07.02.1968
Sameinað þing: 34. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í D-deild Alþingistíðinda. (3131)

109. mál, bandaríska sjónvarpið

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Ég stend nú hér upp ekki sízt vegna ræðu hæstv. dómsmrh. áðan. Vorið 1966 fluttu nokkrir þm. stjórnarandstöðunnar þáltill. um takmörkun sjónvarpsins við herstöðina eina. Margar ræður voru fluttar í málinu, en ég held, að það, sem mesta athygli vakti, hafi ekki verið hávaðinn í flm., heldur þögnin, sem þeir mættu, þögn utanrrh. og þögn menntmrh. Báðir þessir hæstv. ráðh. og raunar allir aðrir ráðamenn þögðu af sér hræringar og hvers konar viðleitni til að fá þá til að ræða málið á Alþ., og málið var svo að lokum svæft hér í lok þingsins með því klóróformi allshn., sem allir munu víst þekkja. En þetta mál var ekki dautt þrátt fyrir allt. Menn höfðu ekki skilið til fulls, að hæstv. menntmrh. er ekki allur þar sem hann er séður. Bak við tjöldin fór hann á fund Bandaríkjamanna og bað þá um að gera ríkisstj. þann greiða að eiga sjálfir frumkvæði að lokun sjónvarpsins, og Bandaríkjamenn samþykktu og tóku að sér það verk, sem stjórnarvöldin höfðu ekki manndóm til að vinna.

Hér á Alþ. hefur vissulega lengi verið meiri hl. fyrir því, að bandaríska sjónvarpið væri takmarkað við herstöðina eina, en þessi vilji mátti ekki koma fram. Alþ. mátti ekki hafa skoðun á málinu og stjórnarvöldin ekki heldur. Því var sjónarspilið sett í gang, eins og flestum mun í fersku minni Bandaríkjamenn sögðust vera tilneyddir að takmarka sjónvarpið, ekki vegna þess að Íslendingar óskuðu eftir því, nei, þeir sögðu, að það væri af einkaástæðum þeirra sjálfra að þess þyrfti með. Og utanrrh. svaraði um hæl og sagði, að ef Bandaríkjamenn þyrftu endilega að takmarka sjónvarpssendingarnar nú, yrði svo að vera. Á engan hátt mátti sem sagt lesa út úr svari ráðh., að það væri vilji þings og stjórnar, að svo væri gert. Hann óskaði meira að segja eftir því, að takmörkun sjónvarpsins yrði slegið á frest, þar til það íslenzka væri komið í gagnið.

Nú sjá menn, held ég, afleiðingarnar af þessu geðleysi íslenzkra stjórnarvalda. Bandaríkjamenn framkvæma loforð sín seint og illa. En ráðamenn þjóðarinnar eru búnir að koma málum þannig fyrir, þeir virðast ekki geta ýtt á Bandaríkjamenn af neinum þeim krafti, sem dugað getur. Það eru liðnir 22 mánuðir, síðan þetta loforð var gefið, og enn þá standa einhverjir tæknilegir örðugleikar í þessari mestu tækniþjóð veraldar.

Já, hæstv. dómsmrh. lagði sem sagt til hér áðan, að útvarpið léti fara fram skoðanakönnun meðal hlustenda um það, hvort það ætti að takmarka bandaríska sjónvarpið á Keflavíkurflugvelli. En hvernig væri, að hæstv. dómsmrh. byrjaði nú á því að láta fara fram skoðanakönnun í sjálfri ríkisstj., svo að ekki þyrfti að vera neinn vafi á því lengur, hver sé skoðun hennar á þessu máli, og hvernig væri, að fram færi hér á Alþ. skoðanakönnun í þessu máli? Hvernig væri sem sagt, að blaðinu væri snúið við og Alþ. og ríkisstj. tækju af skarið í þessu máli í eitt skipti fyrir öll og sýndu, hver sé vilji þeirra í þessu máli, svo að Bandaríkjamenn þurfi ekki að vera lengur í neinum vafa og þurfi ekki að halda, að það sé ósk ríkisstj. eða jafnvel gert henni til góðs að draga málið eins lengi á langinn og hægt er.