15.02.1968
Efri deild: 56. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í B-deild Alþingistíðinda. (640)
100. mál, hækkun á bótum almannatrygginga
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Í tilefni af þessari fsp. hv. 11. þm. Reykjavíkur tel ég rétt að upplýsa það, að í fyrsta lagi, eins og hann reyndar gat um, hefur Tryggingaráð að undanförnu veitt umtalsverða aðstoð við þá sjúklinga, sem þannig stendur á um, að þurfi að leita læknisaðstoðar erlendis að mati hæfustu lækna hér heima, en um þetta hafa þó ekki verið fastar opinberar reglur. Þess vegna var eftir því óskað á s.l. sumri, að Tryggingaráð fjallaði um þetta mál og gerði ákveðnar till., með hvaða hætti þessum málum yrði haganlegast, öruggast og bezt fyrir komið með hliðsjón af því brýna verkefni, sem þarna var og er fyrir hendi. Tryggingaráð gerði síðan um mánaðamótin — eða ég hygg, að það hafi verið rétt fyrir mánaðamótin nóv.–des. s.l. — till. til reglugerðarbreytinga varðandi samskipti Tryggingastofnunarinnar og sjúkrasamlaganna um þetta efni, þar sem gert var ráð fyrir, að verulegur hluti þessa kostnaðar legðist á viðkomandi sjúkrasamlög og Tryggingastofnunina.
Endanlegum umræðum í ríkisstj. um þessar till. var ekki lokið, þegar umrædd till., sem þm. minntist á, barst frá borgarstjórn Reykjavíkur. Eru þessar till, því báðar enn þá til meðferðar hjá ríkisstj., og geri ég ráð fyrir, að strax og ríkisstj. er fullskipuð á ný — en eins og hv. þm. er kunnugt, verða hæstv. forsrh. og hæstv. utanrrh. fjarverandi nokkra daga — verði málið afgreitt fljótlega. Ríkisstj. hefur fullan hug á því að afgreiða þetta mál á sem hagkvæmastan hátt fyrir þá aðila, sem þarna eiga hlut að máli, og ég vænti þess, að það dragist aðeins nokkra daga, að endanleg afgreiðsla málsins eigi sér stað.