04.04.1968
Efri deild: 81. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1009 í B-deild Alþingistíðinda. (902)

140. mál, ríkisreikningurinn 1966

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Mér virðist hv. fjhn. hafa hraðað afgreiðslu þessa máls óþarflega mikið, og ég á satt að segja heldur erfitt með að átta mig á því, að hún hafi getað athugað þetta mál verulega á þeim stutta tíma, sem hún hefur haft til umráða. En það má segja, að málið hafi legið öllu lengur fyrir Nd. og fjhn. þar hafi athugað það og fjhn. Ed. hafi getað stuðzt við þá athugun, en meðan deildaskipting er hér við lýði, á hver d. að athuga málið fyrir sig og n. í hverri d. að fjalla um þau. Ég vildi aðeins láta þetta koma hér fram, því að mér sýnist, að athugun á ríkisreikningi og meðferð hans á Alþ. eigi ekki að vera aðeins formið eitt, heldur eigi það að vera liður í raunverulegu aðhaldi gagnvart ríkisstj. á hverjum tíma. Mér sýnist, að það hefði verið þeim mun meiri ástæða fyrir fjhn. til þess að gefa þessu máli öllu ríkari gaum heldur en mér virðist hún muni hafa gert vegna þess, að nál. fjhn. Nd. ber það með sér, að endurskoðun ríkisendurskoðunarinnar á ýmsum þeim reikningum, sem farið er fram á, að Alþ. samþykki, hefur ekki verið lokið. Eins og hv. dm. geta séð af þessu nál., eru það allmargir reikningar — sumir vil ég segja umfangsmiklir sem óendurskoðaðir eru. Það er t.d. kostnaður við embætti sýslumanna, bæjarfógeta, tollstjóra og sakadómara 1966; kostnaður lögreglustjóraembættisins 1965–1966, biskupsembættisins 1965–1966 og sendiráðanna 1966 að nokkru leyti; vegamál öll 1966 og raforkumál 1966 o.s.frv. Ég veit, að það er svo til viðbótar fskj. með þessu frá ríkisendurskoðuninni, þar sem upplýsingar eru gefnar um það, að nokkuð af þessum fyrirtækjum hafi þá verið endurskoðuð. Ég held þó engin af þeim, sem ég nefndi.

Það hefur vissulega komið fyrir áður við afgreiðslu ríkisreiknings, að þannig hafi verið ástatt, að endurskoðun ríkisendarskoðunarinnar á ýmsum fyrirtækjum væri ekki lokið, og ég minnist þess, að alloft hefur verið gerð við það aths. og óskir hafa komið fram af alþm. hálfu um það, að þessari endurskoðun væri hraðað, og ég vil ekki láta þetta mál fara hér fram hjá að þessu sinni án þess að ítreka þá ósk. Til þess höfum við ríkisendurskoðun, að hún endurskoði þessa reikninga. Ég efast ekkert um, að hún vinni sitt verk vel og þetta muni stafa af því, að hún hefur ekki mannafla til þess að afkasta þessu starfi, en þá verður að taka það mál til athugunar. Það er í hæsta máta óviðkunnanlegt, að það sé verið að samþykkja reikninga, sem ekki eru endurskoðaðir. Það mundi ekki þykja góð regla hjá einkafyrirtækjum að bera upp á aðalfundi óendurskoðaða reikninga og láta þar samþykkja þá. Mér dettur ekki í hug að halda því fram, að það sé neitt athugavert við þessa reikninga í sjálfu sér, en ég held því fram, að það sé ekki viðkunnanlegt fyrir Alþ. að samþykkja reikninga, sem ekki eru endurskoðaðir. Nú hafa yfirskoðunarmenn Alþ. farið yfir ríkisreikninginn, en það liggur í augum uppi, að endurskoðun þeirra getur ekki komið að fullu gagni, nema sú frumvinna, sem þarf að vera unnin, þegar þeirra endurskoðun fer fram, hafi verið af hendi leyst, þ.e. endurskoðun ríkisendurskoðunarinnar.

Ég vil því leyfa mér að bera fram þá ósk, að það sé reynt að stuðla að því, að þessi mál komist í það lag, að endurskoðunin geti farið að fullu fram, áður en ríkisreikningurinn er samþ. hér á Alþ., og í raun og veru á ríkisreikningurinn ekki erindi til Alþ., fyrr en það er búið að ganga þannig frá honum. Það er á engan hátt ástæða til þess að vera að leggja reikninginn fyrir Alþ. þannig. Þá fyrst er trygging á meðferð Alþ. á reikningnum, að það sé búið að endurskoða hann, og það liggi þá fyrir, hvort sú endurskoðun hafi gefið tilefni til aths. Það er að sjálfsögðu rétt, að í umsögn endurskoðenda, þ.e. yfirskoðunarmanna, er ekki farið fram á það, að Alþ. geri sérstakar aths., en það er samt allt að einu jafnóviðkunnanlegt að mínum dómi, að endurskoðun hafi ekki farið fram, þegar Alþ. afgreiðir málið. Á þetta vil ég í allri vinsemd benda og mælist til þess, að það verði reynt að stuðla að því, að endurskoðun gangi hraðar. Ég held satt að segja, að það hljóti að vera ákaflega óviðunandi fyrir fjmrn. að fá ekki endurskoðun jafnumsvifamikilla embætta og fyrirtækja, sem hér er um að tefla, áður en það leggur fram sinn lokareikning.