11.12.1967
Sameinað þing: 20. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í B-deild Alþingistíðinda. (434)

1. mál, fjárlög 1968

Frsm. meiri hl. (Jón Árnason):

Herra forseti. Fjvn. hóf störf sín hinn 16. okt. að þessu sinni, en alls hefur n. rætt fjárlagafrv. á 33 fundum. Svo sem venjulegt er, hefur n. við athugun sína og afgreiðslu á fjárlagafrv. átt viðtöl við fjölmarga forstöðumenn hinna ýmsu ríkisstofnana, sem veitt er fé til á fjárl., fengið hjá þeim upplýsingar um rekstur viðkomandi stofnana og annað, sem n. taldi máli skipta varðandi afgreiðslu fjárlagafrv.

Fjárlagafrv. það, sem hér um ræðir, er annað í röðinni, sem samið er af þeirri fjárlaga- og hagsýslustofnun, sem sett var á stofn innan fjmrn. á síðasta ári. Hér er hins vegar um fyrstu fjárlög að ræða, sem samin eru í samræmi við hin nýju lög um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárl. Er því að sjálfsögðu nokkur fyrirhöfn að þessu sinni að gera sér fulla grein fyrir breytingum, sem átt hafa sér stað milli ára, og bera niðurstöður þeirra saman. Þegar á næsta ári verður auðveldara með allan samanburð, þegar nýtt fjárlagafrv. verður lagt fram og þá í sama formi.

Í þessu fjárlagafrv. er að finna margvíslegan fróðleik og upplýsingar um heildarríkisbúskapinn umfram það, sem áður hefur átt sér stað, og er nú m.a. að finna heildaryfirlit yfir ýmsa tekjustofna, sem ráðstafað er til sérstakra þarfa, en hljóta ekki afgreiðslu gegnum fjárl. og á sama hátt og aðrir tekjustofnar ríkissjóðs. Ég geri ráð fyrir, að þetta yfirlit sé mörgum alþm. nýr fróðleikur. Enda þótt hér sé í öllum tilfellum um hin þörfustu málefni að ræða, hygg ég, að menn geti verið sammála um eitt, og það er, að nokkurs handahófs hafi gætt varðandi áætlanir um hugsanlega tekjumöguleika hinna ýmsu tekjustofna, þegar þeir voru ákveðnir og verkefni valin. Í heild nema skattar þessir um 440 millj. kr., þegar frá eru dregnir skattar til Tryggingastofnunar ríkisins og Vegasjóðs, en þeir eru samtals að upphæð 780 millj. kr. Ég hygg, að hér sé um málefni að ræða, sem Alþ. hlýtur að taka til endurskoðunar, áður en langt um líður.

Við athugun sína á fjárlagafrv. hefur n. notið góðrar aðstoðar hagsýslustjóra, Gísla Blöndals, og einnig hagsýslustofnunarinnar, en þetta hvort tveggja hefur öðru fremur auðveldað störf n. og gert það mögulegt, sem nú horfir, að fjárlög verði afgreidd í tæka tíð fyrir venjulegt þinghlé fyrir jól. Ég vil því nú nota tækifærið og þakka þessum aðilum fyrir gott samstarf og veitta aðstoð við afgreiðslu málsins, um leið og ég þakka nm. öllum fyrir sérstaklega gott samstarf og vel unnin störf. Ég vænti þess, að enda þótt afgreiðsla fjárlagafrv. af hendi meiri hl. hafi skipazt nokkuð á annan veg en fulltrúar minni hl. hefðu kosið, telji þeir sig ekki hafa verið órétti beitta í sambandi við vinnubrögð í n. eða afgreiðslu málsins í heild.

Eins og fram kemur í nál. um fjárlagafrv. náðist ekki samstaða innan n. um afgreiðslu málsins, enda hefur minni hl. skilað sérstöku áliti. Það skal þó tekið fram, sem að er vikið í nál. meiri hl., að minni hl. stendur einnig að samþykkt flestra þeirra till., sem gerðar hafa verið, að öðru leyti en því, sem er bein afleiðing gengislækkunarinnar.

Þegar fjárlagafrv. var lagt fram á Alþ., var því lýst yfir af hendi ríkisstj., að hún mundi jafnhliða leggja fram frv. um sérstakar efnahagsráðstafanir, sem gera þyrfti vegna erfiðleika atvinnuveganna samfara minnkandi þjóðartekjum. Skyldi miða þær ráðstafanir við það, að sjávarútvegurinn nyti sömu aðstoðar af hendi hins opinbera og átt hefur sér stað á yfirstandandi ári. Til þess að svo mætti verða, voru útgjöld vegna sjávarútvegsins í fjárlagafrv. hækkuð um 200 millj. kr., en það er, svo sem kunnugt er, jafnhá upphæð og ákveðið var í ársbyrjun að verja til sjávarútvegsins af tekjuafgangi ríkissjóðs árið 1966. Til viðbótar því voru svo í fjárl. yfirstandandi árs til aðstoðar sjávarútveginum 80 millj. kr., svokallað hagræðingarfé.

