08.02.1968
Neðri deild: 59. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 798 í B-deild Alþingistíðinda. (751)
120. mál, tímareikningur á Íslandi
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ekki alls fyrir löngu barst ríkisstj. erindi frá þeim stjarnfræðingunum dr. Trausta Einarssyni, prófessor, og dr. Þorsteini Sæmundssyni, sem veita forstöðu útgáfu hins íslenzka almanaks, og í því gerðu þeir till. um nýja almenna skipun á tímareikningi á Íslandi. Eftir að ríkisstj. hafði kynnt sér till. þessara vísindamanna, þótti henni eðlilegt að leggja fram þetta frv. á Alþ., þetta frv. til l. um tímareikning á Íslandi, sem byggir á skoðunum þeirra. En við höfum tvenn lög um tímareikning eða ákvörðun tímans, eldri lög frá 1907 og svo lög frá 1917 um heimild handa ráðuneyti Íslands til ákvörðunar sérstaks tímareiknings, þ.e. að ráðuneytið mætti ákveða hann: Ráðuneyti Íslands heimilast að ákveða með reglugerð breytingu á tímareikningi á Íslandi. Og samkv. þessari heimild í lögum frá 1917 hefur á síðari árum verið hér svokallaður sumartími — eða klukkunni hefur verið flýtt meiri hluta ársins — en annar tími á vetrum.
En samkv. þessu frv. er lagt til samkv. 1. gr., að hvarvetna á Íslandi skuli telja stundir árið um kring eftir miðtíma Greenwich, en það yrði þá íslenzkur staðaltími eða „standard time“ hér, en sá tími er um leið hinn svokallaði heimstími eða „ universal time“. Þetta mundi þýða í framkvæmd í einföldum orðum það, að sumartíminn, sem við höfum haft mundi gilda allt árið um kring, og miðað við aðrar þjóðir yrði niðurstaðan sú, að Bretar hafa nú ákveðið að taka upp hjá sér einnig breytingu á tímareikningi og samræma sinn tíma Mið-Evróputíma, en við mundum þá allt árið um kring vera einni klukkustund á eftir þessum tíma, en tímabilið alltaf það sama.
Það er talið að ýmsu leyti mikið hagræði að þessu fyrir margra hluta sakir — vegna vísindalegra útreikninga, vegna veðurathugana og vegna samgangna, sérstaklega flugvéla í millilandaflugi og annars slíks. Auk þess er í grg. gerð grein fyrir því, hvaða áhrif þetta hefur á nýtingu birtutímans annars vegar á sumrin og einnig á vetrum, og skal ég ekki fara út í það. Það er, eins og þeir vísindamennirnir gera grein fyrir, ýmislegt, sem mælir með og annað á móti, en þeirra niðurstaða verður þó sú, að þegar á allt er litið, eru fleiri rök, sem hníga að því að taka upp það fyrirkomulag, sem þetta frv. ber með sér.
Ég get getið þess, að af hálfu þessara tveggja manna var gerð eins konar skoðanakönnun í smáum stíl og viðhorf manna hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum kannað, og án þess að ég vilji frekar gera grein fyrir því — því að til þess er ekki ætlazt af hálfu þessara manna — má segja, að í langflestum tilfellum hafi skoðanir manna hnigið að því, að það væri eðlilegra að taka upp þessa skipun heldur en þá, sem við höfum búið við. Hér er um að ræða atriði, sem áður hefur verið ákvarðað í löggjöf, og það er sem sé af hálfu ríkisstj. lagt fyrir þingið.
Ef það kæmi í ljós hér, að meiri hl. þm. væri samþykkur þessu frv., sem hér liggur fyrir, væri æskilegt, að það fengi sæmilega hraða afgreiðslu í þinginu og yrði þá miðað við það, að sumartíminn, sem ákvarðaður yrði í vor venju samkv., yrði sá fasti staðaltími hér — eins og 1. gr. þessa frv., sem þá kynni að geta verið orðin að lögum, mælir fyrir um.
Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að þessu máli verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.