11.12.1967
Sameinað þing: 20. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 486 í B-deild Alþingistíðinda. (436)
1. mál, fjárlög 1968
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Ég mun nú ekki hér í því, sem ég segi, fara að ræða almennt um efnahagsmál, þó að ástæða hefði verið til þess að taka til athugunar ýmislegt af því, sem hv. frsm. minni hl. fjvn. sagði um þau efni. Þau hafa verið rædd hér að undanförnu ítarlega og það gefst tækifæri til að ræða þau í sambandi við önnur frv., sem hér koma fram á næstu dögum. Ég vildi þess vegna aðeins einskorða mig við fjárlögin og ýmis atriði, sem nauðsynlegt er að komi fram í því sambandi, og skal því reyna að stytta mál mitt sem ég get.
Ég tel mér fyrst skylt að þakka hv. fjvn. fyrir það mjög mikla og góða starf, sem hún hefur unnið. Hún hefur á mjög skömmum tíma leyst af hendi mjög erfitt viðfangsefni, sem er að endurskoða fjárlagafrv. frá grunni, miðað við gengisbreytinguna, og hygg ég, að fjvn. hafi ekki áður staðið andspænis svo miklum vanda á jafnskömmum tíma. Það hefur hjálpað til í þessu efni, að Fjárlaga- og hagsýslustofnun fjmrn. er nú til aðstoðar við þetta mikla starf, og ég vil einnig á þessum stað láta koma fram þakkir til hagsýslustjóra og starfsmanna hans fyrir þá miklu vinnu, sem þeir hafa leyst af hendi nú síðustu vikurnar. Þá sé ég enn fremur ástæðu til þess að þakka hv. n. eða meiri hl. hennar fyrir þá hófsemi, sem hún hefur sýnt í till. sínum um hækkun útgjalda ríkissjóðs. Það var lögð mikil áherzla á það í undirbúningi fjárlagafrv. að takmarka svo sem verða mætti útgjöld ríkissjóðs á næsta ári. Það var miðað við það ástand, sem þá ríkti, og þær till., sem þá voru uppi um það að reyna að ná saman endum með þeim efnahagsaðgerðum, sem voru lagðar fyrir þingið í haust. Ég tek það fram, að ég tel alveg sömu rök vera til staðar nú að sýna hófsemi í útgjöldum ríkissjóðs og því sé það mikils virði, hvernig n. hefur á þessum málum tekið. Það hefur verið óumflýjanlegt að sjálfsögðu að hækka allverulega útgjöld á ýmsum liðum vegna óhjákvæmilegra afleiðinga gengisbreytingarinnar, en það hefur verið lögð áherzla á það, að þær hækkanir yrðu sem allra minnstar og reynt að takmarka svo auknar fjárveitingar til stofnana sem framast er auðið, án þess þó að það hindri eðlilega starfsemi þeirra eða leiði til umframgreiðslna.
Menn hafa spurt eftir því hér og reyndar að því fundið, að ekki hafi nú við 2. umr. legið fyrir endanleg tekjuáætlun ríkissjóðs fyrir næsta ár. Það er vitanlegt, eins og fram hefur komið, að gengisbreytingin hefur veruleg áhrif á tekjur ríkissjóðs. Hins vegar er það dæmi ekki svo einfalt viðureignar eins og menn virðast halda, vegna þess að þar eru mörg atriði, sem þarf að athuga. Það er alveg ljóst miðað við þær aðstæður, sem eru í dag, og horfur um viðskiptamöguleika okkar á næsta ári, að það hlýtur að koma til nokkur samdráttur í útflutningi, ef það héldi áfram á sama veg með innflutninginn. Ef það héldi áfram með sama hraða, þá væri augljóst, að það mundi halda áfram að ganga á gjaldeyrisvarasjóðinn eins og gert hefur, og það getur auðvitað ekki endalaust gengið. Þetta dæmi þarf því allt saman að athugast á þann hátt, að það verði að endurskoða þjóðhagsáætlunina frá grunni og gera sér grein fyrir því, hvaða afleiðingar þessar aðgerðir nú og þær efnahagsráðstafanir, sem í sambandi við þær eru gerðar, hafa á tekjuhorfur ríkissjóðs á næsta ári. Það er því ekki vegna þess, að það hafi verið nein löngun til að leyna þessu máli við þessa umr., heldur eingöngu af þeim sökum, að á þeim skamma tíma, sem verið hefur til ráðstöfunar til þess í senn að endurskoða gjaldabálk frv. og athuga öll önnur atriði málsins, hefur ekki verið auðið að birta endanlega þessar tölur, og ég tel það ekki þjóna neinum tilgangi að vera að birta einhverjar áætlunartölur í því efni, sem svo mundu aftur breytast við 3. umr.
