05.04.1968
Sameinað þing: 48. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í D-deild Alþingistíðinda. (3227)
174. mál, kostnaður af Kirkjuþingi, Búnaðarþingi og Fiskiþingi
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Því miður voru svo mikil fagnaðaróp hér úti fyrir húsinu, að ég átti dálítið erfitt með að heyra allt, sem hv. fyrirspyrjandi sagði í ræðu sinni, og ég vona, að hann afsaki þá ef ég tek ekki til meðferðar allt, sem hann vakti athygli á en fyrst og fremst ætla ég að halda mig að fsp.
Í fyrsta lagi er spurt: „Hver hefur verið kostnaður ríkissjóðs síðustu árin af Kirkjuþingi, Búnaðarþingi og Fiskiþingi?“ Og það er þá væntanlega rétt að byrja á Kirkjuþingi.
Ég hef upplýsingar um tvö síðustu Kirkjuþing, sem hafa verið haldin. Þau eru haldin annað hvert ár. 1964 kostaði Kirkjuþing 169. 236,90 kr., svo að allt sé tíundað. Og 1966 kost aði Kirkjuþing 232.065,02 kr.
Kostnaður við þrjú síðustu Fiskiþing, þau eru einnig haldin annað hvert ár, hefur orðið sem hér segir: 1964 290.639 kr., 1966 323.589 kr. og 1968 438.770 kr.
Þá er í þriðja lagi kostnaður við Búnaðarþing, en Búnaðarþing er haldið á hverju ári. 1965 var kostnaður við Búnaðarþing 630.053,27 kr., 1966 886.150,22 kr., 1967 798.494,47 kr. og 1968 839.723,07 kr.
Það mun vera venja með þing þessi, að fulltrúar fá greiddan ferðakostnað og auk þess dagpeninga. Munurinn liggur bæði í tölu þingfulltrúa, ef við getum orðað það svo, og einnig lengd þinganna að sjálfsögðu.
Í öðru lagi er spurt: „Telur ríkisstj. eðlilegt, að ríkissjóður haldi áfram að greiða kostnað af þingum þessum?“ Ég skal játa það, að ég á dálítið erfitt með að svara þessari spurningu fyrir hönd ríkisstj. sem slíkrar, vegna þess að um það hefur ekki verið tekin ákvörðun, enda jafnvel vitað, að um það eru skiptar skoðanir, eins og oft vill verða, þannig að að svo miklu leyti sem ég á að svara þessari spurningu, verð ég að svara henni sem minni persónulegu skoðun.
Ég hef ekki farið dult með það og hef látið það í ljós áður, að ég tel, að Búnaðarþing eigi ekki að vera á hverju ári, heldur annað hvert ár, og í því sé algert ósamræmi. Ég tel einnig vel geta komið til álita að miða framlög til þessara þinga við það, að þau standi vissan tíma og ekki lengur. Það kemur allt til álita. Hitt er svo aftur annað mál, hvort á að fella þessar greiðslur niður eða ekki. Kirkjuþing er á laggirnar sett með lögum frá Alþ., og ég skal ekki segja um það, hvort skoðun manna í því efni kann að vera breytt frá því, er þau lög voru sett. En ég get fúslega játað fyrir mitt leyti, að ég tel ekki endilega sjálfsagt, að það sé eðlilegt, að þetta þing sé haldið, en þá þarf að breyta um það gildandi lögum. Það má aftur á móti að vísu í það vitna, að samkv. okkar stjórnarskrá er gert ráð fyrir því, að þjóðkirkjan njóti forréttinda, þannig að það má segja, að að því leyti sé það ekki óeðlilegt, ef menn á annað borð telja rétt, að slíkt þing sé haldið.
Eins og hv. fyrirspyrjandi sagði sjálfur, eiga bæði hin þingin sér langa sögu. Og það er rétt, að síðan hafa auðvitað orðið margar breytingar í þjóðfélaginu, sem geta ótvírætt valdið því, að ýmsir aðrir aðilar segi: Af hverju á ekki að kosta okkar ráðstefnur, sem síðar hafa komið til, eins og þessa ráðstefnu? Hinu er þó ekki að neita, að þessi þing eru með nokkuð sérstökum hætti, Bæði þessi félög, sem halda þessi þing, eru opinber félög og gegna opinberu hlutverki og eru kostuð algerlega af ríkisfé eða halda uppi starfsemi í þágu þessara tveggja atvinnuvega, landbúnaðar og sjávarútvegs, þannig að þeim er að þessu leyti gefin sérstaða. Þetta eru í rauninni ríkisstofnanir, og það má segja, að þarna komi saman fulltrúaráð þessara stofnana til þessara þinga, þannig að það er vissulega hægt að færa rök fyrir því, að þessi þing eigi að haldast með einhverjum hætti. Það er svo álitamál, hve oft þau á að halda og í hve stórum stíl þau eiga að vera. Það er önnur saga. En ég er ákaflega hræddur um, og það er a.m.k. ekki mín skoðun í dag, að það sé hægt að afnema þessi þing, þó að það sé hægt að setja á þau viss mörk.
Eins og ég áðan sagði, — það er einnig mín persónulega skoðun, sem er ekki endilega víst, að falli saman við skoðun ríkisstj., — að það sé eðlilegt t.d. varðandi Búnaðarþing, að um það gildi sömu reglur og Fiskiþing, að það sé haldið annað hvert ár.