26.01.1968
Sameinað þing: 30. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 597 í D-deild Alþingistíðinda. (3108)
196. mál, lánveitingar úr Byggingasjóði ríkisins
Fyrirspyrjandi (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Þar sem ég telst víst búinn með ræðutímann, skal ég hafa þetta aðeins örfá orð. En ég vildi aðeins segja það í tilefni af þeim umr., sem hér hafa orðið um þessi mál, að ég vil undirstrika það, sem ég sagði raunar áðan, að það er vitanlega hreinasta fjarstæða að staðið hafi verið við júní-samkomulagið Það hefur hvorki verið staðið við fjölda þeirra íbúða sem byggðar hafa verið, né það að afla nýs fjármagns. Og meðan þetta tvennt, sem hlýtur að vera aðalatriðið í þessu máli, hefur verið framkvæmt eins og það er gert, er auðvitað hrein fjarstæða að tala um það, að það hafi verið staðið við samkomulagið.
En það, sem mig langaði til að koma hér á framfæri, var ein fsp. til hv. landsk. þm., Jóns Þorsteinssonar, formanns framkvæmdanefndar byggingaráætlunar. Úr því að hann er farinn að taka þátt í þessum umr. og leggja áherzlu á það hlutverk n. að lækka byggingarkostnaðinn, þá langar mig til þess að heyra álit hans á því, hvernig það hafi tekizt. Hvernig er samanburður á kostnaðarverði þessara íbúða, sem verið er að byggja í Breiðholti, við þær íbúðir, sem t.d. byggingarsamvinnufélög hafa verið að reisa bæði hér í borginni og annars staðar? Það er fróðlegt að fá álit hans, að það komi hér fram. Það er vissulega verkefni n. að lækka byggingarkostnaðinn, og formaðurinn hlýtur að hafa gert þennan samanburð. Og sérstaklega langaði mig til þess að beina þeirri fsp. til hans, hvernig reynslan hafi orðið af einbýlishúsunum, sem flutt voru frá Danmörku, t.d. í samanburði við þau einbýlishús, sem hlutafélagið Iðja á Akureyri byggði fyrir kísilgúrverksmiðjuna við Mývatn. Ég sé af svörum hæstv. ráðh., að í seinni hluta byggingaráætlunarinnar er ekki gert ráð fyrir því, að byggð séu einbýlishús. Hvort það er nokkurt samband milli þess og þeirrar reynslu, sem n. hefur af innflutningi húsa frá Danmörku, skal ósagt látið, en væri gott að fá upplýst.