28.03.1968
Efri deild: 76. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 959 í B-deild Alþingistíðinda. (832)

158. mál, ráðstafanir til lækkunar ríkisútgjalda

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér fyrst að þakka hv. fjhn. fyrir mjög skjóta afgreiðslu þessa máls og þakka hv. fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna í n. fyrir það, hve vel og drengilega þeir hafa tekið ósk minni um að reyna að hraða þessu máli. Ég ætla ekki að lengja mikið þessar umr. hér og skal halda mig algerlega við frv. og ræða aðeins viss atriði, sem hafa komið fram í sambandi við það og ég tel ekki viðeigandi annað en gera nokkuð að umtalsefni, m.a. til að svara ýmsum hugleiðingum, sem komið hafa fram frá hv. þdm. varðandi þau atriði.

Það hefur komið fram viss gagnrýni á það eða efasemdir um það, að þetta frv. mundi skila öllum þeim sparnaði, sem gert er ráð fyrir. Ég tók það fram í framsöguræðu minni, að það væri ekki gert ráð fyrir, að hann kæmi að fullu til skila, enda eru sum atriði frv. þannig, að það er beinlínis gengið út frá því, að það skili ekki sparnaði fyrr en á næsta ári. Það er hins vegar talið nauðsynlegt að gera þær ráðstafanir nú, vegna þess að það þarf vissan undirbúning, til þess að einmitt slíkur sparnaður náist, og ég hef bent á það, að það sé engum efa bundið eins og allar horfur eru nú, að það verði mikið vandamál að koma fjárl. saman fyrir næsta ár og því tvímælalaust nauðsyn að halda áfram að kanna öll hugsanleg úrræði til þess að koma við enn meiri sparnaði heldur en hér er gert ráð fyrir. Það er auðvitað alveg rétt, sem hv. frsm. minni hl. fjhn. sagði, að það er létt í vasa að breyta tölum, ef ekkert annað er gert. Það erum við alveg sammála um. En það er trú mín, að meginhlutinn af þeim fjárhæðum, sem hér er um að ræða, muni þó koma til skila á þessu ári, þannig að það verði tiltölulega lágar upphæðir, sem ekki komi til með að skila sér í beinum sparnaði, og það eru þá fjárhæðir, sem hefur verið reiknað með, að ekki gætu nema að nokkru leyti skilað sér á árinu.

Það kom fram hjá hv. 3. þm. Vestf., sem eðlilegt var frá honum sem bankastjóra, að hann væri mjög kvíðinn vegna þeirrar hugmyndar að ætla að fjármagna með lánum yfir 62 millj. kr., sem gert er ráð fyrir í þessu frv., og hann taldi það einkennilegt, að ríkisstj. hefði horfið frá þeirri skoðun sinni, sem ég hefði lýst við fjárlagaumr., að það væri sýnilegt, að þeir erfiðleikar væru á lánsfjármarkaði í landinu, að nauðsynlegt hefði verið að taka inn í fjárl. auknar fjárveitingar einmitt til þess að fjármagna ýmsar ríkisframkvæmdir með beinum framlögum ríkisins, en ekki lánum. Ég skal hugga hann með því, að það hefur ekkert breytzt skoðun mín í þessu efni, og í sambandi við framkvæmdaáætlunina, sem mun verða gerð grein fyrir hér á Alþ. innan skamms, mun það koma í ljós, hvaða hugmyndir menn hafa um fjáröflun til ríkisframkvæmda og til framkvæmdasjóðanna. Hugmyndin með því að leggja nú inn á þá braut, sem ekki var talin fær í haust, þ.e. að taka lán til ýmissa ríkisframkvæmda, er byggð á því, að auðið verði að afla fjár með öðrum hætti heldur en að leggja það beint á bankakerfið, eins og gert hefur verið síðustu ár að mestu leyti. Þannig að ég tel, að þrátt fyrir þessa breytingu, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., merki það ekki neina hugmynd um auknar álögur á bankakerfið, sem er alveg hárrétt, að á áreiðanlega við mikla erfiðleika að stríða við að veita nauðsynlega lánafyrirgreiðslu til framleiðslunnar, eins og nú standa sakir.

