07.02.1968
Sameinað þing: 34. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í D-deild Alþingistíðinda. (3138)
198. mál, framkvæmdaáætlun fyrir Norðurland
Fyrirspyrjandi (Gísli Guðmundsson) :
Herra forseti. Í okt. 1966 bar hv. landsk. þm., sem einnig á nú um stund sæti á þingi, Ragnar Arnalds, fram fsp. til ríkisstj. um það, hvað liði störfum tveggja stjórnskipaðra n., sem hann kvaðst hafa orðið var við á ferðalagi um Norðurland. Hæstv. félmrh. svaraði þessari fsp. í alllöngu máli hinn 26. okt. 1966, og hann sagði þá m.a., með leyfi hæstv. forseta, eða gaf þær upplýsingar, sem hér fara á eftir, varðandi annan þátt þessa máls. Hæstv. ráðh. sagði:
„Samkomulag varð um það í júní 1965 milli ríkisstj. og Alþýðusambands Norðurlands, að gerð skyldi sérstök framkvæmdaáætlun fyrir Norðurland . . . Í framhaldi af þessu samkomulagi, sem gert var 1965, fól ríkisstj. Efnahagsstofnuninni að gera áðurgreinda framkvæmdaáætlun, og skyldi framkvæmd verksins vera í samráði við Alþýðusamband Norðurlands svo og sveitarstjórnir og sýslunefndir á Norðurlandi. Hóf Efnahagsstofnunin undirbúning verksins í marzmánuði s.l.“ — þ.e. 1966 —„með söfnun gagna bæði hér í Reykjavík og á Norðurlandi, og nú í sumar“ — þ.e. sumarið 1966 — „hafa starfsmenn Efnahagsstofnunarinnar ferðazt um Norðurland, kynnt sér ástand í atvinnu- og félagsmálum og rætt við forvígismenn sveitarfélaga launþega, atvinnurekendur og fleiri aðila. Hafa öll byggðarlög, að Eyjafirði og nágrannasveitum hans undanskildum, þegar verið heimsótt, en gert er ráð fyrir, að þangað verði farið í nóv. n.k.“
Hæstv. ráðh. sagði enn fremur:
„Starfshópur Efnahagsstofnunarinnar skilar sjóðnum“ — þ.e.a.s. Atvinnujöfnunarsjóði, sem hann hafði þá einnig rætt um — „skýrslum um hvern hluta Norðurlands fyrir sig, þar sem lagðar eru fram till, um kerfisbundinn stuðning við atvinnulíf svæðanna. Ein skýrsla hefur þegar verið lögð fram, um Húnaflóasvæðið, og er Strandasýsla þá þar meðtalin. Von er á skýrslum um Skagafjörð ásamt Siglufirði og um austurhluta Norðurlands innan skamms. Reiknað er með, að Efnahagsstofnunin skili ríkisstj. heildarskýrslu um Norðurland allt á þessum vetri,“ — þ.e. veturinn 1966—1967. „Í þessu starfi hefur einmitt verið lögð áherzla á að flýta eins og kostur er fyrir þeim aðgerðum og framkvæmdum, sem nauðsynlegastar eru taldar.“
Þetta sagði hæstv. félmrh. um Norðurlandsáætlun hinn 26. okt. 1966. Við þessar upplýsingar má svo bæta því, að hinn 4. júní 1967, að ég ætla birtist blaðaviðtal við hæstv. fjmrh. um ýmis málefni, aðallega atvinnumál Norðurl. e., en eins og kunnugt er, er hæstv. ráðh. einn af þm. þess kjördæmis. Þá sagði hæstv. ráðh. í þessu viðtali:
„Ég tel nauðsynlegt að vinna kerfisbundið að alhliða uppbyggingu í kjördæminu. Mikilvægasta skrefið að því marki er sú áætlun um eflingu byggðar á Norðurlandi, sem unnið er að og verður lokið á þessu ári.“
Ég skal enn fremur taka það fram, að í tilefni af þeim umræðum, sem um þetta urðu á Alþ. bæði í sambandi við fsp. þá, sem ég nefndi, og síðar, nálægt vori, um lántökuheimild stjórnarinnar vegna framkvæmdaáætlunar, óskaði ég eftir því við Efnahagsstofnunina að ég fengi í hendur þær skýrslur, sem sagt var frá, að stofnunin hefði gert. Og ég fékk í hendur einar þrjár slíkar skýrslur á s.l. vori, sem ég mun ekki ræða um hér, en í þeim skýrslum voru ekki till., enda ekki gert ráð fyrir því, engin áætlun gerð, heldur bara skýrslur, og þær fjölluðu um vissa hluta Norðurlands.
Þar sem ekki hefur orðið úr því, sem gert var ráð fyrir í vor af hálfu stjórnarvalda að Norðurlandsáætlun yrði lokið á þessu ári, hef ég ásamt hv. 3. þm. Norðurl. v. leyft mér að bera fram svo hljóðandi fsp., sem prentuð er á þskj. 239:
„Hvenær má vænta framkvæmdaáætlunar þeirrar fyrir Norðurland, sem heitið var í júnímánuði 1965, sbr. skýrslu félmrh. á AIþ. 26. akt. 1966?“