11.10.1967
Sameinað þing: 0. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (6)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. 1. kjördeildar (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. 1. kjördeild hefur, eins og lög gera ráð fyrir, tekið til rannsóknar kjörbréf þeirra þm., sem sæti eiga í 3. kjördeild, en það eru þessir þm.:

Frú Auður Auðuns, 2. þm. Reykv., Benedikt Gröndal, 5. þm. Vesturl., Bjarni Benediktsson, 1. þm. Reykv., Björn Fr. Björnsson, 4. þm. Sunnl., Bragi Sigurjónsson, 9. landsk. þm., Einar Ágústsson, 11. þm. Reykv., Gísli Guðmundsson, 1. þm. Norðurl. e., Gylfi Þ. Gíslason, 3. þm. Reykv., Friðjón Þórðarson, 4. þm. Vesturl., Halldór E. Sigurðsson, 3. þm. Vesturl., Jón Árnason, 2. þm. Vesturl., Jónas Pétursson, 3. þm. Austf., Lúðvík Jósefsson, 4. þm. Austf., Magnús Jónsson, 6. þm. Norðurl. e., Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn., Páll Þorsteinsson, 2. þm. Austf., Pétur Sigurðsson, 10. þm. Reykv., Skúli Guðmundsson, 1. þm. Norðurl. v., Stefán Valgeirsson, 5. þm. Norðurl. e., Sverrir Júlíusson, 10. landsk. þm.

Samtals eru þetta 20 kjörbréf, og hefur kjördeildin ekkert fundið við þau athugavert og leggur til, að kosning þessara þm. sé gild tekin og kjörbréf þeirra samþ., en það skal tekið fram, að frá tveimur þm. voru ekki fyrir hendi formleg kjörbréf, heldur var notazt við símskeyti. Er æskilegt, að til þess þyrfti sem sjaldnast að koma.

Þá hefur 1. kjördeild einnig tekið til meðferðar kjörbréf fyrir Geir Hallgrímsson borgarstjóra, sem er 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavík, en frú Auður Auðuns, sem er 2. þm. Sjálfstfl., er ekki mætt hér á þingi, eins og kunnugt er af bréfi því, sem áður hefur verið lesið frá henni, og hefur verið óskað eftir því, að Geir Hallgrímsson tæki sæti hér á Alþ. í hennar stað, og er hann mættur. 1. kjördeild hefur ekki fundið neitt athugavert við kjörbréf Geirs Hallgrímssonar og leggur því til, að hans kosning sé gild tekin og kjörbréf hans samþ.