26.10.1967
Efri deild: 8. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 383 í B-deild Alþingistíðinda. (370)
23. mál, almannatryggingar
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Með frv. því, sem hér liggur fyrir, er lagt til, að ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla, sem félmrn. hefur hingað til annazt, verði lögð niður. Þó verða fávitar, sem dveljast á hælum og dagvistarheimilum fyrir vangefna, áfram á ríkisframfærslu, sbr. l. nr. 53 frá 22. apríl 1967 um fávitastofnanir.
Frv. gerir þó að sjálfsögðu ráð fyrir því, að þeir, sem verið hafa á ríkisframfærslu, njóti framvegis ekki minni aðstoðar af hálfu hins opinbera en þeir hafa gert til þessa. Hér er nánast um hagræðingaratriði að ræða.
Með frv. þessu er enn lagt til, að hlutverk það, sem ríkisframfærslan hefur nú, verði fengið í hendur héraðssamlögum, sjúkrasamlögum og sjúkratryggingadeild Tryggingastofnunar ríkisins, og aðstoð við sjúka og örkumla, hverrar tegundar, sem sjúkdómurinn er, verði veitt á vegum eins og sama kerfis.
Með frv. þessu er sem sagt lagt til, að sjúkratryggingarnar annist alla aðstoð, sem veitt er af þjóðfélagsins hálfu í bótaformi vegna sjúkra manna. Kostnaður við sjúkrahúss- og hælisvist er nú tryggður af þrem aðilum.
1) Sé um að ræða ellikröm eða alvarlega, langvinna sjúkdóma, tryggir ríkisframfærslan kostnaðinn, þó að undanskilinni sjúkrahúsvist fyrstu 5 vikurnar, sem kostaðar eru aðallega af sjúkrasamlögum, en að litlum hluta af héraðssamlögum, þar sem þau eru, eða að jafnaði síðustu 5 dagana af þessum 5 vikum.
2) Vegna annarra sjúkdóma en þeirra, sem nú var getið, tryggja sjúkrasamlög kaupstaðanna kostnaðinn, og sjúkrasamlög, sem eru í héraðssamlögum, greiða þennan kostnað einnig, en þó aðeins í 30 daga vegna hvers samlagsmanns á hverjum 12 mánuðum.
3) Héraðssamlög tryggja kostnað vegna sjúkrahúsvistar, sem varir lengur en 30 daga fyrir hvern samlagsmann á hverjum 12 mánuðum, þó að sjálfsögðu ekki kostnað, sem ríkisframfærslan tryggir skv. því, sem áður er sagt.
Breyting sú, sem frv. gerir ráð fyrir, er því í stuttu máli sú, að sjúkrasamlög og héraðssamlög, þar sem þau eru, tryggja samlagsmönnum sjúkrahúsvist, sem hefur varað allt að 12 mánuðum undanfarin 2 ár, að sjúkratryggingadeild Tryggingastofnunar ríkisins tryggir samlagsmönnum sjúkrasamlaganna víst á sjúkrahúsum, þegar skyldutryggingu sjúkrasamlaga og héraðssamlaga lýkur hverju sinni, svo og vist á hælum og stofnunum, öðrum en sjúkrahúsum, sem nauðsynleg er talin vegna ellikramar eða langvinns sjúkdóms.
Af þessu leiðir, að sjúkrasamlög, sem eru í héraðssamlögum, tryggja ekki sjúkrahúsvistir, heldur verða þær tryggðar hjá héraðssamlögun- um og sjúkratryggingadeild samkvæmt framansögðu. Í öðru lagi verður sú breyting á sjúkratryggingadeild stofnunarinnar, að hún hefur til þessa aðeins haft umsjón og yfirstjórn sjúkratrygginganna, en tekst nú á hendur tryggingu vistar á stofnunum, sem sjúkrasamlögin taka ekki til, svo sem áður var lýst.
Með ákvæðum frv. um hluttöku ríkissjóða, sveitarfélaganna og hinna tryggðu í byrðum vegna sjúkratrygginganna er að því stefnt, að
þær haggist sem minnst frá því, sem verið hefur, svo sem nánari grein er gerð fyrir í aths. frv. við þær gr. í frv., sem um þetta efni fjalla.
