29.03.1968
Efri deild: 77. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 984 í B-deild Alþingistíðinda. (843)
158. mál, ráðstafanir til lækkunar ríkisútgjalda
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Rétt fyrir jólin voru samþ. fjárl. Síðan eru liðnir þrír mánuðir, sem er venjulegur lánatími víxla nú á dögum. Það er engu líkara en hæstv. fjmrh. finnist hann vera enn þá bankastjóri, sem láni út peninga til skamms tíma, því að það er orðin föst venja að láta fjárl. ekki gilda að öllu leyti nema í nokkra mánuði. Hæstv. fjmrh. hefur af sínum alkunna stórhug og hyggjuviti tekizt að gefa sömu gjöfina á jólum og páskum! Hann hefur samþ. fjárveitingar fyrir jól til ýmissa aðila, og tekið þær aftur eftir skamman tíma og veitt þær öðrum. Fjárlagaárið hefur stytzt frá því, sem áður var, og að því, er sumt varðar innan fjárl.
Tvennt vil ég minna á, um leið og frv. þetta er til umr. Í fyrsta lagi vil ég minna á það, að menntmrn. hefur nokkrum sinnum sent skólastjórum, skólanefndum og fræðsluráðum bréf þess efnis, að ákvæðum l. um hámark skólaskyldu skyldi fullnægt, og rn. hefur látið það fylgja með, að ekki mundi standa á ríkisvaldinu að gera sitt til þess að sjá um, að þetta mætti takast. Í fjármálaráðherratíð hæstv. fjmrh. er búið að skerða fjárveitingar til skólabygginga um 30%, fyrst um 20% og siðan um 10%, og nú er búið að skerða, að mér skilst, fjárframlög til skólamannvirkja um sem næst 20 millj. kr. samkv. því frv., sem hér liggur fyrir. Enn fremur var á s.l. ári Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skertur um 10%. Allt hefur þetta orðið til þess að torvelda framkvæmdir hjá sveitarfélögum til þess að geta fullnægt skólaskyldunni. Mér finnst þetta vítavert af ráðamönnum þjóðarinnar, hæstv. menntmrh. og hæstv. fjmrh., að leyfa sér slíka hegðun, eins og átt hefur sér stað ár eftir ár í þessum efnum, þ.e. að veita fé af skornum skammti til menningarmála, naga síðan af öllum fjárveitingum, sem fengizt hafa í þessu skyni, eftir skamman tíma og eyðileggja þar með allar áætlanir, sem búið er að gera. Þetta er vítaverð framkoma gagnvart æskunni og hennar framtíð í landinu auk þess sem þetta skapar stórkostlegt misræmi í landinu. Það er ekki nóg með að hafa ríkisstarfsmenn í framboðum til Alþ. og útvega þeim menn á ríkiskaupi til starfa, á meðan þeir eru í þeim störfum og líka, ef þeir eru svo lánsamir að ná í stóla innan Alþ., þótt ekki sé nema skamman tíma. Þetta kostar líka sitt fé fyrir ríkið, og mætti hæstv, fjmrh. gjarnan hugleiða það, hvort hann gæti ekki sparað með þessu frv. á þessu sviði frekar en á ýmsum öðrum sviðum.
Mér finnst það ekki bera vott um menningu að lofa og standa ekki við gefin fyrirheit, enda þótt háskólalærðir frambjóðendur, ráðh. og alþm., eigi þar í hlut. Hæstv. fjmrh. má gjarnan hugleiða þessi mál betur, ef hann meinar eitthvað með sparnaði. Þá er víðar hægt að bera niður en þar, sem nú er gert, og færa betri rök fyrir því heldur en hér er gert.
Ég vil minna á það, að í þessu frv. er gert ráð fyrir að fella niður framlög til Landnáms ríkisins. Þótt færa megi rök fyrir því, að ekki sé þörf á stofnun nýbýla í landinu eins og sakir standa, þá er hitt vitað mál og ætti einnig að vera hæstv. fjmrh. ljóst, að sé litið á aðstöðu landbúnaðarins nú, þarf landbúnaðurinn á þessu fjármagni að halda og það, þótt meira væri. Auk þess, sem árferði er með lakara móti, hefur stjórnarstefnan leitt til margvíslegra örðugleika hjá bændastéttinni. Margir bændur eiga í erfiðleikum með að fá fjármagn til fóðurkaupa á þessum vetri og næsta vori og ekki sýnilegt, að þeir geti komizt yfir fjármagn til þess að kaupa áburð á næsta vori. Bankapólitíkin er og hefur verið harðsvíruð gegn grundvallaratvinnuvegum þjóðarinnar. Undirstaða landbúnaðarins er ræktun og gras, meiri ræktun og meira gras.
Hæstv. landbrh. er þekktur fyrir loforð og stórhug í garð landbúnaðarins. Anzi hefur hann lagzt lágt að liggja undir hæstv. fjmrh. í þessum efnum á sama tíma og ísar og harðindi veðráttunnar herja á bændur og stjórnvöld landsins synja bændum um allt, sem þeir og þeirra samtök fara fram á til bjargar öðrum grundvallaratvinnuvegi þjóðarinnar, sem bjargað hefur þjóðinni oft og mörgum sinnum frá hungri og dauða.
Ferill þessara þriggja ráðh., sem ég hef hér nefnt, er einstæður vegna loforða, mikilla vanefnda og úrræðaleysis gagnvart vandamálum bænda og þess fólks, sem stendur í fremstu víglínu atvinnulífsins. Þetta vil ég, að komi fram og vil ekki láta ómótmælt þeim vinnubrögðum, sem eru að skapa sér hefð hjá hæstv. fjmrh., þ.e. að láta samþykkja fjárveitingar og skerða þær eftir nokkra mánuði — sem sé að leika það ár eftir ár að gefa jólagjafir, taka þær aftur og gefa síðan í páskagjafir.