Fiskveiðasjóð hefur hér nokkuð borið á góma. Ég tók það fram við 1. umr. þessa máls, að í öllum viðræðum eftir áramótin um aðstoð við útgerðina yrði gengið út frá því, að framlag til Fiskveiðasjóðs félli niður. Auðvitað var hægt að haga þeirri aðstoð með öðrum hætti og hafa hana lægri, sem næmi þessum 30 millj. kr. til Fiskveiðasjóðs, en það var talið eðlilegra að fara þá leið, sem farin var, m.a. með hliðsjón af því, sem hér kom fram hjá hv. 5. landsk. þm., að með þeim hætti að hafa beint framlag í stofnfjársjóðinn hærra, væri einmitt hægt að ná betur þeim tilgangi, sem hann gat um, heldur en með því að halda fjárveitingunni til Fiskveiðasjóðs í fjárl. og hafa þá framlagið til stofnfjársjóðsins lægra. Það er einmitt í beinu samræmi við það að ná í ríkari mæli þeim tilgangi, sem mér skildist á honum, að hann teldi mikla nauðsyn að gefa sérstakan gaum að nú, og skal ég ekki draga í efa, að svo sé. Það er alveg hárrétt hjá honum, að Fiskveiðasjóður á við mikla erfiðleika að stríða, og þess vegna væri það kannske nokkuð mikið álag á hann til viðbótar, ef ætti að taka einnig hluta útgerðarinnar og breyta honum í aðstoðarlán með þeim hætti sem hann vék að. Um það skal ég ekkert að öðru leyti segja á þessu stigi. Það er mál, sem er eðlilegast að ræða í sambandi við frv. um stofnfjársjóðinn, hvaða hugmyndir menn hafa uppi um það efni. Og geri ég ráð fyrir, að hæstv. sjútvmrh. muni þá geta tekið það til meðferðar með eðlilegum hætti. En hvað viðvíkur þessu frv. hér, er ekkert fastákveðið um stefnumörkun varðandi þetta atriði, heldur aðeins verið að framkvæma ráðstöfun, sem gert var ráð fyrir, að mundi verða framkvæmd í öllum viðræðum við útgerðina í sambandi við aðstoðina eftir áramótin.

Vitanlega verður Fiskveiðasjóður að hafa fé til þess að standa undir sínum skuldbindingum, og þær skuldbindingar hafa farið vaxandi með gengisbreytingunni vegna þeirrar hækkunar, sem orðið hefur á erlendum lánum. Það er alveg ljóst.

Til þess að mæta hluta af þeim vanda var gert ráð fyrir að verja töluverðum hluta gengishagnaðarins einmitt til Fiskveiðasjóðs með það í huga, að hann gæti staðið undir hækkunum á þessum lánum. Sömuleiðis tel ég rétt, að það komi fram einmitt vegna fsp. hv. þm., að það er gert ráð fyrir því í framkvæmdaáætlun, að það verði aflað allverulegs lánsfjár til Fiskveiðasjóðs, þannig að það hefur fullkomlega verið hafður í huga sá vandi, sem Fiskveiðasjóður á við að glíma. Vitanlega væri engin vanþörf á því að hafa þessar 30 millj. kr. og jafnvel mun hærri fjárhæð, því að vandi Fiskveiðasjóðs er mikill. En hins vegar lít ég svo á, að Fiskveiðasjóður sé sterkur sjóður, sem á mjög mikið eigið fé, þannig að sé hægt með einhverjum hætti að afla honum lána, getur hann ósköp vel tekið þau lán án nokkurrar áhættu fyrir sig um sína afkomu. Vegna þessa þarf það ekki að vera neitt eðlilegt út af fyrir sig, að ríkið leggi sem bein og óafturkræf framlög svo og svo stórar fjárhæðir til sjóðsins, ef séð er fyrir fjárhagsvanda hans með öðrum hætti. Ég get alveg tekið undir allar almennar hugleiðingar hv. þm. um það mikla vandamál, sem Fiskveiðasjóður á við að glíma, og þá erfiðleika, sem útgerðin stendur í nú. En ég vænti þess aðeins, að hann geti fallizt á, að það sé ekki eðlilegt sjónarmið að blanda því beinlínis saman við þetta frv., heldur taka það upp í sambandi við stofnfjársjóðinn.

Varðandi Aflatryggingasjóð er það alveg rétt, að það er erfitt að meta fjárhag og fjárreiður þess sjóðs.

Sjóðsstjórnin hefur ekki talið mögulegt að gera um þetta áætlun. Hins vegar bentu áætlanir, sem hafa þó verið gerðar og hafa beztar legið fyrir um fjárhagsafkomu sjóðsins á þessu ári, til þess, að fjárreiður sjóðsins gætu orðið það ríflegar, að það væri hægt að gera þessa breytingu fyrir þetta ár. Ég hef hins vegar tekið það skýrt fram, að það sé ekki ætlunin að breyta reglum um úthlutun fjár úr Aflatryggingasjóði, þannig að ef svo illa færi, að það yrði ekki hægt að mæta þeim skuldbindingum sjóðsins, yrði að sjálfsögðu með einhverjum hætti að afla honum fjár til þess að standa straum af þessum skuldbindingum núna. Það þarf auðvitað ekki endilega að breyta þeirri hugsun, sem hér liggur að baki, því að undir venjulegum kringumstæðum hefur Aflatryggingasjóður yfir mjög miklu fé að ráða, þannig að hægt væri að hugsa sér, að mögulegt yrði að ná saman endum með því að afla sjóðnum einhvers fjár með bráðabirgðaráðstöfunum, ef þess reynist þörf á þessu ári.