Ég legg hins vegar áherzlu á eitt atriði, sem er höfuðatriði þessa máls. Menn tala um, að tekjur ríkissjóðs muni stóraukast, og þar af leiðandi er gefið í skyn, að það muni verða notað af ríkisstj. til aukinnar eyðslu, eins og menn gjarnan kalla. Það er ákveðin stefna ríkisstj., að öllum þeim tekjuauka, sem verður nú hjá ríkissjóði umfram það, sem beinlínis leiðir af óumflýjanlegum útgjaldaauka ríkisstofnana vegna gengisbreytingarinnar, verði varið til þess að mæta áhrifum gengisbreytingarinnar í þá átt að draga úr þeim svo sem verða má, bæði áhrifum þeirra á verðlag og jafnframt að reyna eftir föngum að létta undir með þeim, sem verst eru settir í þjóðfélaginu. Þetta er sú grundvallarstefna, sem ríkisstj. vill fylgja, og af þeirri ástæðu skiptir það í rauninni ekki máli, hvort þessar upplýsingar liggja fyrir nú, vegna þess að ég lít svo á, að þetta fé verði ekki og megi ekki vera almennt til eyðslu hér, til aukinna útgjalda úr ríkissjóði til almennra þarfa, þó þær þarfir kunni að vera nauðsynlegar. Af þessum sökum hefur ekki verið talið auðið að leggja almennt til hækkun á fjárfestingarliðum fjárlaga. Það eru raunverulega þeir liðir, sem auðveldast er að ráða við, og það má auðvitað segja, eins og hér hefur komið fram, að það væri eðlilegt, þegar gengisbreyting verður, að hækka slíkar fjárveitingar. En það hefur ekki verið gert við undanfarandi gengisbreytingar og það af mjög eðlilegum ástæðum. Reynt hefur verið við allar þær gengisbreytingar einmitt að halda þessum útgjöldum niðri og leitazt við að nota það fé, sem verið hefur til ráðstöfunar í auknum tekjum ríkissjóðs, til þess að mæta afleiðingum gengisbreytingarinnar og létta þær fyrir almenning. Ég legg áherzlu á, að ég tel að þetta þurfi að vera grundvallarreglan í ráðstöfunum okkar á þessum hugsanlega greiðsluafgangi, sem kann að vera til staðar, þegar dæmið verður endanlega uppgert. Það koma svo auðvitað fram spurningar um það, hvernig á þá að ráðstafa því á annan veg. Ég tel, að efst á blaði sé um að ræða tollabreytingar eða tollalækkanir. Við þurfum af mörgum ástæðum að stefna í þá átt að lækka þá mjög háu innflutningstolla, sem hér eru, og það eigi tvímælalaust að nota það tækifæri nú, eftir því sem fjárráð frekast leyfa. Þetta mál er í undirbúningi, en ég hygg, að það hljóti að vera ljóst öllum, sem til þekkja, að víðtækar tollabreytingar verða ekki gerðar á einum degi. Það þarf að athuga þær frá mörgum hliðum, hvaða afleiðingar þær hafa og athuga, að samræmi sé í þeim breyt. milli einstakra liða, þannig að hér er um mjög flókið og vandasamt mál að ræða. Þar inn í koma auðvitað þau sjónarmið, sem nokkuð hefur verið ymprað á hér, sérstaklega af talsmanni hv. minni hl. n., að það eigi að leggja áherzlu á að bæta aðstöðu iðnaðarins. Þetta er sjónarmið út af fyrir sig, en ég bendi þá á það, að ef það er hugsun manna, að eigi að auka vernd iðnaðarins, þá hlýtur það sjálfsagt að draga úr möguleikunum til að nota þessar tollabreytingar til þess beinlínis að bæta aðstöðu neytenda. Það er alveg ljóst.
