13.12.1967
Efri deild: 32. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í B-deild Alþingistíðinda. (356)
41. mál, Bjargráðasjóður Íslands
Frsm. (Steinþór Gestsson):
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa ýkja mörg orð um þetta frv. til l. um bjargráðasjóð, sem hér liggur fyrir til 2. umr. Frv. var vísað til heilbr.- og félmn. og hefur hlotið þar þá afgreiðslu, sem greint er frá á þskj. 108. Heilbr.- og félmn. hefur rætt frv. á tveimur fundum og einstakir nm. kynnt sér það og borið það saman við eldri lög um Bjargráðasjóð Íslands. Einnig hefur frv. verið sent Búnaðarfélagi Íslands og Stéttarsambandi bænda til umsagnar og lágu þær umsagnir fyrir n., þegar málið kom til afgreiðslu þar að síðustu.
Eins og tekið var fram af hæstv. félmrh., þegar hann lagði þetta frv. fram hér í hv. Ed., er höfuðbreytingin frá eldri l. í því fólgin, að nú er sett á stofn og gerð virk sérstök deild, svokölluð afurðatjónadeild, til hjálpar bændum, sem verða fyrir tilfinnanlegu uppskerutjóni vegna grasbrests og óþurrka og afurðatjóni á nautgripum og sauðfé af völdum alvarlegra smitsjúkdóma.
Í aths. og skýringum með frv. er að vísu tilgreint, að 4. gr. geri ráð fyrir því, að tekjur bjargráðasjóðs verði tvöfaldaðar, en þetta stenzt ekki. Þetta hefur aðeins fallið niður að afmá úr skýringatextanum, þegar frv. var prentað að nýju, því að þessi tekjuöflun hefur verið framkvæmd áður, eins og sést þegar lög um bjargráðasjóð eru athuguð. En ég vil aðeins gera stuttlega grein fyrir þeim umsögnum, sem borizt höfðu til heilbr.- og félmn. frá Búnaðarfélagi Íslands og Stéttarsambandi bænda um þetta efni.
Stéttarsamband bænda mælir með samþykkt frv. og telur afurðatjóns- og uppskerutryggingu landbúnaðinum mjög nauðsynlega. Hins vegar tekur stjórn stéttarsambandsins það fram, að hún hefði talið eðlilegt, að til greina hefðu verið teknar till., sem búnaðarþing 1966 gerði um breytingar á þessu frv., en getur þess þó í niðurlagi bréfsins, að sennilega færu þau ákvæði, sem þar eru tekin fram og eru nánast sagt skýringarákvæði og með skarpari ákvæðum heldur en l. gera ráð fyrir, betur í reglugerð, eins og segir hér í niðurlagi umsagnar stéttarsambandsins:
„Búnaðarþing 1966 gerði till. til breytinga á frv. í þessa átt, þ.e. þá átt að taka frekar til um tjónabætur. Vera má, að betur henti að hafa þær reglur í reglugerð, en þær verða þó að eiga sér stuðning í l. sjálfum.“
Búnaðarfélag Íslands kemst mjög að sömu skoðun. Það bendir á þær breytingar, sem búnaðarþing 1966 lagði til, að gerðar yrðu á frv. Segir raunar, að vissar lagagr. nú í þessu frv. séu eðlilegri og til bóta frá fyrra frv., og er þar sérstaklega um að ræða 4. gr. og 8. gr., sem tekur til tekjuöflunar fyrir afurðatjónadeildina. Hins vegar er stigið á það nokkuð fast í bréfi Búnaðarfélagsins, að 12. gr. mundi vera heppilegar orðuð á þann hátt, sem búnaðarþing 1966 lagði til, og sama máli er að gegna um 15. og 16. gr. Við höfum að sjálfsögðu kynnt okkur þetta og ég verð að telja það mína skoðun, að mér sýnist, að það sé miklu eðlilegra að skipa þessum málum með reglugerðarákvæðum heldur en fara að þeim breytingum, sem búnaðarþing gerir ráð fyrir með sínum till., og ég hygg, að þeir, sem þessarar afurðatjónadeildar eiga að njóta, þurfi ekki að óttast, að þeirra hagur verði fyrir borð borinn, þó að þessi háttur yrði á hafður, því að í 16. gr. frv. þess, sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir því, að „í reglugerð, er bjargráðastjórn semur og staðfest er af ráðh., skal setja nánari reglur um rekstur sjóðsins og ákvæði um lán og bætur úr honum, þ. á m. ákvæði um greiðslu dráttarvaxta, ef vanskil verða. Skal leita tillagna Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda um þau atriði, er varða afurðatjónadeild landbúnaðarins.“
Þetta hygg ég, að sé nægilega skýrt orðað til þess, að það sé talið sjálfsagt af löggjafanum að hafa bæði Búnaðarfélag Íslands og stéttarsambandið með í ráðum, þegar þessi reglugerð verður sett.
Ég mun því, herra forseti, leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt.