21.02.1968
Sameinað þing: 40. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 669 í D-deild Alþingistíðinda. (3174)
202. mál, húsaleigugreiðslur ríkisstofnana
Fyrirspyrjandi (Þórarinn Þórarinsson):
Herra forseti. Þessar spurningar eru svo ljósar, að ég álít óþarft að fylgja þeim úr hlaði með nokkrum skýringum. Það er í fyrsta lagi spurt um það, hvaða ríkisstofnanir og ríkisskrifstofur séu í leiguhúsnæði, og í öðru lagi, hvað hver einstök þeirra borgi fyrir leiguna og hverjum hún er greidd. Ég álít, að það sé fróðlegt að fá þetta upplýst, því að það muni sanna réttmæti þeirrar stefnu, að ríkið eigi að keppa að því, að það og stofnanir þess eigi sitt eigið húsnæði.