Hitt er auðvitað rétt, að það þarf að gera þetta dæmi upp og það er vitanlega nauðsynlegt, að aðstaða iðnaðarins verði a.m.k. ekki gerð erfiðari heldur en hún er í dag. Auðvitað verður mikill léttir fyrir iðnaðinn í sambandi við gengisbreytinguna á ýmsum sviðum, ekki hvað sízt fyrir þann iðnað, sem þó hefur flutt eitthvað til útlanda, það verður auðveldara fyrir hann að bjargast, en einmitt slíkar iðngreinar hafa átt við mjög mikla erfiðleika að stríða núna á síðustu árum vegna hækkaðs tilkostnaðar. Tollalækkanirnar tel ég nr. 1 á blaði, þegar um er að ræða ráðstöfun á því fé, sem kann að vera tiltækt til að mæta afleiðingum gengisbreytingarinnar. Þá er það ákveðið hjá ríkisstj. að leggja til að hækka bætur almannatrygginga, þannig að örorkubætur og ellilífeyrir og skyldar bætur nái því marki, að ekki verði um að ræða kjararýrnun hjá því fólki. Þá tölu er ekki nákvæmlega búið að reikna út, en það mun verða flutt brtt. við fjárlagafrv. við 3. umr. þess varðandi þessar breytingar. Vitanlega geta ýmsar aðrar ráðstafanir komið til álita, ýmsar millifærsluleiðir milli tekjuflokka í þjóðfélaginu og vissar aðrar aðgerðir, sem geta komið til athugunar til þess að létta þeim, sem tekjulægstir eru í þjóðfélaginu, að mæta kjaraskerðingu vegna gengisbreytingarinnar. Þessi mál eru einnig í rækilegri athugun. Um þessi atriði öll hefur verið rætt við fulltrúa verkalýðssamtakanna, sem hafa verið látnir fylgjast með því, sem hefur komið til álita að gera í þessum efnum, og ætlunin er að leita eftir þeirra skoðunum, að svo miklu leyti sem þeir óska eftir að láta þær uppi, og fá þá til að taka þátt í athugunum á því, hvernig þessu fé verði bezt varið til þess að draga úr áhrifum gengisbreytingarinnar.
Þetta eru þau almennu atriði, sem ég vildi taka fram og tel nauðsynlegt, að liggi hér fyrir við þessar umr. til skýringar á því, að þetta mál hefur ekki allt verið krufið til mergjar. Í framhaldi af þessu og raunverulega sama eðlis var sú gagnrýni hv. minni hl. n., að ekki lægju allar upplýsingar fyrir og sem hún átaldi mjög, því það væri ekki hægt að taka raunverulega afstöðu til fjárlagafrv. nú. Ég tel, að ég hafi þegar skýrt ástæðurnar fyrir því, sem hljóta að vera öllum mönnum ljósar, að á þessum skamma tíma hefur í rauninni tekizt ótrúlega að leysa þann vanda, sem við var að glíma, til þess að hægt væri þó að afgreiða fjárl. fyrir áramót og þess alls ekki að vænta, að öll kurl gætu verið til grafar komin við 2. umr. málsins. Ég vil þá leyfa mér að víkja að nokkrum einstökum atriðum í ræðu hv. frsm. minni hl. n. og skal leitast við að hafa þau orð ekki allt of mörg.
Hann vék að nýju skólakostnaðarl. og taldi skylt að láta þau taka gildi. Ég tel, að ekki sé um neina skyldu að ræða í því efni, það hefur verið ákveðið, að nýju skólakostnaðarl. taki gildi frá 1. sept. næsta ár og það er heimild til þess, að þau taki gildi strax. Að ráðning kennara geti þar nokkru um ráðið, fæ ég ekki séð, það breytir að sjálfsögðu ekki þeirra kjörum og það hefur aldrei verið meiningin, að þessi skólakostnaðarl. hefðu þær afleiðingar, sem þau því miður virðast ætla að hafa, að það verði nokkru minna aðhald um það, sem menn leggja til í þeim efnum varðandi fjölda kennara, eftir að það er allt saman komið yfir á ríkið. Það vill gjarnan fara svo. Ástæðan til að þetta er ekki hægt að gera nú er ekki hvað sízt það, að það eru víðtækar reglugerðir, sem þarf að setja um framkvæmd þessara nýju l., og þær eru ekki enn tilbúnar og ekki hægt að fara að framkvæma þær, fyrr en þessar reglugerðir liggja fyrir. Hv. frsm. vék að því, að ekkert væri nú áætlað til nýrra skólabygginga og taldi það vera breytingu frá því í fjárlagafrv. ársins 1967. Það er ekki um neina breyt. að ræða, heldur er ástæðan sú, að þegar við sömdum fjárlagafrv. fyrir 1967, tókum við sömu fjárhæð eins og var í fjárlögum ársins, en það varð afgangur, þegar við vorum búnir að deila niður á alla þá skóla, sem voru í byggingu, þá var viss afgangur, sem við áætluðum í nýja skóla. Nú varð ekki um neinn slíkan afgang að ræða af heildarfjárhæðinni, heldur varð að nota hana alla til þess að deila niður á skólana eftir þeirri reglu, sem fylgt hefur verið, þá skóla, sem eru í byggingu. Vitanlega kemur það til álita við 3. umr. fjárlaga, hvaða úrræði verða til þess að mæta þessum vanda, það verður ekki gert án þess að veita nokkra fjárveitingu til þess að mæta þörfum vegna nýrra skóla. Ég get ekki á þessu stigi málsins sagt, hvað há sú fjárhæð verður, það verður að skoðast niður í kjölinn, hvað hægt er að bjarga sér með í þeim efnum.
