og verður tillögugerð einnig um það efni að miðast við það, hverjar fjárhagsbyrðar talið verður hægt að leggja á ríkissjóð í þessu sambandi. Einmitt vegna þess, að meginverkefnin, sem nú eru á döfinni í íslenzkum skólamálum, lúta ekki lengur að endurskoðun á gildandi löggjöf, heldur að hugsanlegum breytingum á sjálfu skólastarfinu, á námsefni, á kennsluaðferðum, á próftilhögun, hef ég ekki talið rétt að skipa n. til þess að fjalla um þessi viðfangsefni, þar sem hér er um að ræða viðfangsefni, sem þarfnast rannsóknar, vísindalegrar rannsóknar, og samstarfs fræðsluyfirvalda og þeirra, sem stjórna skólunum sjálfum, hafa kennsluna þar með höndum. Einmitt vegna þessa taldi ríkisstj. rétt að taka á þessu verkefni með nýjum hætti, með þeim hætti að stofna sérstaka deild innan menntmrn., er annast skyldi þessar rannsóknir í samstarfi við skólana sjálfa og gera síðan smám saman till. um þær breytingar, er til bóta mættu verða. Þessi skólarannsóknadeild var stofnuð 1986, og var Andri Ísaksson sálfræðingur ráðinn til að veita henni forstöðu. Fastir samstarfsmenn hans eru þeir Jóhann S. Hannesson skólameistari og dr. Wolfgang Edelatein, sem starfar sem sérfræðingur við rannsóknastofnunina í uppeldis- og skólamálum í Berlín, en kemur öðru hverju hingað til lands til ráðuneytis um þessi mál. Skal ég nú greina frá helztu störfum skólarannsóknanna fram til þessa:

Í fyrsta lagi: Almenn könnun viðhorfa til skólakerfisins. Rætt hefur verið um skólakerfið við fjölmarga aðila, flesta skólamenn. Eru þessar rannsóknir skráðar nákvæmlega. Niðurstaðan er síðan skráð, sundurgreind efnislega, og verða niðurstöðurnar lagðar til grundvallar spurningaskrá, sem skólamönnum verður send innan skamms,

Í öðru lagi: Tilraunir í skólum. Hafin er nokkur tilraunastarfsemi ú skólum, sem skólarannsóknir hafa umsjón og eftirlit með í samráði við umsjónarkennara hverrar tilraunar. Enn sem komið er miðast umfangsmestu tilraunirnar raunverulega við starf að nýjungum, þ.e.a.s. tilraunir með nýtt námsefni eða kennslu ákveðinna námsgreina á aldursstigum, þar sem þær hafa lítið sem ekkert verið kenndar áður. Hér skulu nefndar þær tilraunir, sem stærstar eru í sniðum. Greiða skólarannsóknirnar sem næst helming aukakostnaðar við þessar tilraunir, en hlutaðeigandi sveitarfélög hinn helminginn.

Í fyrsta lagi mengjastærðfræði í 1. og 2. bekk barnaskóla. Umsjónarkennarar eru Kristinn Gíslason og Kristján Sigtryggsson. Notuð eru verkefni Agnete Bundgaard, danskrar konu, sem verið hefur brautryðjandi í þessum efnum í Danmörku. Í sambandi við þessa tilraun var haldið kennaranámskeið um mánaðamótin ágúst-sept. s.l., og sóttu það yfir 80 kennarar. Þess skal getið, að í maímánuði s.l. var lagt sérstakt könnunarpróf fyrir þau börn, sem tóku þátt í tilrauninni s.l. vetur, alls 7 bekki. Voru það álíka mörg börn í tveim öðrum skólum sambærilegum. Auk þess tóku börnin, sem voru með í tilrauninni, hið venjulega vorpróf 7 ára barna í reikningi s.l. vor. Kristinn Gíslason hefur unnið talsvert úr niðurstöðum þessara prófa, og verður kjarni þeirra niðurstaðna sennilega birtur fljótlega.

