25.03.1968
Neðri deild: 81. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (870)

152. mál, dýravernd

Frsm. (Pétur Pétursson):

Herra forseti. Menntmn. hefur rætt þetta frv. á fundi sínum. Það er stjfrv. borið fram að tilmælum Sambands dýraverndunarfélaga Íslands. En eftir að frv. var hér til 1. umr., barst n. erindi frá Sambandi dýraverndunarfélaganna um breytingu á því. Þeir gerðu í raun og veru aðaltill. um það, að breytingin yrði sú, að óheimilt væri að reka hvali á land. En þeir settu einnig fram varatill., sem menntmn. hefur orðið sammála um að mæla með. 1 seinni mgr. 1. gr. segir svo: „Við rekstur og deyðingu slíkra hvala skal nota eins mannúðlegar aðferðir og unnt er.“ Samband dýraverndunarfélaganna hefur lagt til, að þessi mgr. orðist svo: „Við rekstur hvala skal nota eins mannúðlegar aðferðir og unnt er, og við deyðingu þeirra skal beita lagvopnum og aðferðum, sem nánar skal kveðið á um í reglugerð“

Þetta er sú breyting, sem menntmn. hefur orðið sammála um að mæla með. Að öðru leyti liggur málið ljóst fyrir, og ég held, að það sé ekki ástæða til frekari umr. um það.