Varðandi hafnargerðir, þá vitnaði hann til nýju laganna um hafnargerðir, sem hefðu verið samþykkt á síðasta þingi. Það var ákveðið, að þau giltu ekki í ár, en mundu taka gildi næsta ár. Það hefur verið unnið að undanförnu að heildaráætlun um fjáröflun til hafnargerða á næsta ári. Það gerðist nú á þinginu hér í fyrra, að l. voru að vísu samþykkt, en þá voru felldir niður tekjustofnarnir, sem áttu að standa undir vissum þætti laganna, þannig að það er ekki auðvelt að leysa vandamál á þann máta. Í fjárlagafrv. sjálfu er ekki aðeins gert ráð fyrir 5 millj. kr. hækkun til hafnargerða, heldur 15 millj. kr., þ.e.a.s. að borga einnig hluta af þeim eftirstöðvum, sem safnazt hafa undanfarin ár. Ég tel, eins og ég lýsti í framsöguræðu minni við fjárlögin, að það beri að stefna að því, að hafnargerðir á hverju ári verði innan þess ramma, að fjárveitingar ríkissjóðs nægi til að greiða kostnaðarhluta ríkissjóðs af því, sem framkvæmt er á árinu, og verði síðar stefnt að því á nokkrum árum að greiða þann halla, sem myndazt hefur. Ég tel augljóst, að það verði að hækka nokkuð fjárveitingu til nýrra hafnargerða og mun það verða ákveðið fyrir 3. umr., hvernig hægt er að leysa þann vanda, eftir að vitamálastjóri hefur gengið frá sínum till.
Hv. þm. vék að því, að undanfarin ár hefur verið framkvæmt meira og meira fyrir lánsfé og vék að hættunni af því. Ég get tekið undir það með honum, að það verður að hafa fullt hóf í því, og nú er t.d. í fjárlagafrv. gert ráð fyrir því að taka inn meiri fjárupphæðir til fjárfestingar, sem ég gerði grein fyrir í framsöguræðu minni um fjárlögin, heldur en undanfarin ár, þannig að lántökur til ríkisframkvæmda verða mun minni heldur en þær voru á s.l. ári.
