02.04.1968
Neðri deild: 89. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1027 í B-deild Alþingistíðinda. (941)
179. mál, vegalög
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Áður en ég vík að frv. því á þskj. 477, sem liggur hér fyrir til 1. umr., vil ég leyfa mér að gera tvær eða þrjár fsp. til hæstv. samgmrh. út af því, sem fram kom í ræðu hans hér áðan. Hann tók það fram, hæstv. ráðh., að þrátt fyrir skattahækkun, sem ætti sér stað með þessu lagafrv., væri ekki meira tekið af bifreiðaeigendum hér á Íslandi heldur en í þeim löndum, er hann vitnaði til, sem voru Norðurlönd og Þýzkaland. Í þessu sambandi vil ég spyrja hæstv. ráðh.: Telur hann þar með tolla og leyfisgjöld og önnur þau gjöld, sem eru á bifreiðum hér á landi umfram benzínskatt, þungaskatt og gúmmígjald? Er þetta samtals álíka og í þeim löndum, er hann vitnaði til? Hann gerði aðeins samanburð á þessum þremur tekjustofnum.
Í öðru lagi sagði hæstv. ráðh., að möguleikar Vegasjóðs til þess að leggja fé til framkvæmda mundu vaxa með árunum. Í því sambandi vil ég vekja athygli á því, að þetta er fimmta árið, síðan Vegasjóður var stofnaður. Þetta er í annað skipti, sem stórálögur eru enn auknar til þess að auka fjármagn Vegasjóðs vegna þess, að hann hefur ekki staðið að þeim verkefnum, sem honum var ætlað að leysa. Telur hæstv. ráðh., að verkefni eins og viðhald og uppbygging hins almenna vegakerfis vaxi ekki það mikið á næstu árum, að þau vaxi hraðar en tekjurnar í Vegasjóð.
Í þriðja lagi sagði hæstv. ráðh., að það væri gott, þegar farið yrði að semja nýja áætlun fyrir næsta Alþ., að hafa þær auknu tekjur. Það er rétt, að það er gott að hafa auknar tekjur, en hefði það ekki verið nákvæmlega jafngott fyrir Vegasjóð, þó að frv. okkar um leyfisgjöld hefði verið samþ. og tekjurnar auknar á þann hátt. Skiptir það máli fyrir Vegasjóð, hvort fjármunirnir koma eftir þessari leið eða þeirri, sem hæstv. ráðh. leggur hér til.
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, boðar nýja skatta upp á tæpar 160 millj. kr. miðað við heils árs tekjur. Það var skoðun okkar hv. alþm. vegna þess, sem fram hafði komið í boðskap hæstv. ríkisstj. í sambandi við fjárlagaafgreiðslu — en nú er fjórði þáttur hennar að hefjast — að ekki ætti að fara þá leið að hækka skatta í landinu yfirleitt. Þegar við stjórnarandstæðingar lögðum til við fjárlagaafgreiðslu, að ríkissjóður stæði við fyrirheitið um fjárveitingar til Vegasjóðs, sem gert var 1963 og oft hefur verið vitnað til, þá var því svarað, að ætti það að gerast, yrðu nýir skattar að koma á móti, og spurt, hver vildi standa fyrir því að leggja á nýja skatta.
Í síðasta mánuði var afgr. hér frv. til l. um breytingar á tollskrá. Þar er gert ráð fyrir því að lækka tekjur af tollum um 159 millj. kr., og það var talið, að þörf væri á þessari tollalækkun til að draga úr dýrtíðinni í landinu og afleiðingum gengisbreytingarinnar, en nokkrum dögum seinna er svo komið fram með frv., þar sem hér um bil sama fjárhæð er lögð á þjóðina — eða 157 millj. kr. Það getur hver haldið því fram, sem vill, að bifreiðin sé ekki orðin almenningseign í þessu landi og skattar og tollar í sambandi við bifreiðarnar séu ekki orðnir almennir skattar. En samt er reyndin sú, að flestar fjölskyldur eigi orðið bifreið; skattar á bifreiðar eru því almennir neyzluskattar. Ég sé ekki mikinn mun á eðli þessara skatta og tollanna, sem voru lækkaðir um daginn, annan en þann, að tollalækkunin hafði þau áhrif á vísitöluna að lækka hana um 1.56 vísitölustig, en nú er talið, að 157 millj. kr. hækkun á sköttum — 2 millj. kr. lægri en tollalækkunin hækki vísitöluna ekki nema 0.4 stig. Þessar breytingar virðast því fyrst og fremst vera ætlaðar til að hafa áhrif á vísitöluna — í fyrra tilfelli til lækkunar, en í síðara tilfelli til minni hækkunar heldur en fyrri breytingin. En fyrir fólkið í landinu hefur þetta mjög svipaða þýðingu, nema ég hygg þó, að hækkunin á þessum þremur skattstigum benzínskatti, þungaskatti og gúmmígjaldi — hafi meiri áhrif á almenna afkomu þegnanna í landinu en tollalækkunin, sem var gerð fyrir nokkrum vikum. Og það orkar ekki tvímælis, að sú hækkun, sem hér er verið að setja á, fer beint út í verðlagið og inn á heimili hvers þegns í þessu þjóðfélagi.
