19.12.1967
Sameinað þing: 25. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í B-deild Alþingistíðinda. (477)
1. mál, fjárlög 1968
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Í fjárlagafrv., eins og það liggur fyrir nú á þskj. 143 við upphaf 3. umr., eru ríkistekjurnar áætlaðar 6,042 millj. 976 þús. kr. Tekjuafgangur rúml. 37 millj. kr. og greiðsluhalli rúml. 9 millj. kr.
Ég minnist þess, að afgreiðsla frv. við 2. umr. var með nokkuð óvenjulegum hætti. Frá fjvn. lá þá fyrir mikill fjöldi brtt., en þær voru að mestu leyti skrifstofuverk, umreikningur á einstökum útgjaldaliðum vegna gengisbreytingarinnar 24. nóv. s.l., en lítið um brtt. við útgjöldin af öðru tagi. Hitt var þó bagalegra fyrir þm., að við þessa umr. lá ekkert fyrir um hina miklu breytingu til aukningar á ríkistekjum, sem ætla mátti, að verðhækkun erlends gjaldeyris og þar með innfluttra vara hefði í för með sér, en auðsætt var frá öndverðu, að tolltekjur hlutu að hækka mjög af þessum sökum og einnig söluskattur verulega. Af hinni ófullkomnu afgreiðslu fjárlagafrv. við 2. umr. leiðir, að svo að segja öll sú afgreiðsla, sem mestu máli skiptir, hlýtur að fara fram nú við síðustu umræðu. Tillögum fjvn., sem þm. verða að miða afstöðu sína við nú og sníða sínar till. eftir, var útbýtt kl. 9 í gærkveldi og talið er, að áformað sé að ljúka síðustu umr. fjárl. í nótt.
Alþ. sem slíku er því ætlaður einn sólarhringur eða svo til að átta sig á því, hvort 6 — 7 þús. millj. kr. ríkistekjur séu rétt áætlaðar og hvernig þessum miklu fjármunum verði bezt varið að dómi þess.
Á þessum örstutta tíma er okkur, kjörnum þjóð- fulltrúum, ætlað að hlýða á ræður og, ef svo ber undir, að flytja ræður um einstaka þætti þessa mikla máls og gera okkur grein fyrir, hvort þær till., sem fram eru komnar úr fjvn., séu þess eðlis, að við getum við þær unað án aðgerða, eða hvort ástæða sé til þess fyrir okkur að bera fram aðrar till. og þá að undirbúa þær till. og flytja. Ég leyfi mér að átelja þessa aðferð og vara við henni. Ég held jafnvel, að skárra hefði verið, úr því að sérstaklega stóð á vegna gengisbreytingarinnar, að fresta endanlegri afgreiðslu fjárl. fram yfir áramót en að fara þannig að. Og slíka frestun mundi ég ekki hafa átalið eða átelja, eins og á stendur vegna gengisbreytingarinnar, þótt hún sé að jafnaði lítt réttlætanleg og auðvitað óæskileg, en fyrir því eru þó fordæmi.
Fyrir nokkrum áratugum, eða áður en farið var að rjála til muna við kjördæmaskipun landsins, mælti stjórnarskráin svo fyrir, að fjárl. skyldu afgreidd við 6 umr. eða fleiri í báðum deildum og, ef svo bar undir, að lokum í sameinuðu Alþ. Þá fóru líka fram eldhúsumr. svo kallaðar við lok 1. umr. og þá rætt um ríkisbúskapinn almennt.
Nú er búið að slíta þessar almennu umr. um ríkisbúskapinn úr sambandi við fjárl. Þær eru orðnar að útvarpsumr. milli útnefndra fulltr. þingflokkanna eingöngu, og aðrir þm. leggja þar ekki orð í belg. Sama er raunar að segja um 1. umr. fjárl. Hún er líka orðin útvarpsumr. fyrir löngu síðan. Nú í ár er Alþ., löggjafar- og fjárveitingasamkomu hinna kjörnu þjóðfulltrúa, í rauninni ætlað að hafa aðeins eina umr. um fjárlagafrv., eina umr. sem því nafni má nefnast, því að ég hef áður getið þess, hvernig 2. umr. fór fram, hvernig skilyrðin voru til þess að láta þá umr. fara fram. Þessi eina umr., sem því nafni má nefna um fjárl., hófst kl. 2 í dag og mun eiga að enda, eins og ég sagði áðan, í nótt, og það eru ekki nema nokkrar klst. siðan við alþm. hlýddum á framsöguræður frsm. fjvn. og vissum, hvað til umr. var í raun og veru.