Hv. þm. vék svo allmikið að og eyddi alllöngu máli sínu í að tala um þá dæmalausu óstjórn, sem væri á ríkisbúskapnum í þrengri merkingu, þ.e.a.s. þá miklu útþenslu sem orðið hefði í ríkiskerfinu. Ég hef nú ekki tíma til þess að rekja öll þau atriði eða svara þeim, það yrði allt of langt mál, þó fróðlegt væri að gera það, en það varð nú svo eins og áður hefur jafnan verið, að þó að menn tali mikið um eyðslu og sukk og sjaldan hafa menn nú verið stórorðari um það en hv. þm. nú, að þá bólar lítið á úrræðum til þess að leysa þann vanda, nema þá ef nefna mætti þá till., sem hann var að boða, að setja ætti niður n. til þess að gera athugun á útþenslu í ríkiskerfinu. Vitanlega þarf enga slíka n., það liggja fyrir allar upplýsingar um það og það er tæknilegt atriði að rannsaka og þarf enga n. til þess, það eru sérfræðingar, sem það gera, og ég birti í fjárlagaræðum mínum upplýsingar um það, hvernig þróunin hefur verið í þeim efnum, sem sýna það, að útþensla til stjórnsýslunnar hefur alls ekki vaxið á síðustu árum. En þessi nefndarskipun er í rauninni eina framlagið til þess að vinna gegn þessari óhæfilegu eyðsluaukningu og sukki hjá ríkisstj. eða fjmrh. á síðustu árum. Nú veit ég ekki, hvað menn geta lengi skotið sér undir það, að þeir viti ekki það mikið um þessi mál, að þeir geti gert um þau till. Vitanlega er ekki hægt að útfæra þær í einstökum atriðum, en það er þó tvímælalaust hægt að gera meira í því efni af mönnum, sem eru jafnkunnugir þeim málum og hv. frsm. minni hl. fjvn., þar sem hann í senn er endurskoðandi ríkisreikninga og hefur auk þess átt lengur en flestir aðrir þm., sem nú sitja á þingi, sæti í fjvn., þannig að endalaust er ekki hægt að skjóta sér undir þekkingarleysi í þessum efnum og að menn hafi ekki aðstöðu til að gera tillögur, ekki sízt, ef það er svo, eins og hann gaf í skyn, að hægt væri að leysa efnahagsvanda upp á hundruð milljóna með því einu að spara í ríkisrekstrinum. Auðvitað vitum við allir, að þetta er sagt algjörlega út í hött, og það er ekki hægt að koma við neinum slíkum sparnaði í ríkisrekstrinum. Það er auðvitað hægt að spara á ýmsum sviðum nokkrar millj., en ef á að fara út í víðtækan sparnað, þá kostar það að endurskoða að verulegu leyti uppbyggingu ríkiskerfisins og þá þjónustu, sem ríkið veitir. Þetta vitum við gerla, og allir hv. þm. þekkja nógu mikið inn á ríkisbúskapinn til þess að sjá þetta. Það liggur svo jafnframt í augum uppi, að fjárl. fara hækkandi ár frá ári, og það þarf ekki að vera nein sönnun um það, að illa sé á málunum haldið. Þetta er þannig í hverju einasta þjóðfélagi, sem er í vexti. Það líður varla nokkurt þing svo, að ekki sé samþykkt löggjöf, sem leggur nýjar og nýjar kvaðir á ríkissjóð, og af þeim sökum hækka útgjöldin auðvitað stöðuglega.
Það, sem skiptir máli í þessum efnum, er að reyna auðvitað að sporna við fótum að því marki, sem hægt er, reyna að koma við þeirri hagkvæmni við notkun fjárins, sem auðið er, sjá til þess, að aðhald sé veitt ríkisstofnunum og í annan stað að reyna að koma við þeirri hagkvæmni í framkvæmdum, að framkvæmdaféð notist sem bezt. Þetta eru þau almennu sjónarmið, sem þarf að hafa í huga, og ég vek athygli á því, án þess að ætla að fara að þakka neitt sérstaklega nein afrek í því efni, að það er þó fyrst í tíð núv. stjórnar, að það hafa verið gerð skipulagsbundin átök í þessa átt. Fyrst í tíð fyrirrennara míns með því að fela ríkisendurskoðanda sérstaklega að gæta hagsýslumála og setja trúnaðarmenn sérstaklega til þess að vinna að þeim málum og síðast nú með því að stofna Fjárlaga- og hagsýslustofnunina, sem hefur gert mögulegt að taka á þessum málum með allt öðrum hætti en áður. Og ég fullyrði það, að þessi stofnun og þessi nýju vinnubrögð eiga eftir að skila miklum jákvæðum árangri og til þess að gefa hv. þm. ljósara yfirlit yfir þróun málanna, má geta þess, að einn þáttur í þessu eru enn fremur þau nýju lög um ríkisreikning og gerð fjárlaga, sem samþykkt voru hér í hitteðfyrra og sem þetta fjárlagafrv. nú er samið eftir og hv. frsm. minni hl. lét raunar í ljós ánægju yfir, að hefði verið gert og taldi þetta stefna í rétta átt. Þannig þarf að vinna að þessum málum.
