21.11.1967
Neðri deild: 20. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í B-deild Alþingistíðinda. (78)

46. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Eins og fram kom í nál. og hjá frsm. n., var n. sammála um það, að frv. yrði samþ. óbreytt. Mín afstaða byggist fyrst og fremst á því, að það geti verið of mikil áhætta fyrir bændastéttina að verðleggja til tveggja ára. Hins vegar vil ég nota þetta tækifæri til að mótmæla þeim rökstuðningi, sem hæstv. landbrh. kom fram með í sinni framsöguræðu um daginn og frummælandi nú einnig, að hæstv. landbrh. sagði, að búreikningar hefðu aðeins verið færðir í nokkra mánuði, þ.e.a.s. frá síðustu áramótum, væru of fáir og væri því lítið á þeim að byggja. Hann taldi einnig, að þær vinnumælingar, sem gerðar hafa verið s.l. þrjú missiri, væru of fáar og ófullkomnar. Hvað felst í þessum boðskap? Var hæstv. landbrh. að boða það, að búvörur yrðu ekki verðlagðar samkv. gildandi l. þetta árið? Og sé svo, hvaðan komu þau fyrirmæli? Er það ekki dálítið undarlegt, að ekkert verð hefur verið auglýst enn á búvörum, þó að yfirdómur sé búinn að sitja á rökstólum í rúman mánuð og í dag er 21. nóv.? Það eru bráðum komnir þrír mánuðir síðan átti að vera búið að verðleggja búvörur lögum samkv. Og jafnhliða þessu leggur hæstv. landbrh. þetta frv. fram hér á hinu háa Alþ. og talar fyrir því á þann veg, að grunsemdir hljóta að vakna hjá bændum, að ekki sé allt hreint í þessu máli. Búreikningaskrifstofa hefur verið starfrækt til fleiri ára. Mörg ár voru búreikningarnir að vísu mjög fáir, en engu að síður gefa þeir margs konar upplýsingar, sem við samanburð margra ára er hægt að byggja töluvert á. Árið 1966 mun búreikningaskrifstofan, Hagstofan og Stéttarsamband bænda hafa verið með samtals um eða yfir 200 úrtök og samanburður hefur verið gerður á þeim. Fullt samræmi virðist vera í þessum úrtökum, meira að segja frá ári til árs og ef niðurstöðutölur vinnumælinganna eru bornar saman við búreikningana, kemur alveg það sama út í þeim liðum, sem ég hef getað borið saman, en það eru veigamestu liðirnir, hirðingin. T.d. sýna vinnumælingar, að öll hirðing á hverja kú er að meðaltali yfir árið 33 mín. á dag eða um 2000 klst. á vísitölubúið á ári. En alveg sama tala kemur út, ef búreikningarnir eru athugaðir. Samanburður á búreikningum og vinnumælingum um hirðingu á sauðfé kemur mjög svipað út og það, sem það er, sýna vinnumælingar, að sú vinna er sízt of talin í búreikningunum. Bak við þessa tvo liði eru um 3/4 hlutar af vinnumagni grundvallarbúsins eða rúmlega 3100 klst. á ári.

Þessi athugun með vinnumælingar er framkvæmd af tveimur mönnum. Annar er fulltrúi neytenda, en hinn fulltrúi framleiðenda, og þeir gáfu út sameiginlega yfirlýsingu. Ég get ekki séð annað en t.d. þessir tveir liðir séu það vel undirbyggðir, að það sé hreinn útúrsnúningur og undanbrögð, verði ekki tekið fullt tillit til þessarar niðurstöðu við verðlagninguna að þessu sinni.

Þá má geta þess, að nýja vísitalan er byggð á aðeins 100 úrtökum og ef það er borið saman við þetta, ætti að vera hægt að byggja á þessu. Um hinn hluta vinnumagnsins má e.t.v. deila, ef mikill vilji er fyrir hendi, þar sem erfiðara er að vinnumæla þá þætti búskaparins, þar sem tíðarfar og ýmsar aðstæður gripa þar inn í. En ég vil spyrja: Hefur nokkuð komið fram við athugun og samanburð á búreikningum annars vegar og vinnumælingum og skýrslum frá Hagstofunni hins vegar, sem gefi nokkurt tilefni til að vefengja búreikningana og niðurstöður þeirra? Séu bornir saman t.d. aðalútgjaldaliðirnir eins og þeir eru annars vegar frá Hagstofunni og hins vegar frá búreikningaskrifstofunni, verður heildarmunurinn það lítill, að það hlýtur einnig að undirstrika það, að niðurstöður búreikningaskrifstofunnar séu það, sem hægt er að byggja á. Séu teknir þrír liðir, áburður, kjarnfóður og rekstrarkostnaður véla, eru þessir liðir samanlagðir hjá búreikningaskrifstofunni 142 710 kr., en Hagstofunni 142 052 kr. eða aðeins á öllum þessum stóru liðum 658 kr. munur.

Í lögum um framleiðsluráð landbúnaðarins frá 13. maí 1966 er 4. gr. þannig, með leyfi forseta: „Söluverð landbúnaðarvara á innlendum markaði skal miðast við það, að heildartekjur þeirra, sem landbúnað stunda, verði í sem nánustu samræmi við tekjur annarra vinnandi stétta. Í verðlagsgrundvelli skal, sbr. ákvæði 6. gr., tilfæra ársvinnutíma bóndans, skylduliðs hans og hjúa á búi af þeirri stærð, sem miðað er við hverju sinni, og virða vinnutíma til samræmis við kaupgjald verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna eins og það er við upphaf hvers verðlagstímabils. Eigi skal þó taka til viðmiðunar ákvæðisvinnu verkamanna og iðnaðarmanna né aflahlut sjómanna. Til kaupgjalds teljast hvers konar samningsbundin fríðindi.“

Ef á að skilja orð hæstv. landbrh. á þann veg, að ekki verði verðlagt samkv. gildandi lögum að þessu sinni og það hafi verið það, sem lá á bak við, þegar þetta frv. var hér lagt fram, vil ég mótmæla slíkum vinnubrögðum og alvarlega vara hæstv. landbrh. og hæstv. ríkisstj. við slíku, því að ef verðlagningin verður framkvæmd þannig, getur ekki farið hjá því, að bændur telji, að ríkisstj. hafi haft bein afskipti af verðlagningunni, haft áhrif á það, að löggjöfin er brotin niður. Sá málatilbúningur, sem hæstv. landbrh. kom með, er hann flutti þetta frv., gefur vissulega tilefni til slíkra ályktana. Ég vil ekki trúa því, að hæstv. ríkisstj. sé eins langt leidd og ræða hæstv. landbrh. gefur tilefni til að ætla. Eftir það, sem fram er komið, getur ríkisstj. ekki skýlt sér bak við yfirdóminn eða meiri hl. hans. Ef ekki verða verðlagðar landbúnaðarvörur að þessu sinni eftir gildandi lögum, er kröfuréttur bændanna á hendur ríkisstj. óvefengjanlegur, og ekki vil ég trúa því fyrr en á reynir, að bændur standi ekki saman sem einn maður, ef það kemur í ljós, að sjálf ríkisstj. beitir sér fyrir því, að á þeim séu brotin lög til þess að svipta þá tekjum sínum. Ekki veldur sá, er varar.