05.04.1968
Sameinað þing: 48. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 710 í D-deild Alþingistíðinda. (3221)
204. mál, bifreiðaeign ríkisins
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Mér þykir það mjög leitt, ef mistök hafa orðið í sambandi við þá stofnun, sem hv. þm. veltir forstöðu, og það er sjálfsagt að leiðrétta það. En ég geri ráð fyrir, að þetta stafi af því, að stofnunin hefur bifreið, Taunus station bifreið, árgerð 1964, að ég hygg, sem einhver starfsmaður stofnunarinnar væntanlega hefur til umráða og þá fyrst og fremst náttúrlega í þágu stofnunarinnar. Það er auðvitað svo um margar þessar bifreiðar, sem ég gat um, að það eru ekki eingöngu lúxusbifreiðar. En það er skylt að taka það til greina, ef það er svo, að forstöðumaðurinn hafi engin afnot af þessari bifreið, en það er þá einhver annar starfsmaður sjóðsins, sem hefur bifreiðina til umráða.
Við orð hv. fyrirspyrjanda í hans seinni ræðu hef ég ekkert að athuga. Það var efnislega allt rétt, og ég vil aðeins taka það fram aftur, að þeirri reglu, sem sett var 1965 um, að það yrði gætt sérstaks hófs í kaupum hinna svokölluðu forstjórabifreiða, hygg ég að hafi verið reynt að framfylgja. Það var ákveðið þá að bifreiðar mættu ekki kosta yfir vissa upphæð, um 250 þús. kr. Að vísu er gert ráð fyrir því, að í vissum tilfellum, ef mjög er sótt á um það af hálfu starfsmanns, þá væri honum heimilt að kaupa dýrari bíl, en þá skyldi hann greiða verðmismuninn sjálfur og greiða að hluta til rekstrarkostnað bílsins miðað við það, sem talið væri að hann væri dýrari í rekstri umfram þá bílategund, sem heimilað væri að kaupa. En það er vissulega hárrétt, að það er nauðsynlegt, a.m.k. á fyrsta stigi, að hafa hemil á því, hvers konar bifreiðar eru í gangi, og að það séu hvorki keyptar dýrari bifreiðar né bifreiðar, sem eru dýrari í rekstri en nauðsynlegt er. Það er ég hv. þm. sammála um.
Ég endurtek það að lokum, að ég tel sjálfsagt, þegar niðurstaða er komin í þetta bílarmál, að þá verði samin um það heildargrg. og þá eftir atvikum annaðhvort útbýtt til hv. þm. eða a.m.k. afhent fjvn., til þess að hægt sé að átta sig á hvernig þessi mál standa.