Hitt er svo annað mál, að það er auðvitað alltaf meira og minna, sem menn geta á bent, sem má sýna með nokkrum rökum, að gæti verið á nokkuð annan hátt. Ég hef gert það, svo sem hv. frsm. vitnaði í, og ég þakka honum mjög fyrir að halda mínum orðum á loft og leggja mikið upp úr greinargerðum mínum og skoðunum í þessum efnum og þær eru ekki á nokkurn hátt breyttar frá því, sem þá var. Hann las hér upp allmarga punkta, ég kannast við þessa punkta og hef ekki gleymt þeim, en þeir hitta mig nú ekki á neinn hátt illa, jafnvel ekki í dag, því það voru ábendingar um að taka til athugunar viss atriði, sem ég held, að ég hafi nú vikið að í flestum fjárlagaræðum, frá því að ég tók við þessu embætti og hefur verið reynt að vinna að eftir fremsta megni. Það má vafalaust segja, að það hafi ekki tekizt sem skyldi, en ég fullyrði, að í þeim greinum, eins og um opinberar veizlur, sendiferðir og annað slíkt, hefur verið reynt að koma við þeim takmörkunum, sem frekast hefur verið auðið. En það er hægara sagt en gert og það hef ég oft tekið fram.
Hitt dæmið er svo fækkun sendiráðanna, sem ég hygg, að hafi verið ymprað á af þm. flestra flokka hér, bæði mér og öðrum, og stundum fluttar tillögur um, m.a. er nú tillaga um það við afgreiðslu fjárl. Þetta verður auðvitað ekki gert formlega með fjárlagaafgreiðslu nema menn hafi áður komið sér niður á, að þetta sé framkvæmanlegt. Ég er ekki hrifinn af fjölgun sendiráða og tel, að það væri full ástæða til þess að skipa þeim málum með öðrum hætti. Ekki er kannske víst, að af því leiddi sérstaklega sparnað, heldur tel ég bót að því að raða sendiráðunum annars staðar en þau eru. Og á það hefur stundum einnig verið bent, að það væri rétt að gera. Og jafnvel þó að ekki hefði verið sett á fót þetta sendiráð í Brüssel, sem var sett þar vegna flutnings Nato frá París, og við urðum að hafa þar fastan fulltrúa í Nato, þá eru útgjöldin við það sendiráð ekki meiri en svo, að þau hefðu nú ekki breytt miklu um þær 750 millj., sem vantaði á sínum tíma til að brúa þetta bil.
Það hefur verið unnið að flestum þessum málum, sem hv. þm. benti á og vék að í þessum punktum sínum, bæði bifreiðamálum ríkisins, skipulagi tollgæzlu og samræmdum vinnubrögðum á því sviði og það hefur verulega þokazt í þá átt. M.a. mun nú alveg á næstu dögum, — ég vonast til þess, að það verði fyrir áramótin, — verða lagt fyrir þingið nýtt frv. um tollheimtu og tolleftirlit. Hitt er annað mál, að það er auðvitað ekki í senn hægt að spara á þessum sviðum og ekki heldur í sambandi við skattheimtuna og heimta svo alltaf aukið eftirlit og meira og meira starf. Þetta fer ekki saman. Ef við ætlum að halda uppi fullkominni tollgæzlu í landinu, kostar það sitt, og það er rétt, að það hefur verið aukið verulega við það. Á síðasta ári var bætt við 10 mönnum í tollgæzlu hér, en ég efast ekki um, að það hafi skilað sér og fullkomlega það í bættu eftirliti, þannig, að menn mega ekki horfa alveg einsýnt á svona vandamál. Jafnvel af þessum sama hv. þm. hefur oft verið fundið að því, að starf skattstofanna gengi ekki nógu vel og það hefur því verið fullkomin þörf á því að auka hraðann í þeim efnum. Ég skal hins vegar játa það fúslega, að reynslan hefur sýnt, að það þarf að endurskoða, hvernig að þessum málum er unnið og það hefur farið fram ýtarleg athugun á því á þessu ári, sem ég vonast til, að verði hægt að koma við í sambandi við skattálagningu á næsta ári.
