15.12.1967
Neðri deild: 41. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 773 í B-deild Alþingistíðinda. (679)

45. mál, alþjóðasamþykkt um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti í fjarveru hæstv. utanrrh. vildi ég einungis staðfesta það, sem ég hef sagt hér áður, að þetta frv. er beinlínis háð því frv., sem ég mælti fyrir hér á undan varðandi siglingalögin, og er jafnframt til staðfestingar þeirri alþjóðasamþykkt, sem ég þar minntist á; verði frumvarpið samþ., veldur það breytingum á ísl. siglingalögunum.

Ég legg til, herra forseti, að þessu frv. verði einnig visað til hv. sjútvn. að lokinni þessari umræðu.