26.02.1968
Efri deild: 62. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 749 í B-deild Alþingistíðinda. (619)
138. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Aðeins örfá orð að gefnu tilefni til að svara hv. 3. þm. Vestf., þar sem hann spurði um það, hvort ríkisstj. hefði nokkuð hugsað um aðstoð við skreiðarframleiðsluna vegna þeirra birgða, sem óseldar eru í landinu frá s.l. ári. Í sambandi við þetta vil ég aðeins upplýsa, að það er hugsað til skreiðarinnar í sambandi við dreifingu gengishagnaðar, en enn þá hefur ekki verið hægt að meta, hve mikillar aðstoðar þarna væri þörf, og tekur sjálfsagt sinn tíma að meta það til fullnustu, en ég geri ráð fyrir því, að eins og samráð verður haft við þá aðila, sem hraðfrystiiðnaðinum stjórna, um dreifingu gengishagnaðarins, verði haft samráð við skreiðarframleiðendur í þessu efni, þegar þar að kemur.
Varðandi þá brtt., sem hv. þm. flytur ásamt öðrum tveimur hv. þdm., vil ég aðeins undirstrika það, sem frsm. meiri hl, sjútvn. sagði, að á meðan ekki er séð fyrir öllum þeim fjármunum, sem nauðsynlegir eru í sambandi við rekstur þessa aðalatvinnuvegar þjóðarinnar, og erfiðlega gengur að útvega það fé, sé ég ekki, að það sé möguleiki að bæta við það, enda ekki gerðar till. um neinar fjáraflanir í þessu skyni.