Þegar svo til þess kom 24. nóv., að gengi ísl. kr. var lækkað, var augljóst mál, að ný viðhorf höfðu skapazt varðandi afgreiðslu fjárlagafrv. Eins og brtt. meiri hl. n. bera með sér, hefur átt sér stað alger umreikningur á öllum þeim liðum fjárlagafrv., sem gengislækkunin hefur áhrif á. Við þá endurskoðun hefur í flestum tilfellum verið stuðzt við þá reglu, að kaupgjald er miðað við hina nýju vísitölu, sem tók gildi 1. des. s.l. og hækkar því um 3,39%. Við ákvörðun um viðhaldskostnað hefur verið lagt til grundvallar, að 60% af kostnaðinum séu vegna launa og 40% vegna annars. Með hliðsjón af því hefur viðhaldskostnaður verið hækkaður um 10%. Önnur rekstrargjöld hækka hins vegar um 20%. Vextir og afborganir af lánum breytast þannig, að af erlendum lánum nemur hækkunin 32,6%, en af innlendum verðtryggðum lánum nemur hækkunin 14,3%. Á innlendum lánum óverðtryggðum er ekki um breytingar að ræða. Varðandi námslán eru þau hækkuð miðað við aukinn kostnað í hverju landi vegna gengislækkunarinnar, en þó þannig, að frá er dregið 1 millj. 860 þús. kr., sem ákveðið var til sérstakrar ráðstöfunar vegna hugsaðs farmiðaskatts, en nú er ákveðið, að felldur verði niður.

Samkv. brtt. meiri hl. fjvn. er nú gert ráð fyrir hækkun útgjalda hjá hinum einstöku rn. og stofnunum vegna gengisbreytingarinnar og vísitöluhækkananna 1. des. samtals að upphæð 149 millj. 944 þús. kr. Upphæðin skiptist þannig milli hinna einstöku rn. og stofnana:

Æðsta stjórn landsins hækkar um 3 millj. 961 þús. eða um 9,3%. Forsrn. og menntmrn. hækkar um 29 millj. 198 þús. eða um 3,3%. Utanrrn. hækkar tiltölulega mest, en það er vegna erlends kostnaðar, og nemur hækkunin 16 millj. 433 þús. kr. eða um 22%. Atvmrn. hækkar um 15 millj. 133 þús. kr. eða um 1,4%. Dómsmrn. og kirkjumrn. hækkar um 50 millj. 771 þús. kr. eða um 7,8%. Félmrn. hækkar um 1 millj. 281 þús. kr., sem er um 0,1%, en þá er eftir að ákveða hækkun til Tryggingastofnunar ríkisins vegna vísitöluuppbótar, sem gera má ráð fyrir, að verði ekki undir 20 millj. kr. Samg.- og iðnmrn. hækkar um 12 millj. 302 þús. eða um 1,9%. Viðskmrn. hækkar um 892 þús., sem er um 0,9%. Hagstofa Íslands, þar nemur hækkunin 687 þús. Og vegna ríkisendurskoðunarinnar nemur hækkunin 469 þús. eða um 6%. Vextir og afborganir af lánum hækka hins vegar um 6 millj. 710 þús., sem er 16,3% hækkun frá því, sem er í fjárlagafrv.

Til viðbótar þessum hækkunum koma svo ýmsar brtt., sem meiri hl. n. hefur talið óhjákvæmilegt að flytja. Er þar um að ræða nauðsynlegar leiðréttingar eða fjárveitingar til stofnana og einstaklinga, sem að mati n. varð ekki komizt hjá að taka nokkurt tillit til. Um þessar till. er það að segja, eins og ég hef áður um getið, að um þær er a.m.k. flestar samstaða innan n., þó að þær séu af ástæðum, sem ég hef áður skýrt frá, fluttar af meiri hl. einungis.

Því miður hefur fjvn. ekki séð sér fært nema að mjög takmörkuðu leyti að verða við beiðnum um aukna fjárstyrki, sem til hennar hafa borizt frá fjölmörgum samtökum og einstaklingum. Að verulegu leyti er hér um málefni að ræða, sem horfa til gagns fyrir samfélagið, en allt fyrir það verður ekki hjá því komizt að horfast í augu við þá staðreynd, að ekki má til þess koma, að fjárlagaboginn verði of spenntur og bresti undan ofþenslu vegna þess að þjóðin veiti sér meiri lífsþægindi en efni standa til. Enn hefur n. til athugunar nokkur slík erindi, sem hún mun taka til endanlegrar afgreiðslu fyrir 3. umr. málsins.

Þá hefur, eins og fram kemur í nál. meiri hl., ekki unnizt tími til að ljúka að fullu afgreiðslu nokkurra málaflokka og bíða þeir afgreiðslu til 3. umr. Eru það m.a. framlög til nýrra skólabygginga og kennarabústaða, framlög til hafnabygginga, hækkun á framlagi til Tryggingastofnunar ríkisins vegna hækkaðrar vísitölu, enn fremur vegna eftirlauna, heiðursstyrkja o.fl. Þá hefur ekki enn unnizt tími til þess að kanna til hlítar, hvaða áhrif gengislækkunin hefur á hina ýmsu tekjuliði fjárlagafrv. Að þeirri athugun er nú unnið, og munu niðurstöður þeirrar athugunar liggja fyrir við 3. umr. málsins. Þá mun samvn. samgm. skila till. um styrki til flóabáta og vöruflutninga á sama hátt og tíðkazt hefur. Munu þær till. liggja fyrir við 3. umr. málsins.

Ég mun þá skýra nokkru nánar einstakar brtt. frá meiri hl. n., sem liggja fyrir til afgreiðslu við þessa umr. og meiri hl. n. hefur leyft sér að flytja á tveim þskj., þ.e. þskj. 110 og 122. Ég mun þá fyrst víkja að gjaldabálki frv.

