19.02.1968
Efri deild: 59. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 742 í B-deild Alþingistíðinda. (608)
138. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Það eru ekki mörg atriði í ræðu hv. 3. þm. Vestf., sem ég þarf að gera aths. við. Flest af því, sem þar kom fram, kom fram í umr. hér fyrir jólahlé í sambandi við gengismálin, og sumum atriðunum hafði ég einnig vikið að í minni framsöguræðu, þannig að óþarft er að endurtaka það aftur hér, og nægir í því efni að vísa til þessara umr. Hv. þm. lagði á það mikla áherzlu í upphafi máls síns, að hann fordæmdi þau vinnubrögð, sem ríkisstj. hefði viðhaft í þessu máli, þ.e.a.s. í sambandi við samkomulagsviðræður við hraðfrystiiðnaðinn og vélbátaútgerðina, sem átt höfðu sér stað á undanförnum vikum. Ég vil nú minna þennan hv. þm. á það, að núverandi ríkisstj. hefur ekki tekið upp nein nýmæli í þessum efnum. Það eru troðnar slóðir, sem undanfarnar ríkisstj. hafa farið á síðustu áratugum, og með öðrum hætti verður vart að þessum málum staðið. Ég hygg, að það væru vafasamar samningaumleitanir eða samkomulagsumleitanir að hafa þann hátt á, að viðkomandi aðilar væru hér inni í þingsölunum og þar ætti við þá að semja um þessa hluti, enda hafa, eins og ég segi, verið viðhöfð sömu vinnubrögð af öllum flokkum í þessum efnum, og hér er því ekki um neitt nýmæli að ræða.
Ég hef látið hafa það eftir mér — og tel mig geta fært fyrir því góð rök — að traustari gögn hafi nú legið fyrir, þegar umr. fóru fram í Verðlagsráði sjávarútvegsins, til þess að leggja til grundvallar við ákvörðun fiskverðs en nokkru sinni áður hafi verið fyrir hendi, og við þetta stend ég, hvað sem efasemdum hv. þm. í þessu efni líður. Ég skal fúslega taka undir það, sem hann sagðist harma, að gengið hefði hægt, þ.e.a.s. hin margumtalaða endurskipulagning í hraðfrystiiðnaðinum. Ég tek fyllilega undir það, að þetta hefur gengið mun seinna fyrir sig á allan hátt en við hafði verið búizt áður. Verkið hefur einfaldlega reynzt mun viðameira heldur en upphaflega var ætlað, og það er því ekki því um að kenna, að sérfræðingar yfirhlaðnir öðrum störfum komi í veg fyrir, að verkið geti gengið hraðar. Og ég hygg, að það sé rangt eftir síðustu upplýsingum, sem ég hef um þetta, að öll gögn hafi í þessu efni legið fyrir fyrir 7–8 mánuðum. M.a. hefur gagnasöfnun reynzt mun tímafrekari heldur en við var búizt, og tillögugerð í þessum efnum er mjög vandasöm, þannig að verkið hefur í heild reynzt mun viðameira heldur en upphaflega var búizt við, og það er ráðningin á þessum drætti, sem þarna hefur átt sér stað. En eins og ég sagði í minni framsöguræðu, standa nú vonir til þess, að hægt verði — a.m.k. síðari hluta þessa árs — að vinna eftir þessum till.; þær liggi þá fyrir innan mjög skamms tíma, þannig að framkvæmd á þeim ætti að geta hafizt síðari hluta ársins.
Sem dæmi um það, hve stjórnarstefnan væri slæm, nefndi hv. þm. það, að það sæist bezt í íslenzkum sjávarútvegi, að 1–2 mánuðum eftir gengisfellingu væri nánast allt að stöðvast í þessum mikilvæga iðnaði. Ég minntist á það, að það væri útilokað að taka nokkurn einn þátt og láta hann ráða öllu um ákvörðunina um gengisfellinguna, eins og ég benti á. Það varð að taka tillit til margra hluta annarra, eins og m.a. landverkafólks og þeirra kjara, sem almenningur býr við í landinu. Ástand sjávarútvegsins sem heild er heldur ekki hægt að tala um, því að þar er við ákaflega misjafna erfiðleika að etja. Átti að miða gengisfellinguna við þá verkunaraðferðina, sem lakast stóð, eða þá sem skást stóð, eða þá sem var einhvers staðar þarna á milli. Þetta var sá vandi, sem við var að etja, og valið í því efni, tel ég, að hafi verið rétt. Það er vitað mál, að launþegar í landinu hefðu ekki afborið hærri gengisfellingu og kjaraskerðingar, sem henni fylgdu, heldur en þarna var gripið til, og færa þó forystumenn þeirra samtaka nokkuð gild rök að því, að erfitt sé að standa undir þessum kjaraskerðingum, hvað þá ef meiri hefðu orðið.
Ég skal svo að lokum taka undir það, sem hv. ræðumaður sagði, að ég er honum fyllilega sammála um, að sjávarútvegurinn mun áfram verða styrkasta stoð í atvinnulífi þjóðarinnar og hann þarf að efla svo sem kostur er á, en efnahagur þjóðarinnar allrar kemur til með að byggjast að verulegu leyti á afkomu þessarar mikilvægu starfsgreinar um langa framtíð enn, eins og hann hefur gert undanfarna áratugi, og hún verður áfram mikilvægasti hlekkurinn í að tryggja viðunandi afkomu almennings í landinu.