Þá er það eftirlit með skólabyggingum. Það hélt ég, að allir væru sammála um, að væri æskilegt að taka upp, en það er ekki hægt að taka það upp, ef ekki má eyða neinu fé í það. Það er alveg ljóst mál. Ég held, að í þessu öllu þurfi menn þess vegna að gera sér grein fyrir vissum staðreyndum og megi ekki bara falla í þá gryfju að bera fram ávítur og reyna að gera tortryggilegt það, sem gert er, og segja, að það sé allt sukk og eyðsla. Ábyrgir menn geta ekki leyft sér að halda fram slíkum kenningum, nema þá að rökstyðja orð sín með öðrum hætti en gert var hjá hv. frsm. minni hl. hér í dag. Við þurfum að gera okkur grein fyrir þróuninni í þjóðfélaginu. Við verðum að gera okkur grein fyrir því, að þegar við erum að heimta aukna þjónustu, aukið eftirlit á ótal mörgum sviðum, þá er ekki hægt um leið að óskapast yfir því, að þetta kosti peninga. Við verðum að sjálfsögðu að reyna að koma þessu fyrir með sem hagkvæmustum hætti og ég fullyrði, að það er lögð öll áherzla á að reyna að gera það. Og ég hef vissulega ekkert við það að athuga og tel, að það geti vel komið til álita að hafa nánari samvinnu við fjvn. og meira heldur en bara þann fundartíma, sem hún eða einhver undirnefnd hennar hefur hér í Alþ. til þess að fylgjast með þessum málum. Við þetta hef ég ekkert að athuga, síður en svo, og tel, að það geti verið raunhæfari leið a.m.k. heldur en fara að setja niður einhverja sérstaka n., sem gert er ráð fyrir í þeirri till., sem boðuð er í þessu efni.
Nú, það var svo kannske kokhreysti út af fyrir sig hjá hv. ræðumanni að fara að tala um Skipaútgerð ríkisins og vita það, að það hafa verið settir þar eftirlitsmenn. Sannleikurinn er sá, að nýja kerfið, sem þar hefur verið uppbyggt, þar sem reynt hefur verið að starfa eftir nýjum vinnubrögðum, hefur sparað Skipaútgerðinni milljónir króna, þannig að ég sé svo sannarlega ekki eftir því, þó að þessir menn fái einhver laun í því efni, og það er ekki ætlunin, að þeir haldi slíkum forstjóralaunum til frambúðar, heldur var það meðan verið var að reyna að koma einhverju betra skipulagi á þessi mál. Það hefur svo verið ákveðið hér í Alþ. með sérstökum lögum, að það skuli vera sérstök stjórnarnefnd, sem verður að sjálfsögðu launuð þá með eðlilegu móti, eins og efni standa til.
Ég undrast það satt að segja mjög, að jafnglöggur maður eins og hv. 3. þm. Vesturl. skyldi falla í þá gröf að tala eins og hann gerði á ýmsum sviðum hér og raunar birtir einnig í því nál., sem hann er frsm. fyrir. Hann heldur því t.d. fram, að það, sem gerðist á s.l. ári, þegar allverulegar hækkanir á rekstrarútgjöldum einstakra stofnana voru í fjárl., það hafi í rauninni hrundið mikið af stað þeirri skriðu, sem nú hafi orðið og þeirri 750 millj. kr. útgjaldaþörf, sem nú hafi komið í ljós á þessu ári. Hér er auðvitað talað gegn betri vitund. Hv. þm. veit, að það, sem gerðist í fyrra, var ekki annað en það, að við reyndum að áætla raunhæft útgjöldin í stað þess að undanfarin ár hefur alltaf komið til stórkostlegra aukaútgjalda, vegna þess að menn hafa haldið niðri útgjaldaliðum, sem enga þýðingu hefur að halda niðri, jafnvel launagreiðslum, og ég vonast til þess, að umframútgjöld á þessu ári verði líka mun minni af þessum ástæðum. Það kemur svo fram líka glöggt í þessu fjárlagafrv. núna, hver er þáttur ríkisins sjálfs í þessu 750 millj. kr. dæmi. Hann er um 80 millj., sem beinlínis er aukinn kostnaður við stjórnsýsluna og miðað við rekstrarútgjöld fjárlagafrv. eins og þau lágu fyrir. Það hefur að vísu hækkað núna vegna gengisbreytingarinnar, enda verður að endurskoða allar þessar tölur. En eins og dæmið lá fyrir, þegar við vorum að ræða um þessar 750 millj., þá var þáttur stjórnsýslu ríkisins í því að meðtöldum skólakostnaði, sem hækkar langmest, um 80 millj. kr. af 750 millj., og hvernig í ósköpunum átti að brúa þetta bil með því einu, eins og sagt er, að draga úr þeim útgjaldaauka? Það er mér alls ekki ljóst.