Varðandi brtt. meiri hl. n., sem snerta eingöngu þá reikningslegu endurskoðun, sem átt hefur sér stað á öllum greinum frv., vísa ég til þess, sem ég hef áður sagt þar um, og koma þá fyrst brtt., sem falla undir forsrn. og menntmrn.

Lagt er til að hækka launalið Tilraunastöðvar háskólans í meinafræði á Keldum um 153 þús. kr. Þessi liður var vanáætlaður í fjárlagafrv. sem svarar launum einnar aðstoðarstúlku.

Undanfarin tvö ár hefur Rannsóknaráð ríkisins unnið að athugun á sjóefnavinnslu. Í bréfi frá framkvæmdanefnd Rannsóknaráðs til menntmrn., dags. 18. okt. s.l., segir m.a. svo um þessar athuganir, með leyfi forseta:

„Allar þær frumrannsóknir, sem framkvæmdar hafa verið, benda ótvírætt til þess, að vinnsla efna úr sjó með notkun jarðhita, raforku og jafnvel kulda jöklanna geti orðið álitleg atvinnugrein hér á landi.“

Í bréfinu segir einnig, að á s.l. sumri hafi verið leitað til Sameinuðu þjóðanna um sérfræðilega aðstoð í þessu máli. Varð það til þess að þær sendu hingað til lands sérfræðing, sem kom í júlímánuði s.l. Hefur skýrsla hans nú borizt hingað til lands; en þar leggur hann til, að gerð verði ýtarleg rannsókn á sjóefnavinnslu eftir þrem leiðum og þó aðallega tveim. Gerir hann ráð fyrir, að slík rannsókn mundi kosta 25–30 millj. kr., en leggur jafnframt til, að Sameinuðu þjóðirnar styrki þá athugun að verulegu leyti. Framkvæmdanefnd Rannsóknaráðsins er ljóst, að jafnvel þótt veruleg aðstoð fengist frá Sameinuðu þjóðunum, mundi kostnaður okkar Íslendinga af slíkri athugun verða mikill. Fyrir þá sök telur n. nauðsynlegt að athuga vandlega, bæði tæknilega og hagfræðilega, allar þær till., sem nú liggja fyrir, áður en næsta skref í málinu er stigið. Til þeirrar framhaldsrannsóknar hefur framkvæmdanefndin farið fram á 500 þús. kr. fjárveitingu, og er lagt til, að við þeirri beiðni verði orðið.

Þá er lagt til að auka fjárveitingar til Kennaraskólans um 98 þús. kr. á vaxtalið og um 339 þús. kr. á liðnum lánahreyfingar út. Hafði þetta fallið niður af vangá við gerð fjárlagafrv.

Lagt er til að taka upp 60 þús. kr. fjárveitingu til skíðakennslu í skólum, 30 þús. á barnaskólastigi og 30 þús. á gagnfræðaskólastigi. Undanfarin 10 ár hefur verið veitt fé á fjárlögum til styrktar skíðaiðkunum nemenda. Hefur það verið notað til að greiða hluta kostnaðar við skíðakennsluna, skíðaferðir og viðlegu í skíðaskálum. Ætlazt er til, að þessum 60 þús. kr. sé varið til skíðakennslu.

Á yfirstandandi ári var tekið í notkun fyrir verknámsskóla iðnaðarins nýtt húsnæði í húsakynnum Landssmiðjunnar í Reykjavík. Til þess að mæta heildarkostnaði vegna þessa vantaði 4 millj. 485 þús. kr., 1 millj. 315 þús. vegna stofnkostnaðar og 3 millj. 175 þús. vegna rekstrar. Upphæðin skiptist að jöfnu milli Reykjavíkurborgar og ríkis. Er því lagt til, að veittar verði 2 millj. 243 þús. kr. vegna þessa.

Launaliður Héraðsskólans í Reykjanesi hækkar um 166 þús. kr. eða sem nemur launum eins kennara. Upphæð þessi var vanáætluð.

Í fjárl. undanfarinna ára hefur fé verið veitt til greiðslu á launum hjúkrunarkonu við skólana á Laugarvatni. Vegna mistaka hefur fjárveiting í þessu skyni fallið niður í fjárlagafrv., og er lagt til, að hún verði upp tekin og að launaliður Héraðsskólans á Laugarvatni hækki sem því nemur eða um 160 þús. kr.

Þá er lagt til, að 1 millj. kr. fjárveiting til skólaheimilisins Bjargs falli niður úr fjárlagafrv. Er það með hliðsjón af því, að starfsemi þessi hefur verið lögð niður.

Fjárveiting til Íþróttasambands Íslands hækkar um 50 þús. kr. Með því verður fjárveiting til sambandsins jafnhá því, sem hún var á yfirstandandi ári.

Þá er lagt til, að framlög til styrktar íslenzkum námsmönnum hækki sem hér segir frá fjárlagafrv.: Til styrktar íslenzkum námsmönnum 1 millj. 986 þús. Til framhaldsnáms iðnaðarmanna erlendis um 100 þús. Er hér m.ö.o. lagt til að hækka námslán og námsstyrki til íslenzkra námsmanna erlendis sem nemur gengisfellingunni, en hins vegar hefur komið til frádráttar, að búið var að gera ráð fyrir fjárveitingu til endurgreiðslu á farmiðaskatti til námsmanna, svo sem ég hef áður skýrt frá.

