01.02.1968
Neðri deild: 56. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í B-deild Alþingistíðinda. (538)
33. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins
Frsm. (Birgir Finnsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er flutt til staðfestingar á brbl. og fjallar um bætur til útvegsmanna vegna veiðarfæratjóns, sem varð í óveðri dag ana 17 –28. marz 1967. Frv. hlaut einróma samþykkt í Ed., og sjútvn. þessarar hv. d. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.
Ég skal geta þess, að í sambandi við það tjón, sem hér um ræðir, komu fram skýrslur frá 268 bátum, sem gáfu upp tjón, er nam allt að 30 millj. kr. En aðstoð sú, sem veitt var samkv. brbl., nam 12,5 millj. kr. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um málið, en endurtek það, að sjútvn. þessarar hv. d. leggur einróma til, að frv. verði samþ.