29.01.1968
Efri deild: 47. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í B-deild Alþingistíðinda. (636)
100. mál, hækkun á bótum almannatrygginga
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Þegar fjárlög voru afgreidd á s.l. hausti, beitti ríkisstj. sér fyrir því, að framlag ríkissjóðs til lífeyristrygginga var hækkað um 311/2 millj. kr. frá því, sem það var áætlað í fjárlagafrv. næsta ár á undan, og nam fjárhæð þessi um 10% af hluta ríkissjóðs til annarra útgjalda trygginganna en fjölskyldubóta. Hefur verið gert ráð fyrir því, að hlutur annarra framlagsaðila hækki um sama hundraðshluta, svo að unnt verði að bæta hlutaðeigandi bótaþegum verðhækkanir, sem gengislækkun íslenzkrar krónu hefur í för með sér, en lagaákvæði um sjálfkrafa breytingar á verðlagsuppbót á bætur hafa nú verið afnumin. Með þessu frv., sem hér er til umr., er lagt til, að bætur lífeyristrygginga — allar bætur aðrar en fjölskyldubætur verði ásamt bótum slysatrygginga og sjúkradagpeningum hækkaðar í samræmi við framangreinda hækkun framlaga til lífeyristrygginga. Í 10% hækkuninni er innifalin sú 3,39% hækkun, sem átti sér stað 1. des. s.l. vegna aukinnar verðlagsuppbótar.
Herra forseti. Ég tel, að frekari skýringar þurfi ekki á þessu frv., og geri það að till. minni, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.