Í öðru lagi danska í 5. og 6. bekk barnaskóla. Umsjónarkennari er Ágúst Sigurðsson námsstjóri. Þessi tilraun hófst haustið 1966 í 3 barnaskólum í Reykjavík. Síðan á s.l. skólaári samræmdi barnaskóli Húsavíkur dönskukennslu sína í 6. bekk tilraun þessari. Tvö könnunarpróf voru lögð fyrir börnin, annað í febr., hitt í maí. Umsjónarkennari vann úr niðurstöðum prófanna og ritaði skýrslu um tilraunina s.l. vor. Þessi tilraun heldur áfram á yfirstandandi skólaári með þátttöku þriggja barnaskóla í Reykjavik og barnaskóla Húsavíkur.

Þriðja tilraunin er enska í 4. og 5. bekk Langholtsskóla. Umsjónarkennari er Haukur Ágústsson. Þessi tilraun hófst í jan. 1967 og var þá miðuð við 4. bekk skólans einvörðungu. Í vetur taka 4, og 5. bekkur skólans þátt í tilrauminni, allar bekkjardeildir beggja árganga. Framfarir barnanna voru kannaðar með skyndiprófum, og umsjónarkennari hefur ritað skýrslu um starfsemina s.l. skólaár.

Þetta var um þrjú megintilraunaverkefnin, sem á döfinni eru.

Þá er þriðja meginverkefni skólarannsóknanna, sem lýtur að námsefni og námsskrá, Hér hafa tveir málaflokkar verið teknir fyrir. Í fyrsta lagi hefur verið skipuð n. til þess að semja námsskrárdrög fyrir eðlis- og efnafræðikennslu upp að gagnfræðaprófi. Formaður n. er Sveinbjörn Björnsson eðlisfræðingur. N. skal skila till. og greinargerð fyrir 1. maí 1968. Í öðru lagi: Tveir sérfróðir kennarar hafa verið fengnir til að rannsaka og gagnrýna tvær kennslubækur í félagsfræði, sem notaðar eru í gagnfræðaskólum. Grg. og till. um nýskipan skal skila snemma á næsta ári.

Fjórða meginverkefni skólarannsóknanna lýtur að prófum og einkunnum. Hafinn er talsverður undirbúningur að athugun þessa málaflokks, og hefur undirbúningurinn einkum miðast við eftirfarandi atriði:

1) Tilgang prófa að loknu kennslustarfi.

2) Upplýsingagildi einkunna.

3) Aukningu á samræmi, raungildi og áreiðanleika prófa og einkunna.

Fimmta og síðasta verkefnið, sem ég vildi nefna, lýtur að forskólanum. Hafinn er undirbúningur að athugun þessa málaflokks, einkum skólagöngu 6 ára barna. Undirbúningurinn hefur hingað til að mestu miðast við könnun erlendrar reynslu.

Þá má geta þess, að forstöðumaður skólarannsóknanna, Andri Ísaksson, fór nýlega í nokkurra vikna námsferð til Frakklands, Þýzkalands, Svíþjóðar og Noregs. Í ferð þessari leitaðist hann við að kynna sér skólarannsóknastofnanir í fyrrgreindum löndum, skipulagningu starfs þeirra og verkefnaval, og auk þessa athugaði hann, hvort hugsanlegt væri, að Íslendingar gætu fengið einhverja sérfræðilega hjálp til rannsóknarstarfa hér að skólamálum.

Varðandi næstu störf og verkefni skólarannsóknanna er þess fyrst að geta, að 11.—16. des. n.k. verður haldinn fundur forstöðumanns og ráðunauta skólarannsókna. Verður þá tekin endanleg ákvörðun um vinnuáætlun ársins 1968. Undirbúningur þeirrar áætlunar er langt kominn, svo að unnt er að gefa nokkra hugmynd um þau verkefni, sem væntanlega verður fyrst og fremst unnið að.

Þeim verkefnum, sem þegar eru hafin, verður haldið áfram. Ber þar fyrst að nefna viðhorfakönnunina, sem ég nefndi áðan. Efnislegar niðurstöður þeirra viðtala, sem tekin hafa verið við skólamenn og ýmsa fleiri, verða notaðar til að semja spurningaskrá um viðhorf til skóla og skólakerfis. Verður skráin send stórum hópi skólamanna, svo og væntanlega nokkrum aðilum öðrum.

