22.02.1968
Efri deild: 61. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (693)
94. mál, Iðnlánasjóður
Frsm. (Sveinn Guðmundsson):
Herra forseti. Frv. til l. um breyt. á l. um Iðnlánasjóð, 94. mál Ed., hefur verið til umsagnar í iðnn. Nefndin skilar áliti á þskj. 307. Hefur n. orðið sammála um að mæla með frv., en einstakir nm. áskilja sér rétt til að bera fram eða fylgja brtt., sem fram kynnu að koma. Hv. 4. þm. Sunnl. var fjarverandi við endanlega afgreiðslu málsins. Tveir nm. hafa borið fram brtt. á þskj. 311 um, að framlag ríkissjóðs til Iðnlánasjóðs verði jafnhátt og framlag iðnaðarins sjálfs, en framlag frá iðnaðinum sjálfum er nú um 20 millj. kr. á ári, en ríkisframlag er 10 millj. kr. Þetta er að sjálfsögðu réttlætismál, en meiri hl. n. hefur þó talið, að ekki sé rétt að íþyngja ríkissjóði nú með þessum auknu útgjöldum.
Í 1. gr. frv. kveður á um það, að 10% af iðnlánasjóðsgjaldi skuli verja á sérstakan hátt, m.a. til fyrirgreiðslu hagrannsókna í þágu íslenzks iðnaðar, og skuli á þann hátt stuðla að hagkvæmri iðnþróun. Eins og fram kemur í grg., er þetta lagafrv. flutt samkv. eindregnum tilmælum Félags ísl. iðnrekenda og Landssambands iðnaðarmanna, en innan þeirra vébanda er mestur hluti þeirra, sem greiða iðnlánasjóðsgjald. Iðnlánasjóðsgjald nemur nú, eins og fyrr segir, um 20 millj. kr. á ári. Er því hér um fjárhæð að ræða, sem nemur 2 millj. kr. árlega, að því er gert er ráð fyrir í frv.
Það skal tekið fram, að hér er ekki um að ræða fé úr ríkissjóði, heldur hluta af því framlagi, sem iðnaðurinn sjálfur greiðir í sjóðinn. Í 1. gr. frv. er gert ráð fyrir, að stjórn Iðnlánasjóðs ráðstafi þessu fé í samráði við Félag ísl. iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna. En eins og fram kemur að nokkru í grg. og fram kom í framsögu hjá hæstv. iðnmrh., er gert ráð fyrir, að þetta fjármagn verði auk framangreinds einnig notað til þess að efla markaðsrannsóknir erlendis og á margvíslegan annan hátt til þess að efla íslenzkan iðnað undir beinni handleiðslu iðnaðarsamtakanna sjálfra bæði hér heima og erlendis. Má því segja, að þessi fjárupphæð, sem að vísu er tekin af framlagi til Iðnlánasjóðs, eigi að koma íslenzkum iðnaði að margvíslegum notum, enda skerðir það ekki útlán sjóðsins nema um 3%, eins og segir í grg. frv.
Iðnlánasjóður hefur mjög verið á dagskrá í hv. Alþ. undanfarin þing, enda hefur orðið stökkbreyting á eflingu sjóðsins hin síðari ár með þeirri nýju löggjöf, sem sjóðnum hefur verið sett og á annan hátt fyrir atbeina hæstv. ríkisstj. Í sambandi við það mál, sem hér um ræðir, leitaði iðnn. upplýsinga um starfsemi Iðnlánasjóðs. Um síðustu áramót námu útlán sjóðsins 294,3 millj. kr., en eigið fé sjóðsins var 141 3 millj. kr. af þeirri upphæð. Útlán á árinu 1967 námu 122,7 millj. kr. Áætlun fyrir 1968 liggur ekki fyrir nema að nokkru leyti, þar sem ekki er vitað um, hversu mikið Framkvæmdasjóður ríkisins leggur sjóðnum til á yfirstandandi ári. Verður fastlega að vænta þess, að sú fjárveiting verði slík, að sjóðurinn hafi ekki minna fjármagn í útlánum nú en á siðasta ári, enda hefur sjóðsstjórnin upplýst, að umsóknir liggi fyrir að upphæð um 80 millj. kr.
Önnur gr. frv. heimilar hæstv. ríkisstj. að greiða til lánadeildar veiðarfæraiðnaðar allt að 11/2 millj. kr. til að bæta innlendum veiðarfæraiðnaði tjón vegna ákvarðana um breytingu á reglum um möskvastæðir fiskineta. Gert er ráð fyrir, að hér sé stuðzt við mat Iðnlánasjóðs. Þar sem iðnn. vildi glöggva sig frekar á þessu máli, leitaði hún til þess fyrirtækis, sem þetta ákvæði snertir óskipt, þ.e. Hampiðjunnar í Reykjavík. Sannfærðist n. um það, að hin breytta reglugerð um möskvastærð fiskineta nr. 166 frá 13. sept. 1963 hefur stöðvað sölu þeirra netabirgða, sem til voru í landinu. Einnig er upplýst, að frændur okkar Norðmenn keyptu slíkar netabirgðir af norskum framleiðendum og gáfu til vanþróuðu landanna. Þar sem hér er um að ræða einstakt mál, sem ekki á sinn líka, leggur iðnn. til, að ríkissjóður taki á sig þennan bagga. Eins og segir í 2. gr. frv., er ætlazt til þess, að greiðsla fari fram eftir mati stjórnar Iðnlánasjóðs, en hún hefur með höndum lánadeild veiðarfæraiðnaðar, sem stofnuð var með löggjöf frá síðasta Alþ.
Herra forseti. Eins og fram kemur á þskj. 307 og ég hef nú lýst, er lagt til, að frv. þetta verði samþ. óbreytt og vísað til 3. umr.