05.04.1968
Sameinað þing: 48. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 716 í D-deild Alþingistíðinda. (3228)
174. mál, kostnaður af Kirkjuþingi, Búnaðarþingi og Fiskiþingi
Fyrirspyrjandi (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. svörin. Þau leiddu í ljós, að kostnaður af þessum þremur þingum, þegar þannig stendur á að þau eru öll haldin sama árið er um 1 1/2 millj. kr. Ég er ekki að leggja til á nokkurn hátt, að þessi þing verði lögð niður. Það, sem ég var að spyrja um, var það, hvort hæstv. ráðh. eða hæstv. ríkisstj. teldi eðlilegt, að sá háttur héldist, að greitt væri úr ríkissjóði ferðakostnaður og dagpeningar fyrir þátttakendur í þessum þingum. Mér er kunnugt um það, að Kirkjuþing er ákveðið með lögum, og ég hafði þann hátt á að beina þessari fsp. til hæstv. ráðh., vegna þess að ég hafði ekki trú á því, að breyting yrði á þessu fyrirkomulagi í tíð núv. stjórnar, nema ríkisstj. sjálf hefði frumkvæði um það, og ég hefði þá bezt trúað hæstv. ráðh. til þess.
Ég verð að endurtaka það, sem ég sagði áðan, að ég tel það algerlega óeðlilegt, miðað við þær breytingar, sem orðið hafa í þjóðfélaginu, að þessi þrjú þing eigi að hafa sérstöðu fram yfir fjölmörg önnur þing, mörg mjög merk, sem haldin eru hér í þjóðfélaginu. Það er ákaflega nauðsynlegt, að þegnarnir bindist samtökum um fjölmörg mál og komi svo saman á þingi um þau efni. En yfirleitt verða menn að standast kostnað sjálfir af þátttöku í slíku þinghaldi, og það tel ég engan veginn óeðlilegt fyrirkomulag. En þá finnst mér, að sömu reglur eigi að gilda um þingin, sem ég nefndi hér áðan. Ríkissjóður getur greitt það fé, sem skynsamlegt er talið, til þeirra stofnana, sem þarna eiga hlut að máli, en almennt þinghald á þeirra vegum tel ég að eigi að vera með svipuðum hætti og annað almennt þinghald á Íslandi. Og ég vil beina mjög eindregið til hæstv. ráðh. að íhuga það, hvort hann vildi ekki hafa að því frumkvæði á vegum ríkisstj., að tekinn verði upp annar háttur á þessu sviði.