05.03.1968
Efri deild: 66. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í B-deild Alþingistíðinda. (730)
99. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Frsm. (Jón Þorsteinsson):
Herra forseti. Í frv. þessu um breyt. á l. um Húsnæðismálastofnun ríkisins felast tvö meginatriði.
Í fyrsta lagi að lögfesta það, að sé um endursölu á íbúðum að ræða, sem byggðar eru til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði eða endursölu á íbúðum, sem byggðar eru fyrir láglaunafólk í verkalýðsfélögum með allt að 80% lánum, skuli sömu reglur gilda og um endursölu íbúða í verkamannabústöðum samkv. lögum um verkamannabústaði. Endursölureglurnar fyrir íbúðir til útrýmingar á heilsuspillandi húsnæði eru í reglugerð frá 5. sept. 1957, en endursölureglur, að því er varðar íbúðir fyrir láglaunafólk í verkalýðsfélögum, eru í reglugerð um íbúðabyggingar ríkisins og Reykjavíkurborgar frá 28. apríl 1967. Reglurnar um endursölu á þessum tveimur flokkum íbúða eru ekki samhljóða, en þær eru svipaðar í mörgum greinum og grundvallast á líkum sjónarmiðum og fram koma í lögum um verkamannabústaði. Með frv. þessu er því slegið föstu, að sömu reglur skuli gilda um þetta allt saman, þegar eigandaskipti verða á íbúð, og er þá miðað við reglur verkamannahústaðalaganna, sem eru ýtarlegastar og sanngjarnastar í þessum efnum. Þessi samræming er eðlileg, enda er hér í öllum tilvikum um að ræða íbúðir, sem reistar eru með mikilli opinberri aðstoð. Sá ágalli er á aths. við þetta frv., að þessarar samræmingar er þar hvergi getið.
Hitt atriði frv. er að tryggja, að forkaupsréttur sveitarstjórnar, að því er varðar íbúðir til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði, og forkaupsréttur Húsnæðismálastofnunar ríkisins, að því er varðar íbúðir fyrir láglaunafólk í verkalýðsfélögum, taki einnig til sölu á nauðungaruppboði. En forkaupsréttur samkv. reglugerðinni frá 5. sept. 1957 hefur ekki náð til nauðungarsölu samkv. niðurstöðu hæstaréttardóms, sem vitnað er til í aths. við frv. Ekki er heldur talið öruggt, að forkaupsréttur sé fyrir hendi samkv. reglugerðinni frá 28. apríl 1967, þegar um nauðungarsölu er að ræða, og því æskilegt að tryggja hann, svo að ekki verði um villzt, með lagabreytingum.
Þessu frv. var vísað til heilbr.- og félmn., og varð það niðurstaða n. að mæla með því, að frv, yrði samþ. Einn nm., hv. 1. þm. Vesturl., áskildi sér þó rétt til að fylgja brtt., sem fram kynnu að koma við frv., en annar nm., hv. 4. þm. Sunnl., var fjarverandi, þegar málið var afgr. í n.