Nú má e.t.v. segja, að við þetta mætti una, ef þm. almennt hefðu haft aðstöðu til þess frá öndverðu að fylgjast með þeirri tillögugerð, sem í vændum var, og hafa íhlutun um hana, t.d. með aðstoð þingmannafunda kjördæmanna eða funda í þingflokkum, en svo er ekki, nema þá e.t.v. í þingflokki ríkisstj., sem ég veit ekki um og raunar efast um.
Jafnvel þingflokkarnir hafa naumast fengið ráðrúm til venjulegra fundarhalda milli 2. og 3. umr. fjárl.
Slíkt óðagot hefur ríkt undanfarna daga og hefur áður verið gert að umræðuefni meðal ráðamanna hér í þingsalnum, að mál var hrifið úr höndum hv. Nd., áður en hún hafði afgreitt það, og tekið ólöglega til meðferðar í hv. Ed.
Þetta var auðvitað óviljaverk, en það er ekki gott, að þeir, sem ríkjum eiga að ráða, séu flaumósa við löggjafarstörf.
Nú er ég að vísu ekki að segja það með þessu, að um þetta, sem ég hef nú verið að lýsa, vilji ég kenna þeim eingöngu, sem verkstjórn hafa á þessu hv. Alþ. Þróunin hefur miðað í þessa átt, því miður, en við verðum sérstaklega varir við það, hvernig komið er, þegar þannig stendur á sem nú um afgreiðslu fjárl. við sérstök skilyrði. Og ég held, að hér sé um að ræða málefni, sem við þurfum öll, sem á þingi sitjum, að gefa gaum að, hvar við erum á vegi stödd um meðferð hinna þýðingarmestu mála og hvernig unnið er að þeim á þessari löggjafarsamkomu, sem stundum er kölluð þúsund ára.
Ég hef hér fyrir framan mig tvær áætlanir úr hv. fjvn., frá meiri og minni hl., um tekjuaukann á næsta ári vegna gengisbreytingarinnar. Meiri hlutinn áætlar hækkun tollteknanna, að mér skilst, rúmlega 50 millj., en minni hlutinn 232 millj. Þessar tölur, sem ég nefndi áðan, taka ekki til söluskattsins. Mér er næst að halda, að jafnvel áætlun minni hl. hljóti að vera of lág, hvað þá þessi, en ég hef ekki í höndum gögn til þess að rökstyðja það og ekki ráðrúm til þess að afla þeirra. Hins vegar hlustaði ég með athygli síðari hluta dags í dag á ræðu þá, sem hv. 1. þm.
Vestf. flutti um þetta mál. Það var ekki löng ræða, en þar virtist mér með skýrum talnarökum sýnt fram á það, sem ég er að halda fram hér án þess að nefna sérstaklega tölur því til stuðnings, að í raun og veru sé þessi tekjuáætlun mjög undarleg og hún hljóti að vera til muna of lág. Þarna skal ég fara fljótt yfir sögu, en ég ætla mér að ganga út frá því, m.a. með tilvísun til þeirra talna, sem hv. 1. þm. Vestf. flutti hér áðan, að um lága tekjuhækkunaráætlun sé að ræða.
En í því sambandi vil ég láta koma hér fram þá skoðun mína, að nú þegar ríkissjóður fær allt í einu mikið fé handa á milli, sem hann áreiðanlega fær, ef ráða má af líkum, þá eigi að verja bróðurpartinum af því fé til að auka stuðninginn við uppbygginguna í þágu landsbyggðarinnar á ýmsum sviðum.
Sú hætta vofir sífellt yfir, sem og áþreifanlega hefur komið fram í niðurskurði hæstv. ríkisstj. á framlögum til verklegra framkvæmda undanfarin 3 ár, að strax og eitthvað bjátar á fyrir ríkissjóði, sé ráðizt á uppbyggingarféð, framlög til samgöngubóta, hafnarfé, rafvæðingarfé, skólafé og ýmislegt fleira af því tagi, og það lækkað vegna almennra útgjalda, er kastað er í dýrtíðarsvelginn, eins og gert var fyrir og eftir síðustu kosningar.
Þannig er alltaf hætta á, að framkvæmdafé lækki í hlutfalli við önnur ríkisútgjöld og miðað við verðgildi krónunnar. Hvenær, sem tækifæri gefst, þarf því að rétta hlut uppbyggingarinnar, af því að hin hættan, sem ég nefndi áðan, vofir aftur yfir. Eitt slíkt tækifæri tel ég að sé nú og það beri að hafa í huga.
