05.04.1968
Sameinað þing: 48. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 708 í D-deild Alþingistíðinda. (3219)
204. mál, bifreiðaeign ríkisins
Fyrirspyrjandi (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þau svör, sem hann hefur gefið hér. Það hefur komið mjög greinilega í ljós, sem mig raunar grunaði, að hér mundi vera um mjög viðamikið og yfirgripsmikið mál að ræða, þannig að það hefur kostað talsvert erfiði og fyrirhöfn að safna saman þeim upplýsingum, sem hér liggja fyrir. Það kemur í ljós, að ríkið og opinberar stofnanir eiga yfir 500 bifreiðar af ýmsum gerðum, og það er gott að fá þessa skýrslu, þó að ég hefði nú heldur kosið, að hæstv. ráðh. hefði gefið þessar upplýsingar skriflega að nokkru leyti, vegna þess að það er mjög erfitt að ná öllum þessum upplýsingum, þegar það er lesið hér af nokkrum hraða. Og það kemur einnig í ljós, að heildarsöluverð þessara bifreiða eða endursöluverð þessara bifreiða má áætla að sé um 130—150 millj. kr. og einnig að það eru 79 starfsmenn ríkisins, sem fá að því er mér skilst, beinlínis fría bíla, og um notkun þessara bíla gilda ekki fastar reglur, sem settar hafi verið, nema þá mjög ófullkomið. Eins kemur það í ljós, að þessar bifreiðar eru ekki auðkenndar, og auk þess eru 424 starfsmenn, sem fá ýmiss konar bílastyrki með öðrum hætti, sem áætla má, að séu ekki undir 12 millj. kr.
Ég skal fúslega játa það, að þetta efni er stærra en svo og víðfeðmara en það sé hægt á þessu stigi að leggja endanlegt mat á þær upplýsingar, sem hæstv. ráðh. hefur gefið hér. Ég efast ekki um, að þær eru eins fullkomnar og hæstv. ráðh. hefur framast átt kost á að veita á þessu stigi. En á hitt vil ég leyfa mér að benda og minna á sem mína skoðun, að í sambandi við bifreiðaeign ríkissjóðs og bifreiðahlunnindi ýmissa opinberra starfsmanna er nauðsyn að gæta alls hófs og sparnaðar. Ég tel t.d. ákaflega hæpið, að það sé réttmætt og eðlilegt, að ríkið eða opinber fyrirtæki kaupi og reki einkabifreiðar starfsmanna, æðri eða lægri, þ.e. að kjarabætur eða launabætur, sem hæstv. ráðh. minntist á hér áðan, séu veittar í formi slíkra augljósra hlunninda. Mér finnst eðlilegt, að þetta sé tekið til endurskoðunar. Það kann vel að vera, að nauðsynlegt sé, að hið opinbera eigi bifreiðar til afnota fyrir starfsmenn í starfi eða vegna starfs beinlínis. Hitt finnst mér ekki eigi að eiga sér stað, að hið opinbera afhendi yfirleitt einstökum mönnum alger einkaumráð bifreiða hins opinbera. Um notkun slíkra bifreiða verður að setja strangar reglur og fara efstir þeim, og það er ánægjulegt til þess að vita, að hæstv. ráðh. vinnur að því, að slíkar reglur verði settar. Að öðrum kosti getur orðið um misbeitingu réttinda að ræða, sem leiðir til spillingar í opinberu lífi. Það er t.d. sjálfsagt og eðlilegt, að ríkisbifreiðar séu auðkenndar á sama hátt og bifreiðar Reykjavíkurborgar. Slík auðkenning er aðhald að umráðamönnum bifreiðanna um rétta og eðlilega notkun þeirra. Einnig ber hinu opinbera, og þar verður hæstv. ríkisstj. að ganga á undan með góðu fordæmi sínu og með setningu skynsamlegra reglna, að gæta hófs í vali bifreiðategunda, sem það fær starfsmönnum sínum og embættismönnum til umráða. Ég efast um, að slíks hófs sé ætíð gætt, þrátt fyrir góðan vilja hæstv. ráðh., sem ég efast ekki um að persónulega vill gæta alls hófs í slíku, undanfarin ár, að því er hann nú upplýsir. Hið opinbera eða ríkisstj. á ekki að stuðla að neinni tildurmennsku eða hégómaskap í sambandi við bifreiðategundir. Ég er sannfærður um, að oft hefðu embættis- og sýslunarmenn, sem vitað er að hafa mjög frjálslegan umráðarétt yfir opinberum bifreiðum, getað komizt af með ódýrari og íburðarminni farkosti.
Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð, herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir glögg svör hans Mér er það fullkomlega ljóst, að það er erfitt að svara þessu svo ýtarlega sem e.t.v. væri hægt, ef lengri tími ynnist til að vinna það verk. En ég fagna því, að hæstv. ráðh. hefur það í huga að gefa um þetta mál lengri grg. síðar, ef eftir henni yrði leitað. Og ég vona, að hann láti ekki staðar numið við það, sem hann hefur þegar að unnið í þessu máli, og þessar umr. megi m.a. verða til þess, að frekar verði aðhafzt í því að koma skynsamlegu skipulagi á bifreiðaútgerð ríkissjóðs.