19.12.1967
Neðri deild: 48. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 381 í B-deild Alþingistíðinda. (364)

41. mál, Bjargráðasjóður Íslands

Frsm. (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er komið frá hv. Ed., hlaut þar athugun heilbr.- og félmn. þeirrar d. og skilaði n. sameiginlegu áliti, en einstaka nm. áskildu sér þó rétt til að flytja eða fylgja brtt., sem fram kynnu að koma. Einnig fór svo í heilbr.- og félmn. þessarar hv. d., að n. hefur skilað sameiginlegu áliti og hafa einstaka nm. þar einnig áskilið sér rétt til að flytja eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma.

Frv. gerir ráð fyrir þeirri breytingu aðallega á gildandi lögum um bjargráðasjóð, að sett verði á stofn hjá sjóðnum ný deild, svo kölluð afurðatjónadeild, sbr. 2. gr. frv. Hlutverk þessarar deildar er að aðstoða bændur, sem verða fyrir tilfinnanlegu uppskerutjóni vegna grasbrests og óþurrka og afurðatjóni á nautgripum og sauðfé af völdum alvarlegra smitsjúkdóma. Er gert ráð fyrir, að til þessarar deildar renni 0.25% gjald af söluvörum landbúnaðarins samkv. 2. gr. l. nr. 38 frá 1945, og komi einnig jafnhátt framlag úr ríkissjóði þar á móti. Heilbr.- og félmn. hv. Ed. sendi frv. tveim aðilum til umsagnar, Stéttarsambandi bænda og Búnaðarfélagi Íslands, og bárust n. svör og umsögn frá báðum þessum aðilum og mæla þeir út af fyrir sig báðir með samþykkt frv., en benda þó á, að þeir hefðu talið betra að hafa ýmis ákvæði varðandi afurðatjónadeildina beint í l., en ekki í reglugerð eins og frv. gerir ráð fyrir. Umsögn Stéttarsambands bænda að þessu leyti hljóðar þannig:

„Stjórnin mælir með samþykkt frv. og telur afurðatjóns- og uppskerutryggingu landbúnaðarins mjög nauðsynlega.“

Og niðurstaðan í bréfi Búnaðarfélags Íslands er þessi:

„Að lokum skal fram tekið, að Búnaðarfélag Íslands mælir eindregið með samþykkt frv. um bjargráðasjóð, þótt það telji æskilegt, að felldar verði inn í það þær brtt. búnaðarþings, sem getið er hér að framan og taldar eru til bóta.“

Ég tel, að það komi greinilega fram, að báðir þessir aðilar telja frv. til bóta og mæla með því, þó að það komi hins vegar einnig fram í þeirra áliti, að þeir hefðu frekar óskað þess, að ýmis ákvæði varðandi afurðatjónadeildina hefðu verið beint í l., en ekki í reglugerð, en virðast þó sætta sig við það, a.m.k. Stéttarsamband bænda, því að það segir um þetta:

„Búnaðarþing 1966 gerði till. til breytinga á frv. í þessa átt. Vera má, að betur henti að hafa reglur í reglugerð, en þær verða þó að eiga sér stuðning í lögunum sjálfum.“

Ég tel ekki ástæðu til að hafa um þetta lengri framsögu, en heilbr.- og félmn. hefur í sameinuðu áliti lagt til, að frv. yrði samþykkt óbreytt.