Á sínum tíma var ríkisframfærslan sett á fót til þess fyrst og fremst að vinna bug á berklaveiki. Síðan var verksviðið stækkað, vegna þess að sjúkratryggingar voru annaðhvort engar eða alveg ófullnægjandi. Í 3. kafla l. nr. 26 frá 1936, um alþýðutryggingar, var gert ráð fyrir sjúkratryggingum. Þá var lögákveðið, að sjúkrasamlag skyldi vera í hverjum kaupstað. Í hreppunum átti að stofna sjúkrasamlög, ef meiri hluti þeirra, sem kosningarrétt höfðu í málefnum hreppanna, óskaði þess.
Það er fyrst með l. nr. 122 frá 28. des. 1950, að sjúkrasamlög voru lögboðin um land allt. Skv. þeim lögum skyldu allir samlagsmenn njóta réttinda frá 1. okt. 1951, enda þótt samlagsstofnun hafi eigi verið ákveðin með atkvgr., þegar lögin öðluðust gildi. Má því segja, að sett hafi þá verið á fót sjúkratryggingakerfi, sem tók til landsins alls. Við þessa breytingu varð þó engin önnur breyting á ríkisframfærslu sjúkra manna og örkumla en sú, að kostnaður vegna sjúkrahúsvistar fyrstu 5 vikurnar, sem sjúkrasamlögin tryggðu, var ekki greiddur af ríkisframfærslunni.
Þegar þess er gætt, að þjóðfélagsleg aðstoð var lögfest almennt til þeirra sjúklinga, sem lágu á sjúkrahúsum, annaðhvort af sjúkrasamlögum eða ríkisframfærslu, má það sýnast undarlegt að skipta sjúkrahúskostnaði á milli tveggja stofnana, annars vegar sjúkratrygginganna á vegum almannatrygginga og hins vegar ríkisframfærslu sem sérstakri deild í rn. Með hliðsjón af þróun læknisfræðinnar undanfarna áratugi, verður sú tilhögun að skipta sjúklingum á milli tveggja kerfa, eftir tegundum sjúkdóma, einnig að teljast úrelt orðin. Smæð flestra sjúkrasamlaganna í landinu hefur hindrað það, að hér kæmist á fót heilsteypt kerfi sjúkratrygginga. Með því að fela héraðssamlögunum og sjúkrasamlögum kaupstaða tryggingu sjúkrahúsvistar allt að 12 mánuðum á 2 árum, eins og lagt er til í frv., er þessari hindrun að verulegu leyti rutt úr vegi. Með þessum hætti er dreifing áhættunnar vegna sjúkrahúsvistar aukin svo, að ætla verður nægjanlegt í flestum tilvikum. Þó þykir ekki varlegt að láta hér við sitja, þar eð nokkur héraðssamlög og sum sjúkrasamlög kaupstaða eru svo fámenn, að byrðar vegna þeirrar sjúkrahúsvistar, sem frv. gerir ráð fyrir, að þau beri, geta auðveldlega reynzt þeim um megn. Í frv. er því gert ráð fyrir, að sjúkratryggingadeild veiti aðstoð þeim sjúkrasamlögum og héraðssamlögum, sem verða fyrir óeðlilega miklum sjúkrakostnaði.
Lagt er til, að frv. þetta, ef að lögum verður, öðlist gildi nú um næstu áramót eða frá 1. jan. 1968.
Það liggur í augum uppi, að breyting sú, sem frv. hefur í för með sér, krefst nokkurs undirbúnings hjá Tryggingastofnun ríkisins, og ég legg þess vegna áherzlu á, að frv. fái svo fljóta afgreiðslu hér á Alþingi, sem kostur er á.
Ég tel ekki þörf á því, herra forseti, að fjalla um einstakar greinar frv. eða skýra þær nánar en gert er í aths., sem frv. fylgja, enda eru þær flestar mjög faglegs eðlis, en legg á það áherzlu, að n., sem málið fær til meðferðar, hraði svo störfum sínum sem kostur er, með hliðsjón af því, sem ég hef nú þegar greint.
Að lokum vildi ég, herra forseti, gera það að till. minni, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.