26.01.1968
Sameinað þing: 30. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 600 í D-deild Alþingistíðinda. (3110)
196. mál, lánveitingar úr Byggingasjóði ríkisins
Magnús Kjartansson:
Herra forseti. Mér þykir það afar einkennileg kenning hjá hv. 3. landsk. þm., að ríkisstj. hafi staðið við alla hluti í sambandi við þann samning, sem hún gerði við verkalýðshreyfinguna 1965. (JÞ: Ég sagði það ekki. Ég sagði bara ...) Var það aðeins um byggingartímann? (JÞ: Já, það var hann.) Nei, en það var annað atriði, sem er nátengt því. Það er útvegun á fjármagni til þessara framkvæmda. Það liggur í hlutarins eðli, að þegar ríkisstj. heitir því í samningum við verkalýðshreyfinguna að ráðast í framkvæmdir af þessu tagi, er hún að heita því einnig að útvega það fjármagn, sem til þess þarf. Því miður voru ákveðnar skuldbindingar um það atriði ekki bundnar í samningum, en reynslan sannar það ákaflega ótvírætt, að það er ekki hægt að reiða sig á almennar skuldbindingar hæstv. ríkisstj., nema gengið sé frá öllum framkvæmdaatriðum í samningum. Hæstv. ríkisstj. hefur sem kunnugt er ekki útvegað neitt fé til þessara framkvæmda. Þar hafa komið til lán úr Atvinnuleysistryggingasjóði, en að öðru leyti hefur þessu verkefni verið veit yfir á Byggingarsjóð ríkisins. Og mér er kunnugt um það, að á þessu ári, 1968, hefur stjórn þess sjóðs tekið frá helminginn af tekjum sjóðsins á þessu ári til Breiðholtsframkvæmdanna þannig að aðeins helmingnum af tekjunum verður varið til hinna venjulegu og lögbundnu athafna þessa sjóðs. Og þetta eru ákaflega alvarleg tíðindi fyrir þúsundir fjölskyldna í landinu.
Ég efast um, að þær tölur, sem hæstv. félmrh. birti hér í upphafi um fjölda óafgreiddra umsókna, séu fyllilega í samræmi við veruleikann. Ég kynnti mér þessi mál nokkuð skömmu fyrir jól og fékk þá vitneskju hjá mönnum, sem gjörla mega vita, að óafgreiddar umsóknir væru nánast 2000 talsins. Mér virtust þær tölur, sem hæstv. ráðh. var hér með, aðeins vera um nýjar umsóknir, ekki um framhaldsumsóknir, og þar getur náttúrlega skeikað ákaflega miklu, Og mér virðist eftir þeim fregnum, sem ég fékk, að það væri hreinlega ófyrirsjáanlegt, hvenær hægt væri að afgreiða þær umsóknir, sem sendar höfðu verið í fullu samræmi við lög og skuldbindingar sjóðsins.
Mér þykir það ákaflega ískyggilegt, að hæstv. ráðh. skuli tala af svona miklu jafnaðargeði um vandamálin í byggingarmálum, einmitt vegna þess, að nú er nýbúið að framkvæma mjög stórfellda gengislækkun, og það er fyrir því löng reynsla, hver áhrif gengislækkanir hafa á byggingarframkvæmdir. 1960 og 1961 fækkaði íbúðarhúsabyggingum hér í Reykjavík um næstum því helming, og það er mikil hætta á því, að hlíðstæð þróun verði núna, ef hæstv. ríkisstj. gerir sér ekki grein fyrir því, að hún verður að afla mjög aukinna fjármuna til þessara framkvæmda. Og þar er raunar ekki aðeins um að ræða ástandið í byggingarmálum. Við vitum það allir, að nú er mjög alvarlegt ástand í atvinnumálum einnig. Vinna við húsbyggingar hefur verið mjög veigamikill þáttur í atvinnu hér í höfuðborginni. Nú eru skráðir atvinnuleysingjar hér á 6. hundrað, og skráðir atvinnuleysingjar um allt land eru komnir á 2. þús. Hæstv. ríkisstj. hefur sagt, að hún hafi fullan hug á því að leysa þessi vandkvæði, en ég er hræddur um að hún geri það ekki, nema hún hugi m.a. að vandamálum þeim, sem tengd eru íbúðarhúsabyggingum. Þess vegna urðu mér svör ráðh. næsta mikil vonbrigði. Ég þykist hafa ástæðu til að ætla að hann hafi persónulega fullan hug á því að láta gott af sér leiða í þessum málum, en ég gat ekki heyrt þess nokkur merki í ræðu hans, að hann hefði verið með nokkra kröfugerð umfram það, sem samkomulag hefði fengizt um innan ríkisstj.