11.03.1968
Neðri deild: 73. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1016 í B-deild Alþingistíðinda. (923)
153. mál, eftirlit með framleiðslu og verslun með fóðurvörur
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er um að ræða, var samið af n., sem skipuð var 18. nóv. 1966. Í n. áttu sæti Pétur Gunnarsson, forstöðumaður Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, er var formaður n., dr. Þórður Þorbjarnarson og Árni G. Pétursson, ráðunautur. Eins og kunnugt er, hafa orðið stórfelldar breytingar á framleiðslu, sölu og notkun kjarnfóðurs hérlendis, síðan l., sem um það gilda nú, voru samþ., og var þess vegna tímabært að endurskoða þessa löggjöf með það fyrir augum, hvaða breytingar hafa á orðið. Við endurskoðun l. hefur n. haft nána samvinnu við þá aðila hérlendis, sem þessi mál varða mest, þ.e. sérfræðinga, framleiðendur og seljendur fóðurvara, leiðbeinendur og bændur. Hún hefur einnig kynnt sér allítarlega reglur og l. um fóðurvörur og verzlun með þær, sem í gildi eru í nágrannalöndum okkar. Það hefur verið fylgt að mestu uppbyggingu gildandi l., sumar gr. þeirra eru teknar inn í frv. sem mest óbreyttar, en aðrar eru samhæfðar núverandi aðstæðum. Nokkrar gr. hafa verið felldar niður og öðrum bætt inn í.
Frv. fjallar, eins og sjá má, um verzlun með fóðurvörur og innlent kjarnfóður. Það miðar að því að koma í veg fyrir, að seldar séu fóðurvörur, sem eru gallaðar eða gætu talizt skaðvænlegar, og tilgangur frv. er því að gera ýmsar reglur, sem gilda um þetta efni, strangari og ákveðnari. Þess má geta, að bændasamtökin hafa kynnt sér þetta frv., og ég held það sé óhætt að fullyrða, að þau séu samþykk því. Í frv. er ekki farið fram á nein aukaútgjöld úr ríkissjóði vegna framkvæmdar laganna, en það er gert ráð fyrir, að seljendur fóðurvara beri kostnað af eftirlitinu, sem þeir þá í flestum tilfellum færa yfir á kaupendurna.
Ég held, herra forseti, að með tilliti til þess, að með frv. eru prentaðar aths. og skýringar, sem gera þetta mál alveg ljóst, sé ekki ástæða til að hafa fleiri orð um það við þessa umr., og vil ég því leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. landbn.