Lagt er til að hækka fjárveitingar til lektora í íslenzku við erlenda háskóla um 65 þús. umfram þær breytingar, sem leiðir af gengisbreytingunni. Er það vegna launa lektors í íslenzku og íslenzkum bókmenntum við norrænudeild háskólans í Normandí. Á s.l. ári bauðst háskóli þessi til þess að ráða til sín lektor í íslenzkum greinum gegn því, að nokkur þóknun kæmi á móti þeim launagreiðslum, sem skólinn sjálfur innir af hendi. Er hér lagt til, að á það verði fallizt.

Lagt er til, að framlag til Norræna hússins í Reykjavík sé hækkað um 375 þús. kr., þar sem það kom í ljós við endurskoðun á kostnaðaráætlun þess, að hún hafði verið vanáætluð um þessa upphæð. Kostnaðarverð Norræna hússins fullbúins er talið, að verði um 38 millj. kr. Hlutur Íslands í byggingunni er 20%. Hins vegar verður þátttaka Íslendinga ekki nema 1% í rekstrarkostnaði hússins, en þar er fólksfjöldi Norðurlandanna lagður til grundvallar.

Launaliður Landsbókasafnsins er hækkaður í till. meiri hl. n. um 40 þús. kr. Er það vegna aðstoðar á myndastofu, til skrásetningar bréfasafna í handritadeild o.fl. Þá hækka önnur rekstrargjöld Landsbókasafnsins um 50 þús. kr.

Lagt er til að hækka launalið Þjóðminjasafnsins sem svarar hálfum safnvarðarlaunum, sem eru í 20. launaflokki. Veftafræðingur safnsins, frú Elsa E. Guðjónsson, hefur haft hálft starf, en þjóðminjavörður, Kristján Eldjárn, telur safninu mjög mikið hagsmunamál, að starf hennar verði gert að fullu starfi.

Í fjárlagafrv. eru framlög til tónlistarskóla áætluð 5 millj. kr. Var þar um bráðabirgðatölu að ræða, þar sem menntmrn. höfðu ekki borizt rekstraráætlanir skólanna fyrir árið 1968, þegar frv. var samið. Í bréfi rn., dags. 28. okt. s.l., eru nýjar till. þess efnis, að fjárveiting til tónlistarskóla hækki um 700 þús. kr. Er þar stuðzt við lög nr. 12 1963, um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla. Í samræmi við það hefur fjvn. lagt til, að þessi fjárveiting verði hækkuð um 700 þús. kr., en af þeirri fjárveitingu renna 200 þús. kr. til þriggja nýrra skóla: í Borgarfjarðarog Mýrasýslu, á Patreksfirði og á Seyðisfirði. Helztu hækkanir til eldri skóla eru til tónlistarskólanna í Reykjavík, Akranesi, Akureyri, Hafnarfirði, Ísafirði, Keflavík og á Siglufirði. Í bréfi menntmrn. segir svo um þessar hækkanir, með leyfi forseta:

„Hækkun á styrk til Tónlistarskólans í Reykjavík stafar af því, að einn af kennurum skólans, Jón Þórarinsson, verður í orlofi skólaárið 1967–1968. Hækkanir til annarra skóla hér að framan eru vegna aukinnar starfsemi skólanna, aðallega vegna fjölgunar nemenda. Skólar þessir eru meðal hinna elztu og fjölmennustu, en hafa lengst af búið við þröngan kost og eru nú í vaxandi mæli að leitast við að svara þeim kröfum, sem til þeirra eru gerðar. Hækkanir til annarra skóla eru smávægilegar.“

Þá skal þess getið, að af fjárveitingum til Tónlistarskólans á Akureyri eru 250 þús. kr. vegna húsakaupa skólans, en það er önnur greiðsla af þremur.

Þessu næst mun ég gera grein fyrir þeim breytingum, sem meiri hl. n. leggur til, að gerðar verði við lið nr. 999, ýmislegt:

Blöð og tímarit hækka þar um 30 þús. kr. Þar af renni 10 þús. kr. til styrktar útgáfu á tímaritinu Veðrið, en það er gefið út af Félagi ísl. veðurfræðinga og hefur komið út samfellt síðan 1960, tvö hefti á ári. 20 þús. kr. renni hins vegar til útgáfu tímarits, sem gefur ungu fólki tækifæri til að hirta tilraunir sínar í listsköpun.

Þá leggur meiri hl. til, að 25 þús. kr. verði veittar til þess að reisa styttu Gunnfríðar Jónsdóttur myndhöggvara af Guðmundi biskupi góða að Hólum í Hjaltadal, en nokkrir áhugamenn hafa bundizt samtökum um það. S.l. ár var jafnhárri upphæð varið til þess að reisa minnisvarða um Svein Pálsson lækni, og er lagt til, að sú upphæð falli niður að þessu sinni.

