26.02.1968
Neðri deild: 66. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 799 í B-deild Alþingistíðinda. (753)
120. mál, tímareikningur á Íslandi
Frsm. (Bragi Sigurjónsson):
Herra forseti. Frv. að, sem hér liggur fyrir, fjallar um tímareikning á Íslandi og er aðalefni þess, að frá og með 7. apríl n.k. skuli gilda hér jafnt sumar sem vetur svonefndur sumartími eða flýtt klukka. Rökin fyrir þessu er að finna í fskj. með frv., og þar sem þm. hafa vafalaust kynnt sér þau og þetta var sömuleiðis allmikið rakið hér við 1. umr. málsins, sé ég ekki ástæðu til þess að rekja það frekar, en allshn. Nd. hefur fjallað um frv. og orðið sammála um að leggja til, að það verði samþ. óbreytt.