Nú kynni t.d., hvort sem það er gert í sambandi við afgreiðslu þessara fjárl. eða á annan hátt í sambandi við aðra löggjöf, að vera möguleiki til að bæta hag vegasjóðs með nýjum tekjustofni, en till. hafa verið uppi um það á Alþ. og eru enn. Ef ekki nú, hvenær þá? vil ég spyrja. Þetta var nú um vegamálin, en ég ætla ekki að ræða um þau frekar, enda er vegaáætlunin ekki mál þessa þings. En í sambandi við framkvæmdir í þágu landsbyggðar, þá er mér á þessari stundu einkum þrennt eða fernt í huga, og um það vil ég nú leyfa mér að fara nokkrum orðum, áður en ég kem að þeim brtt., sem ég mæli fyrir að þessu sinni.
Ég drep þá fyrst á það verkefni að ljúka rafvæðingu dreifbýlisins. Um það efni liggja fyrir 2 till. frá hv. minni hl. fjvn. Þær till. vil ég styðja og treysti því, að hæstv. ríkisstj. noti þá heimild til lántöku, sem þar er um að ræða. En sú till., eins og hún er fram borin, eykur ekki útgjöld ríkissjóðs út af fyrir sig á þessu ári. En hin till., frá minni hl., er um hækkun á beinu framlagi til raforkuframkvæmda, sem nam rétt um 10 millj. kr.
Næst vil ég leyfa mér að nefna íbúðalánamálið. Þeim fer nú fjölgandi, sem bera sér það í munn, að stuðla beri að jafnvægi milli landshluta. Eitt af því, sem mestu skiptir í því sambandi, er að það fólk, sem vill eiga heima í átthögum sínum víðs vegar um land eða flytjast þangað, geti átt viðunandi þak yfir höfuðið. Hér í umr. hefur verið ljóst ástandi í íbúðalánamálum á höfuðborgarsvæðinu. Það gerði einn af hv. þm. Reykvíkinga og dreg ég ekki í efa það, sem þar var sagt, enda alkunna, að lánastarfsemin er nú eða virðist vera strönduð um sinn, þ.e.a.s. veiting nýrra lána til íbúða úr veðlánakerfinu eða frá húsnæðismálastjórn, m.a. vegna hinnar svo kölluðu Breiðholtsáætlunar, sem komið var á laggir vegna hins margnefnda júnísamkomulags, sem raunar er víst lítið eftir af, nema kannske Breiðholtsáætlun og vísitöluálag húsaæðislánanna. En annars staðar á landinu mun ástandið þó verra, og t.d. á Akureyri, sem er fjölmennasti bær utan Reykjavíkursvæðisins, er almennt talið, að menn hafi orðið mjög afskiptir við úthlutunina miðað við úthlutunina á Reykjavíkursvæðinu, þó að sitt hvað megi að henni finna, eins og gert hefur verið.
Ég hef nýlega haft undir höndum og verið að lesa nýútkomið hefti Fjármálatíðinda. Í þessu hefti er nokkuð merkileg ritgerð, samin af manni, sennilega hagfróðum, sem heitir, ef ég man rétt, Pétur Eiríksson, og sagt, að hún sé samin í Efnahagsstofnuninni. En þessi ritgerð er um húsnæðismál á Íslandi. Þar er m.a. húsnæðisspá um næstu 5 ár og er gert ráð fyrir, að byggja þurfi í landinu á þessum 5 árum, að mig minnir, 8000–8500 íbúðir. Margt fleira er fróðlegt í þessari grein. En eitt af því, sem fram kemur í greininni, er samanburður á byggingarstarfseminni, fjárfestingunni í íbúðum eftir landshlutum. Höfundur ber m.a. saman íbúðabyggingar annars vegar þar, sem kallað er Reykjavíkursvæði, sem er Reykjavík og sex önnur sveitarfélög hér við Faxaflóa, og hins vegar í landinu öllu utan Reykjavíkursvæðisins, ber þetta saman á ýmsan hátt og leggur til grundvallar íbúatölur á þessum svæðum. Þar kemur það í ljós t.d., að byggingarstarfsemin á árinu 1966 skiptist þannig, að utan Reykjavíkursvæðisins, þ.e.a.s. alls staðar annars staðar á landinu en á Reykjavíkursvæðinu, voru á þessu ári ekki byggð nema 60% af þeim íbúðum, sem þar hefði átt að byggja, miðað við íbúafjölda. Þetta er þannig reiknað út, að allar íbúðabyggingar eru lagðar í það, sem höfundur kallar fullgerðar íbúðir. Þetta er að segja um árið 1966 og er því við þetta að bæta, að á því ári hafa verið lagðar niður hátt á þriðja hundrað íbúða á öllu landinu utan þessa litla svæðis, en ekki nema eitthvað um 30 á Reykjavíkursvæðinu. Þetta sýnir, að þó að því hafi verið lýst, að íbúar hér á þessu svæði hafi átt í erfiðleikum vegna lítilla lánveitinga, sem sjálfsagt er rétt, þá er þó ástandið miklu alvarlegra í landsbyggðinni utan Reykjavíkursvæðisins, miklu alvarlegra. Og það er eiginlega vandséð, til hvers það leiðir, ef slík þróun heldur áfram, og þó reyndar ekki vandséð, þegar betur væri að gáð, ef ekki er byggt í öllu landinu utan þess svæðis nema svo sem 60% af því sem þar ætti að byggja miðað við fólksfjölda. Þetta vil ég bera í tal í sambandi við þessi mál, og ég vil jafnframt taka það fram, að ég er mjög ánægður með það, að minni hl. n. hefur lagt til, að nokkurri fjárupphæð verði varið til stuðnings íbúðalánakerfinu, þó auðvitað þurfi þar miklu meira til að koma og fleira að ske í þessum málum. Það verður að skipuleggja íbúðalánastarfsemina í landinu í heild með ýmis þjóðleg og félagsleg sjónarmið fyrir augum.
Ég ætla að leyfa mér að minna á það, að á síðasta þingi voru samþykkt ný hafnalög. Það hafði verið beðið mjög lengi eftir þessari löggjöf. Ég ætla, að það hafi verið fyrir einum 11 árum, sem Alþingi gerði ráðstafanir til þess með ályktun, að hafnalögin yrðu tekin til endurskoðunar, það mun hafa verið 1956, og þá m.a. hlutfallið milli ríkisframlaga og framlaga einstakra hafnarsjóða til hafnargerða. Og það eru mörg ár síðan farið var að bera fram till. um þessi efni sérstaklega hér á hv. Alþingi, en loksins í fyrra lagði hæstv. ríkisstj. á áliðnum vetri fram frv. til nýrra hafnalaga. Þó að á þessum lögum séu gallar, sem hefði átt að afnema, þá held ég að það sé skoðun margra, að l. í heild séu til bóta fyrir hafnagerðarstarfsemina. En þau fela m.a. í sér verulega hækkun á framlagi ríkissjóðs til svo kallaðra undirstöðumannvirkja í höfnum, úr 40% upp í 75%. Og það er verulegur hluti af hafnarmannvirkjunum, sem feilur undir þetta nýja ákvæði. Nú er það svo, að þessi ákvæði hafa að sjálfsögðu í för með sér, ef eðlilega væri að farið, verulega hækkun á ríkisframlögum til hafnargerðar og það er raunar svo, að í þeim till., sem fyrir liggja frá ríkisstj, eða meiri hl. fjvn. um framlög til nýbygginga á höfnum, þá er upphæðin allverulega hækkuð frá því, sem áður var. Hins vegar er það dálítið áberandi, að þar er undan fellt að veita framlög til ýmissa hafna, sem þó eru enn í smiðum. Ég hef m.a. veitt athygli höfnum í mínu kjördæmi, sem þannig er ástatt um, en mun þó ekki bera fram brtt. um það efni. En í þessum I. er gert ráð fyrir því, að á árinu 1968, þ.e.a.s. haustið 1968, skuli leggja fyrir Alþingi fjögurra ára áætlun um hafnaframkvæmdir, þ.e.a.s. fyrir 1969 til 1972. Það er sem sé næsta haust, sem sú áætlun á að leggjast fyrir Alþingi. Og í l. segir, að áætlunin skuli vera lögð fyrir þingið til leiðbeiningar og vita- og hafnamálastjóri skuli framkvæma hana eftir því, sem fé sé fyrir hendi. Það er nú ekki stund eða staður til þess að fara að gagnrýna þessa löggjöf, hafnalögin, en þetta áætlunarákvæði um, að áætlun sé lögð fyrir Alþingi til leiðbeiningar og síðan framkvæmd af framkvæmdavaldinu er náttúrlega dálítið hláleg, og var á það bent á sínum tíma, en á þessari áætlun á þingið von næsta haust, fyrr ekki. Það er þess vegna úr lausu lofti gripið, sem einhverjum forsvarsmönnum hafna virðist hafa verið sagt hér af þeim, sem stjórna þessum málum, að þeir skuli vera rólegir, því að þeirra mannvirki séu á fjögurra ára áætlun. Sú áætlun er ekki til enn þá og hefur ekki verið lögð fyrir Alþingi skv. l.
Af þeim 70 til 80 höfnum, sem unnið hefur verið að hér að staðaldri í landinu undanfarið, er nú veitt fé til nýbygginga í 27 eða 28, að ég ætla. En það eru engar sérstakar framkvæmdir, engar sérstakar fjárveitingar til hinna hafnanna, og er þó þannig ástatt um þær mjög margar, að ríkissjóður skuldar þeim eða hafnarsjóðum þeirra mikið fé. Það er ætlazt til þess að upp í þessa skuld verði greitt af einni sameiginlegri fjárveitingu, sem stendur í fjárlagafrv. í þessu skyni, þ.e.a.s. upp í eftirstöðvar hafnarframlaganna.
Í sambandi við þetta mál, greiðslu skuldanna við hafnarsjóði, hafa orðið nokkur tíðindi við meðferð málsins. Í frv. eins og það lá fyrir við 2. umr. eru þessar greiðslur upp í skuldir við hafnarsjóði áætlaðar 20 millj. rúmlega, eins og getið var um af einhverjum hv. þm. hér áðan. En nú sé ég í till. hv. meiri hl. fjvn., að þessi upphæð hefur verið lækkuð niður í 10 millj. Þessi upphæð til þess að greiða upp í eftirstöðvar af framlagi til hafna er lækkuð niður í 10 millj. kr., og mun vera talið, að þar sé aðeins um tilfærslu að ræða yfir í nýbyggingarnar. Út af fyrir sig er það mjög gott að auka fé til nýbygginganna, en ég sé ekki, að það sé viðunandi á ári sem þessu að greiða ekki meira upp í skuldir ríkisins við hafnasjóði en 10 millj. kr. Þessar skuldir eru taldar yfir 70 millj. kr., 75 millj. kr., sagði einn hv. þm. áðan, sem ég geri ráð fyrir að sé rétt, og ef ekki á að greiða meira árlega en 10 millj. upp í þessar skuldir, þá tekur það 7 ár að greiða hafnasjóðunum það, sem þeir eiga inni hjá ríkissjóði og hafa búizt við að fá áður en langt um liður. Þessu finnst mér alveg óhjákvæmilegt að ráða bót á, það er ekki hægt að hugsa sér þetta svona. Ég mun greiða atkv. gegn þessari brtt. frá meiri hl. fjvn. að lækka töluna úr 20 millj. niður í 10, en vil nú nota tækifærið til þess að lýsa brtt., sem ég flyt ásamt tveimur öðrum hv. þm., hv. 1. þm. Vestf. og hv. 8. landsk. þm., um að taka inn í 6. gr. heimild til 10 millj. kr. greiðslu upp í eftirstöðvar hafnarframlaga, til viðbótar því, sem veitt verður í 4. gr. Ég óttast sem sé, að þessi till. meiri hl. hv. fjvn. verði samþykkt, við óttumst það, flm. þessarar brtt., og því viljum við leggja til, til þess að reyna að bjarga þessu máli, að tilsvarandi upphæð verði tekin upp í heimildagr. Eins og ég sagði áðan, þá á ég von á því, og það virðast fleiri eiga, að tekjur ríkissjóðs af tollahækkunum muni reynast verulega meiri heldur en þær eru áætlaðar, og það mun þá koma fram sem tekjuafgangur hjá ríkissjóði. Um þetta er náttúrlega ekki hægt að sanna neitt nú, en ef það kemur fram, að það reynist rétt, sem við gerum ráð fyrir, þá viljum við að það liggi fyrir, að Alþingi hafi bent á, hvað við þessa upphæð eigi að gera, þessar 10 millj. Ég vil einnig taka það fram, að ég stend að fleiri brtt. af sama tagi, brtt. við 6. gr., við heimildagr., sem ég og aðrir þeir, sem að þeim standa, ætlast til, að komi til framkvæmda, þ.e.a.s. að heimildirnar verði notaðar, ef féð reynist fyrir hendi, sem við teljum líkur til að verði.
Á síðasta þingi voru líka samþykkt ný skólakostnaðarlög. Og í þeim l. virtist mönnum felast töluvert bætt aðstaða fyrir þau sveitarfélög, sem standa að skólum, bæði með því, að hlutfall ríkisins af kostnaði við heimavistir og kennaraíbúðir var hækkað mjög verulega og sennilega meira en kostnaður við skólahúsnæði að öðru leyti verður lækkaður, og einnig af því, að gert var ráð fyrir, að ríkisframlagið til skólabygginganna yrði eftirleiðis greitt á 2–3 árum, sem margir hugðu gott til. Þessi l., sem samþykkt voru seint á síðasta þingi, eða rétt fyrir kosningar, hafa af sumum í minni áheyrn verið kölluð kosningavíxill ríkisstj., og mörgum mun hafa litizt vel á þetta, en þessi víxill, ef víxil ætti að kalla, er töluvert ólíkur því, sem almennt gerist um víxla. Það er nefnilega svo um víxla almennt, að það er tiltekið, að þeir falli á ákveðnum degi, og þá verður að borga víxilinn. Annars er hann afsagður. Hann er afsagður og innheimtur með málssókn. En þessi víxill fellur í rauninni ekki, fyrr en sá sem á að borga víxilinn vill láta hann falla. Í ákvæði til bráðabirgða, sem samþykkt var aftan við 1. till. hæstv. ríkisstj., segir svo:
„Stofnkostnaður til skólamannvirkja, sem samþykkt hafa verið áður en reglur byggingadeildar verða staðfestar, skal skiptast milli ríkis- og sveitarfélaga og greiðast eftir sömu reglum og giltu skv. l. nr. 41 1955.“
En sá, sem samþykkir þessar reglur, er sá, sem á að borga víxilinn, hæstv. ríkisstj. Og því má náttúrlega segja það, ef mönnum finnst það geti nú skeð á annað borð, að ef ríkisstj. vilji svo vera láta, þá þurfi þessi lagaákvæði aldrei að ganga í gildi, því að hún geti dregið að setja þessar reglur, og þar með fjarlægt fall víxilsins, þessi ríkisstj. eða einhver önnur, sem við tæki á eftir henni. En ég geng nú út frá því, að þetta væri ekki hugsað þannig, heldur að reglugerðin yrði gefin út á eðlilegum tíma fyrir reglugerðir. Það hefur ekki tíðkazt að láta útgáfu reglugerðar dragast mjög lengi og enn þá er ég í þeirri trú, að útgáfa þessarar reglugerðar geti ekki dregizt lengur en 1 ár frá samþ. l. og að þá komi þessi ákvæði til framkvæmda á næsta sumri. En af því hlýtur að leiða mjög verulega aukinn kostnað fyrir ríkissjóð. En til þessa kostnaðarauka og hinnar auknu eftirspurnar eftir skólafé er ákaflega lítið tillit tekið í fjárlagafrv., sem liggur fyrir. En ég tel, að bygging skólahúsnæðis víðs vegar um landið sé eitt af því, sem mest kallar að á mörgum stöðum, m.a. í sambandi við jafnvægi milli landshlutanna og af því, að þar er ekki á viðunandi hátt séð fyrir skyldufræðslunni. Hæstvirtur menntmrh. sagði það hér um daginn í minni áheyrn í hv. Nd., að til væri skólahúsnæði fyrir alla, það væri bara ekki hægt að vísa öllum á heimavistarskóla, annars væri skólahúsnæði fyrir alla. Ég veit ekki, hve víða hæstv. menntmrh. hefur farið um það land, sem hann stjórnar, en það vitum við nú öll, sem þekkjum til í hinum dreifðu byggðum landsins, að ef um skólahús á að vera að ræða í strjálbýlinu, þá verður það að vera heimavistarskóli mjög víða. Annars er ekki um skólahús að ræða, sem gagn sé að. Til þessa hefur fyrirkomulagið víða verið farkennsla á heimilum. En það mun ekki hafa verið þetta, sem hæstv. ráðh. var að vísa til.
Nú hefur mér að vísu dvalizt nokkuð við almennar umr. að þessu sinni, en það tel ég ekki nema eðlilegt, þegar ástatt er, eins og ég hef áður gert grein fyrir, en þetta er í raun og veru fyrsta og eina umr., almenna umr., sem fram fer um fjárl. að þessu sinni, vegna þess að skilyrði hafa ekki verið til þess áður. En ég kem þá að því næst, að lýsa brtt., sem ég flyt hér ásamt fleiri þm. úr mínu kjördæmi og mér er ætlað að mæla fyrir. Svo stend ég einnig að öðrum till., sem aðrir mæla fyrir. Ég hef þegar mælt fyrir einni brtt., sem ég stend að, þ.e.a.s. varðandi greiðslu hafnaframlaganna, en hún snertir ekki sérstaklega mitt kjördæmi.
Það, sem ég þá fyrst vil koma að, er brtt. II á þskj. 202, en meðflutningsmenn mínir að henni eru hv. 3. þm. Norðurl. e., hv. 4. þm. sama kjördæmis og hv. 5. þm. sama kjördæmis. Hún er við 4. gr., og kann ég ekki nánar að tilfæra stað hennar í því völundarhúsi, sem nýja fjárlagafrv. er, um það að veitt verði á þessu ári 400 þús. kr. til safnahússins á Húsavík. Erindi um þetta mál frá byggingarnefnd safnahúsins á Húsavík hefur legið í ráðuneyti, en nú í vetur, eftir að málið hafði verið rætt á þingmannafundi Norðurlandskjörd. e. sendum við hv. 11. landsk. þm. Bjartmar Guðmundsson nýtt erindi um þetta til fjvn. þar sem farið var fram á að vísu nokkru hærri upphæð en hér er tilnefnd. Aðilar að safnahúsbyggingunni á Húsavík eru Húsavíkurkaupstaður og S.- Þingeyjarsýsla, en unnið hefur verið um skeið að söfnun frjálsra framlaga í þessu skyni og hafa safnazt 250 þús. kr., að ég ætla, frá um 50 aðilum, sem hver um sig hefur lagt fram verulega upphæð, en söfnun er haldið áfram. Í þessu safnahúsi á að vera minjasafn, byggðasafn, sem kallað er, bókasafn, skjalasafn, náttúrufræðisafn og listmunasafn þessara byggðarlaga, þ.e. S.-Þingeyjarsýslu og Húsavíkurkaupstaðar.
Meðal þessara safna, sem gert er ráð fyrir að verði þarna til húsa, er hið fræga bókasafn, sem Benedikt á Auðnum stóð fyrir um langa hríð og sem nú á ekkert þak yfir höfuðið og er í leiguhúsnæði. Enn fremur er ætlazt til, að þarna verði nokkuð mikið af munum, sem nú eru geymdir í Grenjaðarstaðarbænum í Aðaldal, en verða fluttir þaðan, aðrir en þeir munir, sem segja má að tilheyri venjulegum sveitabæ. Skjalasafn allmikið er þegar fyrir hendi, sem þessir aðilar eiga, sýslan og kaupstaðurinn, og raunar vísir líka að listmunasafni og náttúrufræðisafni. Þetta hús verður á 3 hæðum, gólfflötur hæðanna þriggja samtals 1156 m2, og teikning hefur verið gerð af Þorvaldi Þorvaldssyni arkitekt. Verkið var hafið s.l. sumar og hefur verið steypt upp jarðhæð með lofti og heimaaðilar hafa þegar lagt í framkvæmdina 11/2 millj. kr. Áformað er að gera húsið fokhelt sem fyrst, sem mundi sennilega kosta 4 millj. kr., og innrétta það síðan smátt og smátt, eftir því sem þörf kallar að og geta leyfir. Við, sem að þessari till. stöndum, teljum, að hér sé um einstakt menningarframtak að ræða, sem S.- Þingeyjarsýsla og Húsavíkurkaupstaður og margir einstaklingar hafa sýnt alveg einstakan og lofsverðan áhuga fyrir. Og við flutningsmenn álitum, að Alþingi beri að viðurkenna þetta menningarframtak. Ég ætla, að hér sé ekki um fordæmi að ræða í bili, því að aðrir hafa ekki hafið framtak á þennan hátt í sameiningu við að hyggja hús fyrir slík söfn, sem sameinuð verði undir einu þaki. Ég vil vænta þess, að þessari tillögu verði vel tekið.
Þá er það enn ein brtt., sem mér ber að mæla fyrir. Hún er einnig á þskj. 202, IV, og einnig við 6. gr. og er þess efnis, að ríkisstj. verði veitt heimild til að greiða vegna framkvæmda á árinu 1968 eða sem geymslufé til næsta árs aukaframlag til byggingar skólahúsa í Eyjafjarðarsýslu, N.-Þingeyjarsýslu og S.- Þingeyjarsýslu, allt að 10 millj. kr. Um þetta á við hið sama og ég hef áður sagt um aðra till., að við gerum ráð fyrir því, að fyrr eða síðar verði úr því skorið, hvort þeir hafa rétt fyrir sér, sem álíta, að tekjur ríkissjóðs séu nógu hátt áætlaðar, þ.e.a.s. nýjar tekjur, eða hinir, sem álíta, að þær séu of lágt áætlaðar og muni verða meiri. Og ef þær verða meiri sem því nemur, eða meira en það, þá viljum við leggja til, að þessu fé, sem ríkisstj. býst ekki við að fá í kassann, en fengi þá, verði varið sem aukaframlagi til skóla í þessum þremur sýslum, annaðhvort til framkvæmda á þessu ári, eftir því sem fræðslumálastjórnin nánar ákvæði og veitti leyfi til, eða þá þannig, að það verði geymt til næsta árs til viðbótar þeim fjárveitingum, sem þá kynnu að falla til þessara skóla. En hvers vegna til þessara skóla í þessum þremur sýslum? Við erum nú fulltrúar þess kjördæmis, sem þessar sýslur eru í, og höfum sérstaklega auga á þessum hlutum, en auk þess ætla ég, að ekki séu í neinu kjördæmi uppi eins mörg áform og eins dýr um nauðsynlegar skólabyggingar í sýslum landsins og í þessu kjördæmi. Við höfum haft á milli handanna, þm. Norðurlandskjörd. eystra, a.m.k. 8 erindi um framkvæmdir á 8 skólastöðum í þessum sýslum. Ég skal nefna þær lauslega. Á Dalvík er áætlað að byggja heimavist við gagnfræðaskóla, sem er orðin mjög aðkallandi. Á Laugalandi á Þelamörk vantar heimavist við skyldunámsskóla, sem hlutaðeigendur eru reiðubúnir til að hefja byggingu á, og hafa samþykkt að hefja nú í vor, ef leyfi fæst, vegna brýnnar nauðsynjar. Á Hrafnagili í Eyjafirði er áformuð bygging barnaskóla og miðskóla, sem er mikil framkvæmd og dýr, á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði fyrir vesturhluta S.-Þingeyjarsýslu og á Hafralæk í Aðaldal fyrir austurhluta S.- Þingeyjarsýslu. Við héraðsskólann á Laugum er áformað að byggja viðbót við skólann — íþróttahús. Í Lundi í Axarfirði, þar sem nú er rekinn héraðsskóli, standa fyrir dyrum framkvæmdir, sem eru áformaðar, og austur við Þistilfjörð áforma tveir hreppar að byggja heimavistarskóla. Ég held, að það eigi við um alla þessa aðila, að þeir séu reiðubúnir að hefja framkvæmdina, ef þeir fá leyfi til og eðlilegt framlag fæst.
Ég hef tekið saman í dag, samkvæmt upplýsingum, sem ég hef fengið þar um, hvaða upphæðum þetta nemur, þ.e.a.s. þeir áfangar skólamannvirkjanna, sem nú er um að ræða, sem sums staðar eru að vísu skólarnir í heild, þar sem um minni framkvæmdir er að ræða. Mér telst svo til, að sumir áfangar, sem sótt hefur verið um framlög til, nemi samtals fram undir 140 millj. kr. Og þá er ekki þessum húsum lokið nema sumum. Þetta eru áfangar, þeir áfangar, sem menn gera ráð fyrir að byggja nú. Og okkur finnst, að það verði eiginlega ekki dregið lengur að veita eitthvað meira til skólaframkvæmda í þessum héruðum, heldur en þær óverulegu upphæðir, sem nú eru í fjárlagafrumvarpinu. En til skóla, sem samkvæmt upplýsingum, sem ég hef undir höndum, kostar 27 millj., er þar ætlazt til, að veitt verði 1 millj. 400 þús. Mér finnst það væri nokkur viðleitni í þessa átt, ef svo vel vildi til, að þeir reyndust sannspáir sem gera ráð fyrir, að tekjuauki verði meiri, heldur en nú hefur verið áætlað, að ef þeir reynist sannspáir, þá verði þessir skólar, eða fólkið, sem stendur að þessum skólum, ungmennin, sem eiga að njóta þeirra, látin njóta þess, þannig að byrjað verði á að leggja fram á þessu ári þessa upphæð, 10 millj. kr., sem er auðvitað ekki mikið, og hún notuð á árinu, ef það reynist framkvæmanlegt, ella geymd til næsta árs til viðbótar þeim fjárupphæðum, sem þá verður vonandi ekki komizt hjá að samþykkja, þó óvíst sé, að fjárhagur ríkissjóðs verði þá betri né útlit fyrir betri fjárhag í byrjun árs en nú.