Meiri hl. n. leggur til, að fjárveiting til ýmissa félaga hækki sem hér segir: Til Frjálsíþróttasambands Íslands 50 þús. kr., en það er sama upphæð og sambandið fær á yfirstandandi ári. Fjárveiting þessi féll úr við gerð fjárlagafrv. — Svifflugfélag Íslands 100 þús. kr. Það er einnig sama upphæð og félagið hefur á fjárl. yfirstandandi árs, en var einnig niður felld. Félagið rekur, eins og kunnugt er, svifflugskóla á Sandskeiði á sumrin, og á s.l. sumri stunduðu um það bil 30 unglingar svifflugnám þar. — Þá hefur verið lagt til, að Taflfélag Reykjavíkur fái 40 þús. kr. vegna húsakaupa félagsins og að fjárveitingar til Skáksambands Íslands verði hækkaðar um 75 þús. kr. og verði 200 þús. kr. samtals. — Tekin er upp fjárveiting til Glímusambands Íslands, 75 þús. kr., til greiðslu kostnaðar við söfnun heimilda og útgáfu rits um sögu íslenzku glímunnar. — Eftirtalin framlög eru auk þess á liðnum ýmis félög: Til blindrastarfsemi 200 þús. kr., til Menningarsjóðs Blaðamannafélags Íslands 25 þús., styrkur til starfsemi KFUM í Vatnaskógi 25 þús., til Þjóðdansafélagsins 8 þús., til Blindravinafélags Íslands vegna rekstrar blindraskóla 37 þús., til Hins íslenzka náttúrufræðifélags 50 þús. Til fræðslustarfsemi á vegum Stjórnunarfélags Íslands 100 þús. Til Leikfélags Reykjavíkur, sbr. lög nr. 15 frá 1965, 500 þús. Til Bandalags ísl. leikfélaga samkv. l. nr. 15 1965 200 þús. Til Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn 25 þús. Til íslenzka stærðfræðifélagsins 30 þús. Til Rithöfundasambands Íslands 15 þús. Til Bandalags ísl. listamanna 45 þús. Til Sambands ísl. barnakennara til menningar- og félagsstarfsemi 100 þús. Til Zontaklúbbs Akureyrar vegna kaupa á Nonnahúsi 50 þús. kr. — Loks leggur meiri hl. n. til að taka upp nýjan lið á sundurliðun verkefna undir þessum lið: til þátttöku í Ólympíuleikunum 1968, síðari greiðsla, 300 þús. kr.

Þá koma brtt., sem falla undir atvmrn. Þar er í fyrsta lagi lagt til, að inn komi nýr liður við Búnaðarfélag Íslands, gjaldfærður stofnkostnaður 500 þús. kr. Er það vegna djúpfrystingar á nautasæði, en undirbúningur slíkrar sæðisstöðvar hófst þegar á þessu ári. Er gert ráð fyrir, að til að byrja með a.m.k. fái sæðisstöðin leigð eða keypt hús einhverrar sæðisstöðvarinnar, sem fyrir er. Hér er fyrst og fremst um hagræðingarmál fyrir landbúnaðinn að ræða, og hafa forustumenn Búnaðarfélagsins lagt mikla áherzlu á, að málið nái fram að ganga. Er því lagt til, að umrædd fjárveiting verði veitt.

Þá er lagt til að hækka gjaldfærðan stofnkostnað við Rannsóknastofnun landbúnaðarins um 270 þús. kr. Er það vegna húsbyggingar starfsmanna við bútæknideild stofnunarinnar, en til hennar hefur áður verið veitt fé á fjárl. Sömuleiðis er lagt til að hækka gjaldfærðan stofnkostnað við Bændaskólann á Hvanneyri um 200 þús. kr.

Framlag til sauðfjárveikivarna hækkar skv. till. um 360 þús., það eru eftirstöðvar af greiðslum vegna niðurskurðar á sauðfé í Dalasýslu, og um 800 þús. vegna hringskyrfis, fyrri greiðsla. Hér er um að ræða kostnað vegna framkvæmdar á niðurskurði á hrossum og sauðfé á þeim bæjum í Eyjafirði, þar sem smitun af völdum hringskyrfis hefur komið fram, svo og kostnað vegna lækningar nautgripa á þessum bæjum. Í frv. til fjárlaga fyrir árið 1968 eru veittar 1 millj. 773 þús. kr. til að standa straum af kostnaði við þennan sjúkdóm, og þegar frá er dreginn kostnaðurinn við lækningar, 1 millj. og 300 þús. kr., verða til ráðstöfunar í öðru skyni, m.a. vegna niðurskurðar, 473 þús. kr. Til þess að ljúka áætluðum greiðslum vegna niðurskurðar vantar þá 1 millj. 555 þús. kr. Hér er lagt til, að skipta þessum kostnaði milli áranna 1968 og 1969.

Þá leggur meiri hl. n. til, að fyrirhleðslur hækki um 100 þús. kr., og liggur sundurliðun á fjárveitingum í þessu skyni fyrir á sérstöku yfirliti á þskj. 110, á bls. 99.

Næsti liður er til fyrirhleðslna í Þverá og Markarfljóti 900 þús. kr., sem er 400 þús. kr. hækkun frá yfirstandandi ári. Vegamálastjóri segir svo um þessa fjárbeiðni í bréfi til atvmrn. 22. maí s.l.: „Ástæðan til þessarar hækkunar er sú, að í janúarmánuði s.l. hrundi stór hluti af fjallinu Innsta-Hnaus norðan í Eyjafjallajökli ofan á skriðjökul, sem gengur norður úr jöklinum, með þeim afleiðingum, að stórt lón framan við jökulinn tæmdist á svipstundu. Olli þetta gífurlegri flóðbylgju fram Markarfljótsaura, sem skall yfir innsta varnargarðinn í Markarfljóti hjá Þórólfsfelli. Sópaðist mikið af garðinum burt og nokkrar skemmdir urðu einnig á görðum neðar með fljótinu, þó voru þær mun minni.“ Síðan segir: „Er því fyrirsjáanlegt, að kostnaður við fyrirhleðslur Þverár og Markarfljóts í ár muni nema um 1 millj. kr., og er beðið um hækkun á heildarfjárveitingunni til þess að mæta óhjákvæmilegri umframeyðslu á þessum lið á yfirstandandi ári.“

Þá er lagt til að hækka launalið Fiskifélags Íslands um 200 þús. kr., eins og segir á þskj. 122, vegna Reikningaskrifstofunnar, til þess að hægt sé að ráða þangað nýjan starfsmann, en ákveðið hefur verið, að Reikningaskrifstofan verði nú endurskipulögð.

