26.01.1968
Sameinað þing: 30. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 603 í D-deild Alþingistíðinda. (3112)
196. mál, lánveitingar úr Byggingasjóði ríkisins
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Það var aðeins til að undirstrika þessi meginatriði, sem eru að skýrast í umr., sem eru mjög þýðingarmiklar, og sérstaklega þetta, að peningar hafa verið teknir í Breiðholtsáætlunina að mestu leyti af lánasjóðum íbúðalánakerfisins. í stað þess, að því var yfir lýst, að það fé ætti að koma aukalega. Hv. þm., formaður n.,sem fjallar um framkvæmdina, sagði hér áðan, að það hefði ekki staðið á peningum frá ríkisstj. í sambandi við framkvæmdir í Breiðholtinu. Þetta getum við skilið, þegar þess er gætt, að nefndinni hefur verið vísað í íbúðalánasjóðinn, að taka fé þaðan og aðrir þá fengið þeim mun minna.
Nú skilst mér vera svo komið, eftir því sem upplýst var áðan af hv. þm. Magnúsi Kjartanssyni, að helmingurinn af öllum tekjum íbúðalánasjóðsins á þessu ári sé tekinn frá vegna Breiðholtsframkvæmdanna. Þetta eru ekki smávægilegar upplýsingar, og þessu var ekki mótmælt af hæstv. ráðh., sem talaði þó hér á eftir, og sýnir þetta hversu alvarlega komið er. Þetta mega nánast klækir kallast, þegar þess er gætt, hvað uppi var haft, þegar lagt var inn á þá braut að byggja í Breiðholtinu samkvæmt hinni nýju áætlun, sem út af fyrir sig var mjög lofsverð framkvæmd og allir fögnuðu í þeirri von, að þar væri um viðbótarátak að ræða í húsnæðismálum.
Ég minntist dálítið á það áðan, að það væri annað hljóð nú í strokknum en var í fyrravetur. Mér finnst vera skynsamlegt að rifja það upp og engin ástæða til þess að láta það gleymast, því að þá var það básúnað mjög, að íbúðalánakerfið væri orðið nánast vélvirkt og væri í fyrsta skipti hægt að sinna öllum umsóknum, sem fyrir lægju. En nú er ástandið eftir örstuttan tíma orðið svona að þeir, sem sóttu fyrir 15. marz í fyrra, geta í fyrsta lagi búizt við að fá eitthvað út á umsóknirnar í sept. í haust, en aðrir enn síðar, að því er manni skilst.
Þetta minnir mig líka á, til þess að menn fái nokkra mynd af því, hvernig hæstv. ríkisstj, hefur unnið í þessum málum, að ég á nú sæti í stjórn byggingarsjóðs verkamanna, og þar er hæstv. ráðh. félagsmála formaður. Þar var nokkuð svipaður háttur á hafður. Rétt fyrir kosningarnar var sett út allmikið af loforðum um lán úr byggingarsjóði verkamanna, þannig að flest byggðarlög fengju einhver lánsfyrirheit. En yfirleitt hefur ekki verið hægt að standa við neitt af því, sem þá var lofað, allt gersamlega í molum og ekki staðizt þær áætlanir, sem þá voru gerðar.
Þetta eru sorglega ófullnægjandi vinnubrögð og satt að segja mjög ámælisverð og sama eðlis og það, sem gert var í sambandi við íbúðalánakerfið. Það er þetta að sýnast á réttum tíma en bregðast síðan, þegar kemur til framkvæmdanna og menn eru búnir að fá umboðið, sem þeir sækjast eftir. Þetta á ekki að vera siðaðra manna háttur, sannast að segja, og er auðvitað stórkostlega ámælisvert. Og þetta á ekki að þegja um, heldur ræða um, segja frá þessu, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, þeim sem hlut eiga að máli. Ég hygg, að það hafi miklu meiri þýðingu að ræða um þetta og upplýsa þetta en að ræða um hitt, hvað gerðist fyrir 12 árum eða svo í þessu sambandi, enda er það ekkert sambærilegt, því að þá var verið að byrja á því að fitja upp íbúðalánakerfið, og er ekki von á því, að það sé á nokkurn hátt hægt að bera það saman við það, sem ætti að vera ég segi ætti að vera nú eftir 11 ára uppbyggingu.
Því miður er kerfið nú eins og stendur sprungið, og það er ekki hægt að koma því saman aftur með öðru en því að ganga í að útvega stóraukið fjármagn inn í kerfið og m.a. skila því fjármagni aftur inn i það, sem tekið hefur verið óleyfilega í byggingaráætlunina.