19.12.1967
Sameinað þing: 25. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 612 í B-deild Alþingistíðinda. (485)
1. mál, fjárlög 1968
Vilhjálmur Hjálmarsson:
Herra forseti. Ég er meðflm. m.a. að brtt. VIII á þskj. 199, og vil leyfa mér að fara um hana örfáum orðum.
Hér er um heimildarákvæði að ræða, viðbót við heimildarákvæði fjárl. Það er sitt hvað, eins og raunar fram hefur komið hjá 1. flm., sem við teljum, að styðji þessa till. okkar. Í fyrsta lagi er það, að við verðlagningu landbúnaðarafurða á þessu hausti, þessum vetri er réttara að segja, gerist það, að verðlagningin dregst mánuð eftir mánuð og meðan þessu fer fram, er gengi íslenzkrar krónu lækkað. Það liggur alveg á borðinu, að ef verðlagt hefði verið á eðlilegum tíma og farið nærri þeim venjum, sem giltu árum saman um verðákvörðun á ull og gærum, hefði útkoman orðið töluvert mikið önnur heldur en hún varð nú. Það var til mjög margra ára venja að verðleggja þessar vörur í samræmi við þær áætlanir um verð þessara vara, sem útflytjendur lögðu fram. Auðvitað fékkst ekki í reynd nákvæmlega það verð, sem fært var inn í grundvöllinn. En þarna skakkaði aldrei mjög miklu. Það varð stundum hærra, en stundum varð það líka aðeins lægra. Hefði verið fylgt þessari venju og verðlagt á eðlilegum tíma í haust, þá hefði verð á þessum vörum verið sett miklu lægra í grundvellinum heldur en það var sett nú. Af því hefði svo leitt, að verð á öðrum hlutum sauðfjárframleiðslunnar og fyrst og fremst kjöti, hefði þurft að hækka að sama skapi. En þetta var ekki gert og sú hækkun, sem þarna hefði komið fram og komið til góða landbúnaðinum og bændum, kemur aldrei fram, er töpuð. Ég fer ekki með tölur um þetta, því að það er auðvitað ómögulegt að setja þær nákvæmlega upp, en það er augljóst, að ef farið hefði verið að venju, gömlu venjunni, um þessa hluti, hefðu þessar upphæðir numið milljónatugum.
Annað atriðið, sem við teljum almennt, að styðji þessa kröfu og geri hana meira en frambærilega, beinlínis réttlætiskröfu, er það, að í úrskurði yfirnefndar nú er það beinlínis tekið fram í grg., sem og sést á niðurstöðum, að verðlag breytist nálega ekki frá því, sem það var s.l. verðlagsár, og það er beinlínis vitnað til verðlagssamninganna 1966 og tekið fram, að þeir séu nú framlengdir. Hv. 1. flm. till. gerði grein fyrir þessu atriði, og hann benti á það, sem er staðreynd, að í fyrra, þegar samið var um verðlagið í Sexmannanefnd, var um leið gert samkomulag við ríkisstj., hæstv. landbrh. fyrir hennar hönd, um það, að gerðar yrðu veigamiklar ráðstafanir landbúnaðinum til góða. Þetta fylgdi sem sagt verðlagningunni þá, og úr því að verðlagningin nú er miðuð við samningana í fyrra, er eðlilegt, að einnig nú séu settar fram ákveðnar óskir um hliðstæðar fyrirgreiðslur og veittar voru þá.