Í viðfangsefnasundurliðun Hafrannsóknastofnunarinnar er lagt til, að eftirfarandi breytingar verði gerðar. Fjárveiting vegna Bjarna Sæmundssonar, 2,5 millj. kr., falli niður, en í stað þess verði fjárveiting vegna fiskileitar aukin um 1 millj. og vegna síldarleitar um 11/2 millj. Ástæða þessara breytinga er sú, að rannsóknaskipið mun ekki koma á árinu 1968, svo að enn þá mun þörf fyrir leiguskip vegna þessara verkefna.

Loks leggur meiri hl. n. til, að eftirtaldir liðir falli brott undir 322: Aðstoð við sjávarútveginn 80 millj. — Áætlað til verðjöfnunar á sjávarafurðum 100 millj. — Til uppbóta á fiskverð 100 millj. — Samtals 280 millj. kr. Er þetta gert með hliðsjón af gengisfellingunni.

Næst vík ég þá að dóms- og kirkjumrn. Vegna aukinna verkefna á yfirstandandi ári og fyrirsjáanlegrar aukningar á næsta ári er talið óhjákvæmilegt að bæta sérfróðum lækni í meinafræði við Rannsóknastofu háskólans, ef hún á að geta annazt þau verkefni, sem til hennar berast. Því er lagt til að hækka launalið stofnunarinnar um 250 þús. kr., en sú upphæð mun nægja til að standa undir kostnaðinum á næsta ári.

Þá er lagt til, að framlag til byggingar sjúkrahúsa, sjúkraskýla og læknisbústaða, annarra en ríkissjúkrahúsa, hækki um 3 millj. 880 þús. kr. frá því, sem er í fjárlagafrv. Er það nauðsynlegt til að geta komið á móti þeim beiðnum, sem borizt hafa, og einnig til að halda þeirri reglu, sem gilt hefur að undanförnu um fjárveitingar í þessu skyni. Fjvn. hefur skipt þessu framlagi svo sem greinir á sundurliðuðu yfirliti á þskj. 110, á bls. 99. Aðalbreytingin á fjárveitingum á þessu ári er sú, að lagt er nú til að hækka framlag til Borgarsjúkrahússins í Reykjavík um 8 millj. kr., en dóms- og kirkjumrn. og fjmrn. höfðu skuldbundið sig gagnvart Seðlabankanum til að leggja til við Alþingi, að þessi fjárhæð yrði veitt til Borgarspítalans. Í till. er gert ráð fyrir eftirtöldum nýjum framkvæmdum: Héraðslæknisbústaðir á Patreksfirði, Ísafirði, Blönduósi, Vestmannaeyjum og Bíldudal og sjúkrahús og læknisbústaðir á Sauðárkróki, Húsavík og Selfossi.

Þá eru eftirtaldar breyt. lagðar til um ýmis heilbrigðismál: Til námslána læknanema hækki um 175 þús. kr. Verður þá upphæðin samtals 700 þús. Hér er um að ræða lán til læknanema gegn skuldbindingu um læknaþjónustu í héraði. Þótt lítil reynsla sé enn fengin af lánveitingum þessum, hafa tveir þeirra fjögurra, sem fengu lán árið 1966, þegar farið til læknisþjónustu í héruðum úti á landi. — Til að bæta héraðslæknisþjónustu skv. 16. gr. læknaskipunarlaga er lagt til að hækka um 200 þús. kr. Fjárveiting þessi er nú 100 þús. kr., en mikil nauðsyn var talin á að fá hana hækkaða í það hámark, sem lögin gera ráð fyrir eða í 300 þús. Í bréfi dóms- og kirkjumrn., dags. 1. nóv. s.l., segir m.a., að komið hafi í ljós, að þörfin í þessu efni sé meiri en álitið hafi verið á s.l. vori. Stafar það af því, að fleiri héruð hafa verið læknislaus, og eins hafa hinar reglulegu ferðir nágrannalæknanna til læknislausu héraðanna reynzt kostnaðarsamari en þá var vitað. Þannig lágu 1. nóv. fyrir reikningar að upphæð 145 þús. kr. af þessum sökum. — Þá hefur einnig verið fallizt á að heimila Bíldudalslækni að sitja á Patreksfirði til þess að fá læknisþjónustu í Vestur-Barðastrandarsýslu. Við það fellur að sjálfsögðu á kostnaður vegna reglulegra viðtala hans á Bíldudal, og má búast við, að ferðakostnaðurinn muni nema 100–150 þús. kr. — Loks má búast við, að allmörg héruð verði áfram læknislaus nú í vetur og þess vegna verði verulegur kostnaður við ferðir nágrannalæknis til þessara héraða, en sjúkrasamlög greiða aðeins ferðakostnað, þegar sóttur er læknir til ákveðins sjúklings. Oft er hér um fámenn og afskekkt héruð að ræða, sem ekki geta staðið undir reglulegum læknisferðum um langan veg. Af þessum sökum, sem ég hef nú greint, leggur meiri hl. n. til, að fjárveiting til að bæta héraðslæknisþjónustuna verði hækkuð í hið lögbundna hámark eða í 300 þús. kr.

