15.12.1967
Neðri deild: 42. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í B-deild Alþingistíðinda. (329)
75. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég ætla mér ekki að ræða þá brtt., sem hér hefur komið fram við 3. umr., heldur vildi ég nota tækifærið, áður en mál þetta fer út úr d., til þess að þakka hæstv. ríkisstj. fyrir að hafa flutt a.m.k. 1. gr. þessa frv. hér inn á Alþingi og ekki síður bæði forustumönnum stjórnarandstöðunnar og öðrum hv.
þm. fyrir þær undirtektir, sem þetta mál hefur fengið.
Forustumenn farmanna, bæði yfir- og undirmenn, áttu tal við mig síðast í morgun og báðu mig flytja Alþingi Íslendinga og sérstaklega Nd. Alþ. þakkir sínar fyrir þann skilning, sem þm. hefðu sýnt á þessu sjálfsagða hagsmunamáli þeirra, og ég leyfi mér að gera það hér með.