06.03.1968
Sameinað þing: 43. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 690 í D-deild Alþingistíðinda. (3200)

144. mál, vegabætur og rannsókn á brúarstæði

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég skal gjarnan verða við tilmælum hv. síðasta ræðumanns að fylgjast með því, að n, sem kosin var í fyrra til athugunar á þessu máli, vinni. Það er nú svo, að menn lengir stundum eftir því, að rannsóknum verði lokið, og eru óþolinmóðir að bíða eftir því. En rannsóknina skal fyrst gera, áður en hafizt er handa um framkvæmdir.

Hv. 3. þm. Vesturl. sagði, að það veitti nú ekki af að ýta á samgmrh. og vegagerðina að fylgja eftir því, sem búið væri að samþykkja í hv. Alþ., svo að það yrði gert, og vitnaði í till., sem var samþ. hér 1958 um brúargerð á Borgarfjörð. Það er alls ekki rétt, sem hv. þm. sagði, að vegagerðin eða samgmrh. hafi gleymt þessari till. Það var hafin lítils háttar rannsókn á þessu máli, eftir að till. hafði verið samþ., og það kom í ljós, að þetta var svo umfangsmikið, að það þótti ekki á því stigi málsins ástæða til að verja til þess stórfé, þar sem vitað var, að brú yfir Borgarfjörð yrði ekki byggð á næstu árum.

Viðhorfið hefur vitanlega breytzt á síðustu árum. Framkvæmdir í vegagerð hafa stóraukizt. Brýr hafa verið byggðar víðs vegar á landinu núna á síðustu árum, sem fyrir 10 árum voru litlar vonir til að yrðu byggðar á næsta aldarfjórðungi, og það, sem þótti alls ekki fært fyrir 10 árum, þykir jafnvel fært nú, m.a. vegna aukinnar tækni og vegna þess, að framkvæmdir í vegagerð hafa stóraukizt. En við þetta bætist stórum aukin umferð á Vesturlandsvegi, eins og annars staðar. Við þetta bætist, að nú er talað um það í alvöru að gera varanlegan veg, Vesturlandsveg, og eins og ég sagði hér áðan í fyrri ræðu minni, verður að endurnýja meginhlutann af gamla veginum, sem liggur að Hvítárbrúnni beggja vegna og þar sem það liggur fyrir, að það þarf að endurbyggja þennan veg, er alveg sjálfsagt, að það verði rannsakað, hvort heppilegt er að breyta vegarstæðinu og flytja það neðar. Það er þess vegna kominn tími til þess nú að láta fullnaðarkönnun fara fram á þessu, og þess vegna verður það nú gert.

Ég átti ekki von á því frá hv. 3. þm. Vesturl., að hann héldi því fram hér, að þetta hefði gleymzt, að hér væri um einhvern slóðaskap að ræða. Við höfum oftlega talað um þetta mál. Við höfum báðir gert okkur grein fyrir því, að þótt brú á Borgarfjörð kynni að koma, var alls ekki von á henni á þeim árum, sem liðin eru, síðan till. var samþykkt. Og það líða áreiðanlega nokkur ár enn, þangað til þessi brú verður byggð, m.a. vegna þess, að þetta er mjög dýrt mannvirki og vegagerð að brúnni, og það þarf að afla fjár til þess að þetta megi verða, áður en það verður að veruleika.

Það er í rauninni ekki annað en þetta, sem ég vildi taka fram, hvað þetta snertir, en sem betur fer hafa framkvæmdir aukizt á seinni árum og gefið nýjar vonir um enn auknar framkvæmdir, en 1958 þótti það fjarstæða, að ráðizt yrði í mannvirki eins og það að gera brú á Borgarfjörð, m.a. vegna þess, að þá var allt vegaféð aðeins 80 millj. kr., og jafnvel á því verðlagi, sem var 1958, hefði brúin þá og sú vegagerð, sem að brúnni varð að leggja, kostað það eða meira. Nú, þegar vegaféð hefur verið stórum aukið og ýmsum mannvirkjum hrundið í framkvæmd, sem ekki þótti fært á því tímabili, verða menn vitanlega bjartsýnni en áður og geta jafnvel hugsað sér að ráðast í brúargerð yfir Borgarfjörð, ef það að undangenginni nákvæmri rannsókn verður álitið þjóðhagslega heppilegt.