Þá er lagt til að hækka liðina vegna héraðshjúkrunarkvenna um 200 þús. kr., en skv. 10. gr. læknaskipunarlaga er heimilt að greiða úr ríkissjóði 2/3 hluta launa allt að 6 hjúkrunarkvenna til starfa í læknishéruðum. Nú hefur verið sótt um heimild til að ráða slíkar hjúkrunarkonur í fimm læknishéruð.

Loks er lagt til, að tekinn verði upp nýr liður: Umbúðasmíði vegna fatlaðra 60 þús. kr. Er það samsvarandi liður og verið hefur í fjárlögum undanfarandi ár.

Þá leggur meiri hl. n. til, að nokkrar breyt. verði gerðar á ýmsum liðum, sem falla undir þjóðkirkjuna. Er það fyrst, að hækkuð er fjárveiting til kirkjubyggingasjóðs um 150 þús. — Þá er lagt til að hækka laun eftirlitsmanns með kirkjugörðum um 21 þús. kr. — Hólafélagið hefur á undanförnum árum notið 25 þús. kr. styrks úr ríkissjóði. Það sækir nú um að fá þennan starfsstyrk hækkaðan í 100 þús. kr. vegna væntanlegs skóla eða kennsluhalds á vegum félagsins og Æskulýðssambands kirkjunnar í Hólastifti í sumarbúðum við Vestmannsvatn í Suður-Þingeyjarsýslu. Segir í bréfi frá Hólafélaginu, að væntanlegt skólahald muni hefjast á næsta hausti. — Þá er lagt til að taka inn þrjá nýja liði: Til Hallgrímskirkju í Saurbæ 25 þús. kr. Til heimtaugargjalda á prestssetrum 75 þús. kr. Til útihúsa á prestssetrum 500 þús. kr. Tveir síðarnefndu liðirnir féllu af vangá niður við tillögugerð um fjárveitingu til kirkjumála á fjárlögum og eru því teknir upp í brtt.

Um brtt. við þá liði fjárlagafrv., sem falla undir félmrn., er það fyrst að segja, að lagt er til, að fjárveiting til vatnsveitna samkv. lögum hækki um 1 millj. kr. Er þessi hækkun talin nauðsynleg vegna mikilla vatnsveituframkvæmda í landinu.

Framlag til Bjargráðasjóðs er hækkað um 3,5 millj. kr. Er það vegna nýrrar lagasetningar um sjóðinn, sem legið hefur fyrir Alþingi að undanförnu, og er að þessu sinni ætlað að mæta útgjöldum vegna kalskemmda. Á liðnum: Ýmis framlög, er lagt til, að eftirtaldir liðir breytist: Fjárveiting til Barnavinafélagsins Sumargjafar er hækkuð um 100 þús. kr., en útgjöld vegna Fóstruskóla félagsins hafa hækkað verulega. Stafar sú hækkun af auknum nemendafjölda, sem leiddi til þess að fastráða varð kennara 8 mánuði þetta ár. Þar að auki bætist við húsaleigukostnaður fyrir skólaárið 1966–67, sem Fóstruskólinn hefur ekki áður þurft að greiða.

Af vangá féll niður fjárveiting til Kvenfélagasambands Íslands, en hún var 500 þús. kr. á s.l. ári. Hér er lagt til, að þessi fjárveiting verði tekin upp og hækkuð um 150 þús. Starfsemi Kvenfélagasambandsins og héraðssambandanna, sem það mynda, er sívaxandi, en þar er fyrst og fremst um fræðslustarf fyrir húsmæður landsins að ræða. M.a. hefur Kvenfélagasambandið rekið leiðbeiningastöð húsmæðra á undanförnum árum, sem svarar fyrirspurnum um hvers konar vandamál í heimilishaldi, veitir upplýsingar varðandi kaup á heimilisvélum, leiðbeinir um vöruval í ýmsum greinum o.fl. Fer þessi starfsemi vaxandi frá ári til árs. Til þessa hefur húsmæðrakennari starfað þar hálfan daginn, og nú er talið nauðsynlegt, að hann hafi að fullu starfi að vinna að þessu verkefni.

Þá er lagt til að hækka fjárveitingu til Rauða kross Íslands um 145 þús. kr., m.a. til greiðslu framlaga til ýmissa alþjóðastofnana, sem félagið tekur þátt í. Á það má benda, að Rauði krossinn hefur tekið mörg ný verkefni fyrir hér á landi svo sem rekstur blóðbílsins, sem var mikið nauðsynjamál.

Tekinn er upp nýr liður, barnaheimilið Lyngás, kennaralaun, 179 þús. kr., en síðan 1961 hefur menntmrn. greitt kennaralaun vegna kennslu vangefinna barna á aldrinum 4–14 ára á þessu dagheimili. Liður þessi hafði fallið niður.

Þá hefur fjvn. skipt niður byggingarstyrkjum til dagheimila eins og undanfarin ár, sbr. yfirlit á þskj. 110. Lagt er til að hækka fjárveitingar í þessu skyni um 20 þús. kr. frá fjárlagafrv.

