19.12.1967
Sameinað þing: 25. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í B-deild Alþingistíðinda. (494)

1. mál, fjárlög 1968

Bragi Sigurjónsson:

Herra forseti. Ég skal nú ekki vera að tefja tímann. Það var aðeins út af nokkrum orðum hv. 4. þm. Austf. Hann sagðist hafa heyrt undir vegg, að ég hefði verið að kvarta undan handjárnunum, en því miður hafði víst heyrnin ekki verið í lagi, því að hann hafði ekki heyrt, hvað ég sagði á undan lokaorðum mínum. Það, sem ég sagði hér áðan var það, að þingræðið byggðist á því, að menn gerðu samkomulag um hluti og meiri hl., sem þannig myndaðist, væri ekki ævinlega sammála um alla hluti, en hann yrði að standa saman til að koma málum fram. Þá gerðist það oft, að maður kannske samþykkti eitthvað, sem maður væri ekki ánægður með, og fengi annað ekki samþ., sem hann vildi fá samþykkt. Ég tek það aftur fram, að ég skil það svo, að þegar fjárlög eru samþ. hér á Alþ. alveg eins og þegar fjárlög eða fjárhagsáætlanir eru gerðar fyrir bæi og ég veit, að Lúðvík hefur oft tekið þátt í því og meiri hl. afgreiðslu þar, verði meiri hl. að standa saman að þeirri samþykkt. Ef hins vegar einhverjir telji, að þeir geti komið með brtt. svo og svo miklar og ætli öðrum aftur að bera ekki fram brtt. og fylgja sínum, sagði ég og segi það aftur, þá getur vel verið, að maður athugi sína aðstöðu. Það er ekkert að láta glamra í handjárnunum, og ég held, að það hafi verið annar hljómur frá öðrum handjárnum, sem hafi hljómað fyrir eyrum hv. 4. þm. Austf.