Það er alveg rétt, að útgjöld fjárl. hafa hækkað mikið á undanförnum árum, en við vitum öll, af hvaða ástæðum það er. Það er þróunin í þjóðfélaginu, sem hefur leitt til þess, en það er ekki ríkisbúskapurinn eða þensla í ríkisrekstrinum sem slík, sem hefur verið afgerandi í því efni. Þarfir ríkisins hafa alltaf komið eftir á til þess að mæta þeim vanda, sem hefur risið vegna útgjaldaauka í þjóðfélaginu af öðrum orsökum. Ríkið hefur aldrei komið á undan til þess að taka peninga til þess að leggja fyrir í þessu skyni, og þegar það hafði peninga eins og á árinu 1966, þá var þeim öllum skilað annaðhvort í aðstoð við framleiðsluatvinnuvegina eða þá beinlínis borgaðir fólkinu aftur í niðurgreiðslum, þannig að það hafa engir peningar verið hamstraðir í þessu efni. Og það getur út af fyrir sig verið gaman, ef menn hafa gaman af töluleik, að bera saman án nokkurra skýringa töluliði frá árinu '59 og árunum '66 og '67. Ég held, að það gefi ekki ákaflega mikla mynd af þróuninni, hvernig hún hefur verið og tjói ekki að bera slíkar tölur saman, nema þá útskýra þær hliðar málsins, sem orsaka þær breytingar, sem orðið hafa.
Ég get fúslega tekið undir öll ummæli, bæði hv. frsm. minni hl. og annarra um það, að við þurfum að leita allra úrræða til þess að reka okkar litla þjóðfélag sem ódýrast, og að svo miklu leyti sem ég hef afskipti af þeim málum eða kann að hafa, þá stendur ekki á mér til þess að reyna að gera það. Ég tel, að við höfum lagt grundvöll, sem gerir á margan hátt auðveldara að vinna að þessu með kerfisbundnum hætti, og rekstur ýmissa mikilvægra ríkisstofnana er nú í athugun til þess að kanna það, hvort hægt sé að leysa þann vanda ódýrar en nú er gert. Að þessu tel ég, að þurfi að vinna og það eru vissulega ýmis atriði, sem hefur verið ymprað á, eins og ég gat um áðan, svo sem tala sendiráða, sameining ríkisstofnana og annað, sem ég skal játa, að er stundum hægara um að tala en í að komast. Þar rekast á alls konar sjónarmið. Menn muna kannske eftir, í hvað mörg ár eða áratugi var talað um sameiningu áfengis- og tóbaksverzlunar, áður en tókst að koma því í framkvæmd. Menn hafa talað um sameiningu sandgræðslu og skógræktar í fjöldamörg ár og þannig mætti lengi telja. Þetta er allt saman töluvert erfiðara í framkvæmd heldur en menn gera ráð fyrir og rekst á ýmsa hagsmuni og sérsjónarmið. Ég er ekki að réttlæta, að slíkt eigi að standa í veginum, en það er stundum erfitt að fást við það, sem er komið í föst form.
Það er nú svo annað mál, hvernig ríkisbúskapurinn hefði litið út á undanförnum árum, ef allar till. hv. stjórnarandstæðinga til hækkunar á fjárl. á hverju ári hefðu verið samþykktar og þær útgjaldatill., sem þeir hafa flutt á hverju þingi. Þá er ég hræddur um, að dæmið væri nú ekki auðveldara viðureignar í dag heldur en það þó er.
Ég skal ekki, herra forseti, eyða frekari orðum að þessu máli. Ég hef reynt að halda mig hér við fjárlagafrv. og fjárlagaafgreiðsluna, ræða nokkur þau atriði, sem mér fannst óumflýjanlegt að minnast á í ræðu hv. frsm. minni hl. n., án þess þó að fara þar allt of ýtarlega út í hans löngu ræðu, og enn fremur að gera grein fyrir, eins og ég gerði í upphafi máls míns, ýmsum þeim atriðum, sem ég tel, að þurfi að vera aðalleiðarvísir varðandi afgreiðslu fjárl., og orsakir þess, að ekki hefur nú þegar verið unnt að flytja allar þær till., sem fluttar munu verða til þess að leysa það dæmi.
Ég endurtek svo aðeins að lokum það, að ég vonast til, að þegar allt kemur til alls, þá geti orðið hér á hinu háa Alþ. samstaða um þá meginskoðun og meginstefnu að reyna að nota þá fjármuni, sem ríkið kann að hafa aflögu, til þess að reyna að mæta þeim vandamálum, sem af gengisbreytingunni leiða, á þann hátt að gera kjaraskerðinguna, sem óumflýjanleg er af hennar sökum, sem vægasta, a.m.k. fyrir þá aðila í þjóðfélaginu, sem erfiðast eiga með að bera hana.