Um greiðslur þær, sem falla undir fjmrn., er það að segja, að lagt er til, að afborganir af lánum ríkissjóðs verði auknar frá því, sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrv., um 2 millj. og 79 þús. kr.

Loks eru nokkrar brtt. við heimildagr. fjárl., eins og ég mun nú víkja að.

Í fyrsta lagi er lagt til að heimila ríkissjóði að ábyrgjast fyrir Norðurstjörnuna h/f í Hafnarfirði allt að 8,5 millj. kr. lán. Er heimilt að taka forgangshlutabréf í fyrirtækinu til tryggingar sjálfsskuldarábyrgð fyrir láninu.

Til þess að ljúka framkvæmdum við byggingu Rannsóknastofnunar landbúnaðarins á Keldnaholti reyndist nauðsynlegt að taka 1 millj. kr. lán hjá Atvinnuleysistryggingasjóði, en það voru eftirstöðvar af lánsloforði sjóðsins til stofnunarinnar. Þetta lán var falt gegn ríkisábyrgð fyrir láninu, og er lagt til, að hún verði veitt.

Þá er lagt til að endurgreiða Veðurstofu Íslands tolla og aðflutningsgjöld, samtals að fjárhæð 337556 kr., vegna innflutnings tækja og áhalda, sem eru hluti af tækniaðstoð Sameinuðu þjóðanna. Samkv. upplýsingum frá veðurstofustjóra hafa öll tæki, sem Veðurstofan hefur fengið á undanförnum árum í formi tækniaðstoðar frá Sameinuðu þjóðunum, verið tollfrjáls og án aðflutningsgjalda. Þykir því eðlilegt, að svo verði einnig áfram.

Í 6. gr. fjárlagafrv. er heimild til þess að endurgreiða aðflutningsgjöld af veðurathugunarstöð, sem Veðurstofa Bandaríkjanna lánar til veðurathugana í Surtsey. Nú hefur Surtseyjarfélagið farið fram á að fá endurgreidd aðflutningsgjöld og söluskatt af öllum þeim vísindatækjum, sem félagið fær að gjöf eða láni erlendis frá, en slík gjöld mundu nema samtals um 400 þús. kr. á næsta ári. Þykir eðlilegt að styrkja rannsóknir Surtseyjarfélagsins með því að veita þessa heimild, enda er hér um svipaða heimild að ræða og gert er ráð fyrir að veita Raunvísindastofnun háskólans og Reiknistofnun háskólans í 6. gr. fjárlagafrv.

Þá er loks lagt til að taka inn á heimildagr. tvær heimildir vegna Iceland Food Centre: Að ábyrgjast in solidum með öðrum eigendum Iceland Food Centre skuld að fjárhæð 20 þús. sterlingspund við brezkan banka og framselja án endurgjalds helming af hlutafjáreign ríkissjóðs í Iceland Food Centre. Í bréfi fjmrn., dags. 6. des. s.l., segir svo um þessar heimildir, með leyfi forseta:

„Um fyrri heimildina er það að segja, að skuld þessi er til orðin við Hambros Bank vegna hallarekstrar undanfarið. Skuldin er þannig í raun á ábyrgð eigenda fyrirtækisins, þó að svo sé ekki að formi. Síðari heimildin er hins vegar vegna endurskipulagningar á rekstri Iceland Food Centre í samvinnu við brezkt fyrirtæki. Standa vonir til, að sú samvinna komi í veg fyrir, að fé það, sem þegar er bundið í fyrirtækinu, tapist.“

Um tekjubálk fjárlagafrv. er það að segja, sem ég hef áður að vikið varðandi þá tekjuliði, sem gengislækkunin hefur áhrif á, að þeirri endurskoðun er ekki að fullu lokið, en við 3. umr. munu að sjálfsögðu liggja fyrir niðurstöður í þeim efnum. Á þskj. 110 leggur meiri hl. fjvn. til, að felldir verði niður þrír tekjustofnar, þ.e. í fyrsta lagi farmiðaskattur að upphæð 60 millj. kr., í öðru lagi gjaldeyrisskattur 38 millj. og í þriðja lagi arður af Pósti og síma 20 millj. kr. Samtals eru því till. um lækkanir á tekjubálki frv. að þessu sinni um 118 millj. kr.

Verði till. meiri hl. fjvn., sem hann hefur leyft sér að bera fram við þessa umr., samþ., leiðir það til þess, að á greiðsluyfirliti ríkissjóðs verða gjöld 6005 millj. 572 þús. kr. og tekjur 6077 millj. 296 þús. kr. Tekjur umfram gjöld eru því 71 millj. 724 þús. kr. Lánahreyfingar út eru 50 millj. 172 þús. Lánahreyfingar inn eru 3 millj. 525 þús. Mismunur er því á lánahreyfingum 46 millj. 647 þús. kr. Greiðslujöfnuður verður því á rekstrarreikningi 71 millj. 724 þús., tekjuafgangur á lánahreyfingum 46 millj. 647 þús. kr. út. Greiðsluafgangur verður því á fjárlagafrv. 25 millj. 77 þús. kr.

Herra forseti. Ég hef þá lokið við að gera grein fyrir þeim brtt. við frv. til fjárl. fyrir árið 1968, sem meiri hl. fjvn. hefur lagt til við þessa umr. Ég vænti, að þær verði samþ., og legg til, að fjárlagafrv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 3. umr.