11.03.1968
Neðri deild: 73. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 993 í B-deild Alþingistíðinda. (868)
152. mál, dýravernd
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Efni þessa frv. er, að óheimilt skuli vera að reka hvali á land, nema fullvíst sé, að unnt sé að hagnýta þá til matar eða á annan hátt. Jafnframt er svo kveðið á í frv. að við deyðingu slíkra hvala skuli nota eins mannúðlegar aðferðir og unnt er. Upphaf þessa máls er, að Samband dýraverndunarfélaga Íslands sneri sér til sjútvmrn. með tilmælum um, að endurskoðuð yrðu l. um hvalveiðar frá 1949, en framkvæmd þeirra l. heyrir undir sjútvmrn. Hins vegar leiddi athugun í ljós, að þau l. fjalla um hvalveiðar sem atvinnurekstur almennt. Samkv. þeim l. má banna að veiða tilteknar hvaltegundir, en þau heimila hins vegar ekki bann við þeirri veiðiaðferð að reka hvali á land. Heimild til slíks yrði að vera í dýraverndunarl., en dýraverndunarl. heyra undir menntmrn. Ríkisstj. þykir eðlilegt, að svo skuli kveðið á í dýraverndunarl., að óleyfilegt sé að reka hvali á land, nema fullvist sé, að unnt sé að hagnýta þá til matar eða á annan hátt. 1 þessu frv. felst ekki bann við því að reka hvali á land, ef vissa er fyrir því eða líkur á, að hagnýta megi veiðina. Þau taka einungis til þess, að ekki sé hægt að hagnýta veiðina, og þá er talið eðlilegt og raunar sjálfsagt að banna þessa veiðiaðferð. Ég hygg, að með þessu sé þetta einfalda mál fullskýrt, og vildi leyfa mér, herra forseti, að leggja til, að að lokinni þessari umr. verði málinu visað til 2. umr. og hv. menntmn.