19.12.1967
Sameinað þing: 25. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í B-deild Alþingistíðinda. (473)
1. mál, fjárlög 1968
Gunnar Gíslason:
Herra forseti. Það gerist, að mér finnst, fáskipaður bekkurinn í hinu háa Alþ., en þess gerast víðar dæmi, og skal ég ekki fást um það, þó að ég þurfi að tala yfir fáum áheyrendum. Ég hef leyft mér, ásamt þremur öðrum þingbræðrum mínum, hv. 2. þm. Sunnl., hv. 6. þm. Reykv. og hv. 5. landsk. þm., að flytja eina brtt. við fjárlagafrv. Brtt. er um það, að á fjárlögum ársins 1968, sem hér eru til umr. og afgreiðslu, verði varið 600.000 kr. til kaupa á bókasafni Boga heitins Ólafssonar, yfirkennara. Því miður átti ég þess aldrei kost að kynnast Boga Ólafssyni, en oft hef ég heyrt nemendur hans minnast með gleði þess svipmikla og mikilúðuga persónuleika, sem þessi maður var. En þótt ég kynntist ekki Boga Ólafssyni, veit ég það, sem þjóðin veit öll, að hann var mikill mennta- og bókamaður. Og hann kom sér upp miklu og merkilegu bókasafni, og segja mér það bókfróðir menn, sem kynnt hafa sér bókasafn Boga heitins, að hér sé um að ræða eitt ágætasta bókasafa íslenzkt í einstaklingseigu, og í því sé að finna flestar þær bækur íslenzkar, sem merkastar hafa út komið, og fjölmargar í frumútgáfu. Nú er málum svo komið, að ekkja Boga Ólafssonar hefur boðið ríkinu bókasafnið til kaups. Þetta safn er skrásett, og það hefur verið metið á 1,8 millj. kr. og því er það, að sú upphæð, sem farið er fram á í þessari brtt., sem hér er flutt að þessu sinni, er einungis þriðjungur af kaupverði safnsins.
Þeir, sem mátu safnið, voru þeir Ragnar Jónsson hrl. og Helgi Tryggvason, en þeir sem þekkja bókasafn þetta, bókasafn Boga heitins Ólafssonar yfirkennara, telja, að hér sé um lágt mat að ræða og verðmæti bókasafnsins hljóti í rauninni að vera talsvert mikið meira en þetta, og ég hef heyrt þessa menn, sem þekkja safnið og hafa sagt mér þetta, láta í ljós undrun sína yfir því, hversu safnið sé lágt metið. Ef af þessum kaupum verður, og það verður, ef þessi brtt. okkar fjórmenninganna verður samþ., sem ég vænti fastlega, að hv. Alþ. geri, þá er það ætlunin að koma fyrir í bókhlöðu forsetasetursins að Bessastöðum meginhlutanum af þessu safni, enda hefur forseti vor látið í ljós áhuga á, að svo verði gert.
Ég tel, að minningu mikils menntamanns og mjög merks manns í íslenzku þjóðlífi verði mjög mikill sómi sýndur, ef úr þessari ráðagjörð verður, og ég vænti þess, að þessi till. hljóti mikinn og góðan stuðning hér á hinu hv. Alþ.