Um Ríkisábyrgðasjóðinn er auðvitað mjög erfitt að segja. Framlagið til Ríkisábyrgðasjóðs reyndist á s.l. ári þurfa að vera 75 millj. kr. Höfuðvandinn, sem þá var við að glíma, var að vísu ekki sjávarútvegurinn, heldur erfiðleikar hjá Flugfélagi Íslands, sem leiddi til þess, að Ríkisábyrgðasjóður varð að greiða milli 20-30 millj. kr. af lánum Flugfélagsins vegna þotunnar nú fyrir áramótin. Það var það, sem réð úrslitum um hina mjög bágbornu afkomu Ríkisábyrgðasjóðs að þessu leyti eða versnandi hag hans. Hvað gerist í þessum efnum á þessu ári, skal ég ekkert um segja, en það mál er allt í mjög rækilegri athugun, og auðvitað verður ekki með neinu móti við það unað, að Ríkisábyrgðasjóður taki á sig stórfelld áföll af þessari ástæðu. Það er rétt, að bátarnir sem slíkir eru ekki þungur baggi á Ríkisábyrgðasjóði, og þó að greitt sé til Fiskveiðasjóðs, tryggir það ekki nema að litlu leyti hag Ríkisábyrgðasjóðs, en lán til frystihúsanna, sem hafa verið aukin verulega, létta hins vegar undir þetta að því leyti, að það er venja að skuldajafna, ef komin eru vanskil á ríkisábyrgðarlán, þannig að ég mundi álíta þær aðgerðir, sem gerðar hafa verið frystihúsunum í hag, þess eðlis, að það ætti að gefa vonir um, að Ríkisábyrgðasjóður kæmist betur af, og á því er það byggt að það er talið fært að lækka þessa upphæð, þannig að framlagið til Ríkisábyrgðasjóðs verði þó ekki hærra en útgjöldin raunverulega urðu árið 1967.

Hv. 3. þm. Vestf. sagði, að með þessu frv. virtist vera horfið frá því að leggja meira fé til skólabygginga, sem væri mikil nauðsyn og hefur verið lýst yfir, að væri stefnt að. Þetta er nú ekki alveg rétt. Enda þótt ekki verði lánaðar umræddar 5 millj. kr. af geymdu fé, eru framlög til skólabygginga engu að síður allverulega hærri nú á árinu 1968 en þau voru á árinu 1967. Á það hefur verið bent af hv. 6. þm. Sunnl., að 4. gr. væri ástæðulaus. Það væri hægt að spara umræddar 5 millj. kr. af geymdu fé, og það væri jafnframt hægt að koma við þeim ströngu reglum um framkvæmd skólakostnaðarl., sem í gr. er um fjallað. Strangt tekið má segja, að þetta sé rétt. En það hefur verið venja hingað til að lána allt það fé, sem hefur verið geymt af fjárveitingum vegna annarra skóla. Því þykir okkur mjög mikilvægt að fá ákveðna viljayfirlýsingu Alþ. um það, að fallizt sé á, að þessum takmörkunum verði beitt, og jafnframt að fá viljayfirlýsingu um það, að rétt sé að reyna að framkvæma það strengilega nýju skólakostnaðarl., að hægt verði að koma við þeim sparnaði, sem gert er ráð fyrir í frv., í áætlunum, sem gerðar hafa verið fyrir fram með hliðsjón af nýju skólakostnaðarl. Það er hægt að framkvæma þau l. með ýmsum hætti, og það er alveg rétt, að vafalaust er það að meginhluta reglugerðarákvæði, hvernig þau eru framkvæmd; það getur leikið á verulegum fjárhæðum. En ég held, að það sé ekki hægt að segja, að það sé óþinglegt á neinn hátt, þó að ríkisstj. vilji fá stuðning Alþ. í því, hvaða meginstefnu skuli fylgt í þeim efnum, því að um það má vissulega deila, hvaða framkvæmd eigi að hafa á lögunum, þannig að ég get ekki séð, að þessi lagagr. sé á neinn hátt óeðlileg.

