07.02.1968
Sameinað þing: 34. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í D-deild Alþingistíðinda. (3144)
198. mál, framkvæmdaáætlun fyrir Norðurland
Ólafur Jóhannesson:
Herra forseti. Þar sem sá háttur er hér á hafður að ræða tvær fsp. í einu lagi, geri ég ráð fyrir, að ræðutími sé 10 mínútur, ef á þarf að halda. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. fjmrh. fyrir svör hans, svo langt sem þau náðu. Svo vil ég leyfa mér að fagna yfirlýsingu hans um það, að nú mundi verða skipulega og kerfisbundið unnið að Norðurlandsáætlun og henni mundi verða lokið fyrr en seinna á þessu ári.
Það er upphaf þessa máls, að í júní 1965 var gert samkomulag milli verkalýðsfélaganna á Norðurlandi og ríkisstj. Það samkomulag hljóðaði svo, með leyfi forseta:
„Þegar á næsta hausti verði hafizt handa um heildarathugun á atvinnumálum Norðurlands og að þeirri athugun lokinni undirbúin framkvæmdaáætlun, er miði að þeirri eflingu atvinnurekstrar í þessum landshluta að öllu vinnufæru fólki þar verði tryggð viðunandi atvinna. Verði í senn athugað um staðsetningu nýrra atvinnufyrirtækja á Norðurlandi, svo sem í stálskipasmíði, skipaviðgerðum, veiðarfæragerð og fleiri greinum iðnaðar, og kannaður gaumgæfilega hagur núverandi iðnfyrirtækja og leitað úrræða til þess að tryggja framtíð þeirra iðngreina og vöxt. Um athugun þessa og áætlunargerð verði höfð samvinna við Alþýðusamband Norðurlands og samtök sveitarfélaga á Norðurlandi Ríkisstj. mun leggja áherzlu á að afla nauðsynlegs fjármagns til framkvæmda á væntanlegri áætlun, eftir því sem auðið er á hverjum tíma.“
Þannig var þetta samkomulag. Þessu samkomulagi var almennt fagnað á Norðurlandi, vegna þess að atvinnuástandið þar hefur verið þannig, a.m.k. í mínu kjördæmi, að þar hefur verið þörf fyrir atvinnu umbætur, og þess vegna fagnaði fólkið þessu mjög og bjóst við skjótum úrræðum. Þau hafa því miður dregizt á langinn. Eins og hæstv. fjmrh. gerði grein fyrir, svaraði hann með bréfi fsp., sem kom fram á síðasta þingi, en þá gafst ekki tími til að ræða. Þar var því svarað, að það mundi sennilega vera hægt að ganga frá þeirri áætlun, sem átti að liggja til grundvallar sjálfri framkvæmdaáætluninni, á s.l. sumri, eða það segir orðrétt svo í þessu bréfi, með leyfi forseta:
„Er nú unnið að því að ganga frá heildarathugun um Norðurlandið allt á grundveili þeirra gagna og upplýsinga, sem aflað hefur verið, og þeirra athugana, sem gerðar hafa verið á áðurnefndum ferðalögum. Skortur á nægu starfsliði og annir við önnur verkefni valda því, að starfinu miðar hægar áfram en æskilegt hefði verið. Er þó gert ráð fyrir, að skýrslunni verði lokið á næsta sumri“
En þetta hefur því miður ekki tekizt. Það ber að harma.
Það er beðið með eftirvæntingu eftir þessari framkvæmdaáætlun á Norðurlandi. Atvinnuástandið þar er enn þannig, að það er mikil þörf fyrir þessa framkvæmdaáætlun. Við þm. kjördæmisins Norðurl. v., höfum á s.l. hausti og nú eftir áramótin verið á fundum bæjarstjórna á Siglufirði og á Sauðárkrók, og á báðum þessum stöðum var lögð á það megináherzla, að þessari áætlun yrði hraðað. Það er vitaskuld ekki frambærileg ástæða að ekki sé nægilegt starfslið til þess að vinna að þessari áætlun. Það má ekki láta standa á slíku, þegar fjöldi fólks er atvinnulaus og bíður eftir því, að ráðstafanir séu gerðar. Ég vona sem sagt, að nú verði hafizt handa og framkvæmdaáætlunin gerð því að það má ekki dragast, vegna þess að ég hef orðið þess var, að í sumum tilfellum hefur það jafnvel verið notað til þess að drepa á dreif áhugamálum, sem einstakir menn hafa viljað vinna að og koma í framkvæmd heima í byggðarlögunum, og það hefur verið sagt t.d., ef þeir hafa viljað koma á fót einhverju fyrirtæki, það hefur verið sagt við þá, að það þyrfti fyrst að athuga, hvernig þetta kæmi heim við framkvæmdaáætlun. Það má vitaskuld ekki nota framkvæmdaáætlun þannig til þess að tefja framkvæmdir og framtak einstakra manna.
Hæstv. fjmrh, gerði grein fyrir því, hvernig að þessari áætlun mundi verða unnið kerfisbundið nú í sumar. Hann sagði, að númer eitt yrði þróun samgöngumála á Norðurlandi. Í öðru lagi yrði það þróun skólamála og í þriðja lagi athugun á sviði atvinnumála. Vissulega er mikil þörf á því að athuga samgöngumál. sem þó eru sæmileg víðast hvar á Norðurlandi, og skólamál. En það er þó enginn vafi á því, að það, sem menn fyrst og fremst hafa haft í huga í sambandi við Norðurlandsáætlunina eru atvinnumálin. Það er uppbygging atvinnulífsins á þeim stöðum, þar sem atvinnu hefur tilfinnanlega skort að undanförnu, og ég vil segja. að það er algerlega í samræmi við það samkomulag, sem gert var á sinum tíma milli ríkisstj. og verkalýðssamtakanna, að atvinnumálin séu látin sitja í fyrirrúmi, vegna þess að það var höfuðatriðið, að það yrði unnið að þeirri eflingu atvinnurekstrar í þessum landshluta. að öllu vinnufæru fólki þar yrði tryggð viðunandi atvinna.
Það er vissulega réttmæli, sem hv. 11. landsk. þm. sagði, að á ýmsum stöðum á Norðurlandi er fyrir hendi gott og stöðugt vinnuafl. Það vantar nefnilega atvinnu á þessum stöðum. og það vantar atvinnufyrirtæki, og það er að því, sem Norðurlandsáætlun á fyrst og fremst að beinast að mínum dómi. En betra er seint en aldrei. Það er beðið eftir þessari áætlun með miklum áhuga. Það eru allir þm. úr þessu kjördæmi algerlega sammála í þessu máli. Það er allt fólkið á þessu svæði sammála í þessu máll. Það harmar þann drátt, sem á er orðinn, og það skilur ekki þann drátt, sem talinn er stafa af því, að það vantar 1—2 starfsmenn í Efnahagsstofnun.