Ég vil aðeins fara örfáum orðum um hina þrjá liði þessarar till. Hinn fyrsti fjallar um það að greiða niður kjarnfóðrið. Það er hv. alþm. kunnugt, að heyfengur var með minna móti s.l. sumar yfirleitt og sums staðar var hann mjög af skornum skammti. Og þetta atriði virðist mér réttlæta það að óska eftir niðurgreiðslu á kjarnfóðri fyrir þennan vetur. Ég vil hins vegar taka það skýrt fram, að undir venjulegum kringumstæðum álit ég mjög óheppilegt að gera sérstakar ráðstafanir til að halda niðri verði á innfluttu fóðri. Þvert á móti er það eðlilegt og æskilegt á venjulegum tímum að styðja innlendu fóðuröflunina. Mætti gera það með ýmsu móti og m.a. með því að gera sérstakar ráðstafanir til verðlækkunar á áburði. En eins og nú stendur á, tel ég þetta fyllilega réttmætt. Það verða gerðar nokkrar leiðréttingar á verðgrundvellinum nú um næstu áramót í samræmi við þau lög, sem afgreidd voru hér á hv. Alþ. fyrir nokkrum dögum. Og það má segja, að með þeirri lagasetningu fái landbúnaðurinn nokkra leiðréttingu á þessum málum. Þess er hins vegar að gæta, og það eru tölur, sem liggja á borði, að inn í grundvöllinn er ekki tekinn nema hluti af innfluttu fóðurbætismagni og þar af leiðir, að verðhækkanir á hinum hlutanum fást í engu bættar landbúnaðinum. Það gefur einnig auga leið, að með þessari aðferð mundi verðlækkunin koma þeim mest til góða, sem á þessum vetri þurfa mest að nota af innflutta fóðrinu, þ.e. þeim, sem verst hafa orðið úti um fóðuröflun á þessu sumri.
Í öðrum töluliðnum er fjallað um verð á ull og gærum 1966 og lagt til, að nokkurri fjárhæð verði varið til verðbóta á framleiðslunni það ár. Eins og ég gat um áðan, var það venja til margra ára að ákveða verð á þessum vörum í samræmi við eða mjög nálægt þeim upplýsingum, sem útflytjendurnir gáfu um það efni. Með brbl. 1965 var þessi venja þverbrotin. Þá var verð á gærum ákveðið með brbl. og það var sett inn í grundvöllinn miklu hærra heldur en útflytjendurnir áætluðu það og miklu hærra en það varð í reynd. Árið 1966, þegar verðlagt var þá um haustið, reyndist ómögulegt að fá í gegnum samninga leiðréttingu á þessu, og af því leiddi, að stórvöntun varð á, að fullt verð næðist fyrir þessa vöruflokka á því ári, og sú vöntun er enn þá óbætt. Það hefði verið hægt að lagfæra þetta, ef útflutningsbótaféð hefði nægt til þess, en það gerði það nú ekki. Með tilliti til forsögu þessa máls, og alveg sérstaklega með tilliti til þess, sem gerðist, þegar stjórnvöld og hv. Alþ. fjallaði sjálft um þennan sérstaka þátt verðlagningarinnar, virðist mér það meira en réttlætanlegt, að fara fram á þetta.
Um 3. töluliðinn vil ég aðeins segja það, að það eru vissulega mjög miklir erfiðleikar framundan hjá þeim fyrirtækjum landbúnaðarins, sem þar eru nefnd, og það er áreiðanlega nauðsynlegt að gera einhverjar aðgerðir til fyrirgreiðslu. Slíkar aðgerðir mundu að sjálfsögðu koma fram í betri afkomu viðkomandi fyrirtækja og ættu þannig að geta verkað inn í verðlag varanna, og mér virðist það raunar sameiginlegt með 1. og 3. lið brtt., að hvort tveggja ætti að geta verkað inn í verðlagið að sínu leyti og kæmi því að einhverju leyti til góða, bæði framleiðendum og neytendum. Og ég hygg, að ef litið er á þetta mál alveg raunhæft, þá muni menn geta fallizt á, að hér sé um réttlætismál að ræða, að þær kröfur, sem felast í þessum till., séu ekki óeðlilegar.
Því verður ekki neitað, að ef landbúnaðarvörurnar hefðu verið verðlagðar fyrir gengisbreytingu, eins og átti að gera skv. framleiðsluráðsl., því þar er aðeins leyft, að verðlagning dragist á langinn, ef samkomulag verður um það í Sexmannanefnd, og ég neita því alveg, að það hafi verið gert með samkomulagi að draga verðlagningu svo sem orðið var, sem sagt, ef verðlagt hefði verið fyrir gengisbreytingu og með venjulegum hætti, þá hefðu ull og gærur átt að lækka og aðrar sauðfjárafurðir að hækka, og þarna er um beint tap að ræða fyrir landbúnaðinn, sem nemur milljónatugum. Og eins er hitt, að það kemur skýrt fram í grg. yfirnefndar, að úrskurðurinn er miðaður við sama verð og í fyrra og þess vegna er eðlilegt, að óskað sé hliðstæðra ráðstafana og þá voru gerðar. Mér virðist svo, að enn styðji þetta mál, að það liggur einnig á borði, að bændum eru ætlaðar í kaup í grundvellinum tæpar 200 þús. kr., en úrtak Efnahagsstofnunarinnar um tekjur viðmiðunarstéttanna sýnir yfir 240 þús. Mér finnst, að þetta styðji einnig brtt. okkar, þó að þau atriði, sem ég áður vék að, séu í mínum huga meginatriði.
Ég vil leyfa mér að vekja athygli hv. alþm. á einni brtt. alveg sérstaklega, enda þótt ég sé ekki flm. að henni. Það er brtt. VI á þskj. 199, frá hv. 4. þm. Austf. Hún hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Við 4. gr. 1 03 399, Viðfangsefni. Nýr liður: 05. Til aðstoðar við sjómenn á fjarlægum fiskimiðum, 2 millj.“
Hér er vissulega um mjög stórt mál að ræða og mjög þýðingarmikið og mál, sem er ákaflega tímabært að taka til meðferðar og afgreiðslu nú. Það gerðist í sumar, það gerðist óvænt, og því er kannske ekki um að sakast, þó engar ráðstafanir væru gerðar þá í þessu sambandi, en það gerðist í sumar, að tugir ísl. fiskiskipa, margir tugir, sóttu síldveiðar á mjög fjarlæg fiskimið, og það var ekki um neina læknisþjónustu að ræða af Íslands hálfu við sjómennina á þessum flota.
Mér er kunnugt um það, að á s.l. sumri komu fyrir þarna úti á miðum nokkur veikindatilfelli og sum alvarlegs eðlis. Þá var leitað hjálpar hjá rússneska veiðiflotanum, og það er a.m.k. alveg fullvíst, að í eitt skiptið var bjargað mannslífi. Þá var um að ræða sprunginn botnlanga, og það er enginn vafi talinn á því, að maður, sem þannig er komið fyrir, hann á sér ekki lífs von, ef hann þarf að bíða marga daga eftir því að komast á skurðarborðið. Mér er einnig kunnugt um það, að sjómennirnir rómuðu mjög aðhlynningu og umönnun rússneskra lækna og hjúkrunarliðs, og raunar alla þá fyrirgreiðslu, sem þeir fengu þarna úti á hafinu. Og ég hef orðið þess var, að þessum ungu mönnum og sjálfsagt einnig aðstandendum þeirra þykir það miklu miður, ef ekki hefur verið komið á framfæri af opinberri hálfu þökkum fyrir þessa fyrirgreiðslu. Mér er hins vegar ekki kunnugt um það, hvort þeir hafi gert alvöru úr því að óska þess beinlínis á viðkomandi stöðum, en það er auðvitað ekki von, að slíkar orðsendingar fari fram án þess þó a.m.k. að rétt yfirvöld viti um þessa atburði. Mér finnst þessi dæmi sanna það svo glöggt, að ekki verði um villzt, að hér hefur hv. 4. þm. Austf. hreyft mjög tímabæru máli, sem er mjög aðkallandi að sinna. Ég vænti þess, að hv. stuðningslið ríkisstj. taki þessa till. til gaumgæfilegrar athugunar. Og ég verð nú að segja það, að jafnvel þótt þessi till. verði felld hér, vildi ég leyfa mér að vænta þess, að hæstv. ríkisstj. taki þetta mál engu að síður til athugunar fyrir næsta sumar, og finni þar einhverja leið til úrbóta.