Varðandi fræðslumálastjóraembættið, sem margumdeilt hefur verið bæði í Nd. og í þessari hv. d., og það, hversu óeðlilegt væri að fara að blanda fjmrh. í menntamál, get ég alveg tekið undir það, eins og hv. 3. þm. Norðurl. v. sagði, að menntmrh. mundi vafalaust vera fær um að sjá um þau sjálfur. En hins vegar hef ég kannske ekkert á móti því einstöku sinnum að fjalla líka um menntamál. Það getur verið gaman að fást við þau svona í stöku tilfellum, þó að það þyki kannske ekki hrós fyrir mig, býst ég við, eftir skoðunum hv. þm. að dæma að standa sem ábyrgur fyrir þeirri till., sem hér er gerð. Því hefur verið lýst yfir, að ástæðan fyrir því, að þessi till. er tekin inn í þetta frv., sé sú, að ríkisstj. vilji fá stefnumörkun um þetta atriði, og það er vitanlega misskilningur, að í þessu felist eingöngu það, að það sé verið að sameina þetta undir einu þaki og þar af leiðandi þurfi enga breytingu. Ætlunin er, að hér verði gerð allveruleg skipulagsbreyting. Að vísu hefur það ekki verið ákveðið í einstökum atriðum, hvernig sú breyting verði gerð, heldur er hér verið að leita eftir viljayfirlýsingu um það, að í grundvallaratriðum megi gera þessar breyt., og þá þarf vitanlega að taka til meðferðar ýmis lög í framhaldi af þessari ákvörðun, sem eru þess eðlis, eins og hv. þm. réttilega sagði, að það þarf að gera sér grein fyrir því, hvort ekki sé þar þörf lagabreytinga í ýmsum greinum. En þessi ákvörðun út af fyrir sig finnst mér vera meira formlegs eðlis. Það er ekki ætlunin með því, eins og menntmrh. hefur sjálfur lýst yfir, að breyta tilhögun yfirstjórnar fræðslumálanna í neinum grundvallaratriðum, heldur er þetta gert af hagkvæmnisástæðum, og orsökin til þess, að þetta er tekið hér í frv., eru ekki till. um ýmis önnur embætti, sem hv. þm. vék að og vissulega getur komið til álita að gera sams konar skipulagsbreytingu á, heldur er orsökin sú, að þetta hefur verið til meðferðar um skeið einmitt þessi skipulagsbreyting, þannig að hún hefur verið undirbúin töluvert, og athugun þess máls virðist ótvírætt leiða í ljós, að þetta sé hagkvæmt að gera og það muni vera auðið að koma þessu í framkvæmd innan mjög skamms tíma. Þess vegna er óskað eftir því í þessu frv., að þessi stefnumörkun fáist, og ástæðan til þess, að þetta er tekið í frv. um sparnað, er ekki sízt sú, að það er ákveðin skoðun okkar, að þetta geti leitt til töluverðs sparnaðar, þó að ekki sé hægt að nefna ákveðnar tölur í því sambandi.

Hv. 5. landsk. þm. spurðist sérstaklega fyrir um það, hver væri ætlun ríkisstj. varðandi kostnað við utanlandsferðir á þessu ári. Ég get fúslega upplýst það, að ætlun ríkisstj. er að reyna að takmarka þær ferðir svo sem frekast er unnt, og viss þáttur ferðakostnaðar og stærsti þáttur hans er skráður á kostnað við stjórnarráðið, vegna þess að allar opinberar sendinefndir eru færðar á kostnað rn., og það hefur ekki hvað sízt verið áformað, að sú lækkun, sem er á fjárveitingu til stjórnarráðsins, verði gerð með því að draga úr sendiferðum til útlanda á þessu ári. Það eru auðvitað margar sendiferðir, sem ekki verður með neinu móti komizt hjá, og viðskiptasamningar og ýmis önnur tilfelli þess eðlis, að það er ekki nokkur leið að komast hjá að senda menn til útlanda, en það er ákveðinn ásetningur að takmarka þessar ferðir í ár, svo sem frekast er unnt.

Ég held svo, herra forseti, að það séu ekki fleiri atriði, sem ég hef ástæðu til að ræða um. Eins og ég áðan sagði, vil ég ekki fara að blanda mér hér í almennar deilur um efnahagsmál. Það er vissulega hægt margt um það að segja, en ég vil ekki af minni hálfu fara að lengja umr. að því leyti og vil því þess vegna strengilega halda mig við frv. og þær aths., sem komið hafa fram við það, en ítreka að lokum aðeins þakkir mínar til hv. fjhn. og talsmanna hennar hér fyrir að hafa hraðað málinu, svo sem ég bar fram ósk um.