Þá verður þeim nýjungatilraunum, sem ég nefndi áðan, haldið áfram. Tilraunastarfsemin verður aukin og byrjað á nýjum tilraunum. Er undirbúningur að einni slíkri tilraun þegar hafinn. Fylgzt verður og með nokkrum tilraunum, sem þegar eru hafnar, og má í því sambandi nefna tilraun með starfrænt lesgreinanám í 4., 5. og 6. bekk Laugalækjarskóla svo og tungumálastofu á Blönduósi. Samdar verða nákvæmari reglur um mat á árangri tilrauna, bæði almennt og í einstökum tilvikum.

Þá mun haldið áfram að vinna að athugun á námsefni og námsskrá. Rannsökuð verða álit n. þeirra og sérfræðinga, sem þegar eru að störfum, og ákvörðun tekin varðandi till. um framkvæmd svo og skipun nýrra nefnda, Enn fremur verður unnið að álitsgerð með till. um reglur og aðferðir, sem heildarendurskoðun námsskrár á Íslandi mætti miða við. Aukin áherzla verður lögð á þær athuganir, sem farið hafa fram á gildi prófa og einkunna, og mun rannsóknin öll að líkindum taka bæði til barna- og gagnfræðastigsins. Í þessu sambandi hefur komið til greina að reyna að fá til aðstoðar erlenda sérfræðinga.

Að síðustu má svo geta þess, að rituð verður endanleg skýrsla um tilhögun forskólahalds í nokkrum nágrannalöndum. Unnið verður síðan að frekari könnun þessa vandamáls hérlendis og undirbúningi að tillögugerð um lausn þess. Hins vegar mun áætlun um framkvæmd og tilhögun þeirrar könnunar ekki liggja fyrir fyrr en að nokkrum vikum liðnum.

Meðal alveg nýrra rannsóknarliða, sem teknir verða upp á næsta ári, er sérstaklega rétt að geta um tvo. Hinn fyrri er, að hafin verður athugum á ýmsum þáttum skólahalds í dreifbýlinu, og er í ráði að vinna að þeirri rannsókn í samvinnu við n. þá, sem nú starfar að menntaáætlun á vegum Efnahagsstofnunarinnar og fleiri stofnana, með styrk frá Efnahagssamvinnustofnuninni í París. Þessi athugun á skólahaldi í dreifbýli verður væntanlega þríþætt. Í fyrsta lagi: Rituð verði skýrsla um tilhögun dreifbýliskennslu í nokkrum nágrannalöndum. Hefur þegar verið safnað þeim heimildum, sem lagðar eru til grundvallar skýrslunni. Í öðru lagi: Gerð verði áætlun um tilraun, sem miða skal að því að bera saman sérstakar, ólíkar leiðir til þessa að leysa skólavandræði í dreifbýli. Verður væntanlega reynt að hefja þessa tilraun þegar á árinu 1968. Þá verður hrundið í framkvæmd rannsókn á sambandi námsárangurs nemenda við félagslegan uppruna þeirra. Þessi rannsókn hefur þegar verið undirbúin nokkuð.

Að sjálfsögðu eru skólarannsóknir á Íslandi enn á byrjunarstigi. Enn er verið að leita að heppilegum starfsaðferðum og er eflaust þörf á mun meiri samvinnu skólastjóra og kennara en komizt hefur á enn þá. En skólarannsóknirnar hafa þegar sannað gildi sitt og þurfa því að vaxa og stækka bæði að fé og mannafla. Hins vegar er vafasamt, að það, sem þeim sé nú nauðsynlegast, sé að ráða mikinn fjölda sérfræðinga að rannsóknunum. Mikilvægast er hitt, að verkefnin séu vandlega og skynsamlega valin og jafnan séu nægir starfskraftar og nægilegt fjármagn til þess að vinna að kerfisbundinni rannsókn þeirra viðfangsefna, sem viðráðanleg eru talin og brýnust þörf er á að sinnt sé hverju sinni.

Að lokum má geta þess, að árlega er rituð skýrsla um störf skólarannsóknanna, og kemur sú skýrsla út í janúarmánuði ár hvert.

Með þessu vona ég, að ég hafi veitt hv. fyrirspyrjanda fullnægjandi svör við spurningum hans.