Ég vil svo í síðasta lagi lýsa brtt., sem ég hef leyft mér að flytja. Hún er farin í prentun fyrir nokkru ásamt fleiri till., sem eru á leiðinni og ég vona að komi fljótlega til útbýtingar. — Já, henni hefur verið útbýtt mína. — Þessi till. er þá sem sagt á þskj. 207, og hún er um það að flytja Þórberg Þórðarson rithöfund upp í heiðursflokk, þann heiðursflokk, sem nú skipa 5 aðrir listamenn. Ég held, að það fari ekki milli mála, og ég hef raunar aldrei heyrt því mótmælt, að Þórbergur Þórðarson hafi verið brautryðjandi á sviði ritlistar, ég hef engan heyrt draga það í efa. Þegar hann á sínum tíma gaf út Bréf til Láru, þá vakti sú bók gífurlega athygli. Það voru auðvitað skiptar skoðanir um efni hennar og innihald, en stílsnilldina held ég, að enginn hafi dregið í efa, né heldur hitt, að þessi bók hafi á sínum tíma verið alveg einstætt verk, alveg sérstakt. Á þessum árum og auðvitað síðar birtust margar ritgerðir eftir Þórberg með einstöku handbragði, þær er m.a. margar að finna í bók hans „Pistilinn skrifaði.“ Ég ætla ekkert að fara að rifja upp ritgerðir Þórbergs í einstökum atriðum, og ekki heldur að nefna þær einu sinni. Og ekki get ég þó stillt mig um að nefna eina þeirra, sem heitir „Vatnadagurinn mikli“, og ég held, að vel megi líkja við hið glæsilegasta málverk. Bækur Þórbergs, „Íslenzkur aðall“ og „Ofvitinn“, eru einnig einstæðar í ísl. bókmenntum. En þeir eru þó margir, að ég hygg, sem taka ævisögu séra Árna Þórarinssonar fram yfir flest önnur af hans verkum. Mér finnst, að sum verk Þórbergs Þórðarsonar hafi að óverðskulduðu verið minna lesin en ætla mætti, og á ég þar einkum við síðustu bækurnar. Þórbergur hefur skrifað um börn á mjög eftirminnilegan hátt. Frábær frásögn hans um Viðfjarðar-Skottu, sem ekki var draugur heldur ung telpa, hún er nú að vísu mörgum kunn, en aftur á móti hygg ég, að bók hans, „Sálmurinn um blómið“, hafi verið minna lesin. Hún er gjörólík öllum öðrum bókum Þórbergs. Og það hafa sagt mér menn, sem hafa lagt sig eftir bókmenntum og hafa að sjálfsögðu miklu meira vit á þeim en ég, að þeir væru ekki í neinum vafa um það, að ef sú bók hefði verið skrifuð á máli stærri þjóðar, hefði hún aflað höfundinum mikillar frægðar. Ég hygg hins vegar, að það sé í raun og veru ekki hægt að þýða þá bók, og ég gæti bezt trúað, að ekki þyrfti að útlista það neitt fyrir þeim, sem hana lesa. Þar er svo margt, sem áreiðanlega er erfitt að flytja á milli þjóðtungna.
Ég vil að lokum aðeins nefna þrjár bækur, sem hafa komið út núna á seinni árum og allar fjalla um lífið og tilveruna í Suðursveit á þeim gömlu dögum, þegar Þórbergur og jafnaldrar hans slitu þar barnsskónum. Þar á ég við bækurnar „Steinarnir tala“ og „Um lönd og lýði“ og „Rökkuróperuna“. Þessar bækur hafa ekki síður en hinar, sem ég nefndi, alveg sérstakan blæ, ekki aðeins þannig, að þær beri auðkenni höfundarins, sem aðgreini þær frá bókum annarra höfunda, heldur eru þær einnig sérstakar innan verka hans sjálfs. Í þessum bókum kemur fram ljóslifandi, eins og á málverki, sveitin og umgerð hennar, fólkið og húsdýrin, og svo örnefnin, og það er eins og þau fái sérstakan hljóm, líf og lit í þessari einstæðu túlkun. Ég skal nú ekki hafa þessi orð fleiri né tala lengra mál fyrir þessari brtt. minni. Vil þó aðeins segja það að lokum, að ég hygg, að menn greini ekki á um það, að still og frásagnarlist Þórbergs Þórðarsonar séu mjög sérstæð og snjöll. Og sjálfur minnist ég þess ekki að hafa lesið eða heyrt ummæli manna, sem á annað borð ástunda bókmenntir, sem hnigi í þá átt að draga í efa ritsnilld og sérstöðu þessa höfundar, og mér finnst þess vegna, að till. sé fullkomlega tímabær.