13.02.1968
Neðri deild: 61. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 713 í B-deild Alþingistíðinda. (572)

121. mál, tollskrá o.fl.

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Það er nú búið að ræða þetta frv., sem hér liggur fyrir, allýtarlega, og sé ég því ekki ástæðu til þess að lengja mikið umr. í sambandi við það. Ég vil þó geta þess, að ég er einn af þeim, sem það olli miklum vonbrigðum, að hæstv. ríkisstj. skyldi ekki treysta sér til að standa við þau fyrirheit, að lækka tollana um 520 millj. eða því sem næst, eins og lofað var fyrir áramótin.

En við nokkrir framsóknarmenn hér í d. fluttum tollalækkunarfrv., sem er á þskj. 200, fyrir jólin, og það var tekið hér til 1. umr. stuttu eftir að þing kom saman nú eftir áramótin. Síðan hefur þetta frv. legið í salti, og ég sé það á þessu frv. á þskj. 256, sem hér er til umr., að ekki er þar gert ráð fyrir að taka neitt af því, sem við lögðum til í vetur. Það er ekki tekið neitt af því upp í þetta frv., og vil ég því lýsa því yfir hér, að við 2. umr. þessa máls mun ég og aðrir þeir, sem að þessu frv. stóðu í vetur, gera brtt. við frv. til þess að reyna á það, hvernig hv. d. er stemmd í þessu máli.

Ég vil benda á það í þessu sambandi, að síðan þetta frv. okkar var lagt fram, hafa fjölmargir bændur spurt mig eftir því, hvort það væri einhver von til þess, að það fengi hér jákvæða afgreiðslu. Og það kemur í ljós hvaðanæva að, sem við höfum haldið fram hér í hv. d., að þannig er ástatt í sveitum landsins, að það er full þörf á því að lækka tolla á þessum vélum, ef nokkur von er um nokkurn innflutning á þessu vori. Ég vil koma þessu hér á framfæri, þannig að hv. d. og n. sé við því búin eða viti það, að við munum taka málið hér upp við 2. umr.