Fyrir þremur árum haustið 1965 var hér til meðferðar frv. til breytinga á vegalögum, þar sem gert er ráð fyrir því að hækka benzínskattinn um 90 aura og þungaskattinn um 30%. Í umr. um það mál þá skýrði hæstv. samgmrh. frá því, að hann hefði skipað menn í n. til þess að finna tekjustofna fyrir vegagerðina í landinu, og það var mergur málsins í ræðu hans í sambandi við það frv., að hann hefði skipað n. til þess að rannsaka, hvernig hægt væri að auka tekjur Vegasjóðs og með hvaða hætti það yrði gert. Í umr., sem síðar hafa orðið um þessi mál, hefur hæstv. ráðh. komið að því, að þessi n. starfaði. Nú vildi ég leyfa mér að gera fsp. til hæstv. ráðh., hver eru verk þessarar n. og hverjar eru till. hennar um auknar tekjur fyrir vegagerð í landinu. Ég hef ekki orðið var við neinar till. frá hv. n., og hvað viðvíkur þessu frv., sem hér liggur fyrir, þyrfti enga n.. til þess að gera tillögur um að hækka þessa skatta. Það gat hæstv. ráðh. gert sjálfur án n., því að hann hafði reynslu af því og þurfti þess vegna alls ekki að fá neina ábendingu þar um, en n. hefur haft það góðan tíma til starfa, að gaman væri að frétta af hennar störfum og þá jafnframt, hver kostnaður væri orðinn við þessi nefndarstörf. Ég geri ekki ráð fyrir því, að hæstv. ráðh. geti svarað því núna, en síðar gæti hann gert það við meðferð þessa máls á hv. Alþ. En hvað sem því líður, er nauðsynlegt að heyra eitthvað af störfum nefndarinnar og hvenær vænta mætti till. frá henni, því að umbóta er þörf.
Þessa skatta, sem nú á að hækka, hafa hæstv. ráðh. og núv. valdhafar nokkra æfingu í að hækka, eins og ég sagði áðan. Benzínskatturinn hefur verið hækkaður í tíð núv. valdhafa um 313% eða 3.20 kr. á l. Gúmmígjaldið hefur verið hækkað um 500% eða 30 kr. hvert kg og þungaskatturinn um 300–340% eða 11–33 þús. kr. á hvern bíl. Þetta sýnir, að hér hefur verið allhraustlega að verið, og þarf engan að undra, þegar þetta er haft í huga, þó að eitthvað fleiri kr. hafi verið varið til vegamála heldur en gert var, áður en farið var að hækka þessa skatta svo sem hér hefur verið gert.
En það hefur fleira gerzt en það, að þessir skattar hafi verið hækkaðir að krónutölu og hlutfallslega, því að fjöldi bifreiða í landinu hefur á sama tíma nærri tvöfaldazt. Jafnhliða þessu hafa bílarnir orðið þyngri og stærri og gefa þess vegna af sér meiri tekjur en ella, og vöruflutningar hafa stórkostlega aukizt í landinu. Til þess að sýna hv. alþm., hvernig tekjur af umferðinni hafa færzt í þessa átt, ætla ég að tilgreina þriggja ára tímabil fyrra tímabilið, sem ég ætla að tilgreina, eru árin 1956, 1957 og 1958, og síðara tímabilið eru þrjú síðustu árin. Og ég vil, með leyfi hæstv. forseta, vitna til skýrslna, sem ég hef í þessum efnum.
Árið 1956 voru tekjur af umferðinni 99.5 millj. kr., árið 1957 voru þær 138.2 millj. kr. og árið 1958 176.9 millj. kr. Tekjur umfram það, sem fór til vegagerðarinnar voru árið 1956 19.5 millj. kr., árið 1957 55.7 millj. kr. og 1958 87 millj. kr.
Um þetta er það að segja, að þessi tekjumismunur, sem þarna er tilgreindur, var vegna þeirra tekna, sem gengu þá til Útflutningssjóðs, því að þangað gekk hluti af benzínskattinum á þessum árum. Ef við hverfum nú til áranna 1965, 1966 og 1967, eru heildartekjur af bifreiðum 1965 680 millj. kr., 1966 895 millj. kr. og á árinu 1967 munu þær hafa verið nálægt 1 milljarði kr. Við þessar tölur þarf svo að bæta söluskatti, sem ekki er reiknaður með í þessu tilfelli, en er hins vegar reiknaður með í fyrra tilfellinu. Söluskattur í sambandi við þessar tekjur mun nema nokkrum tugum millj. kr. Fyrir því hef ég ekki öruggar tölur, en auðséð er, að það er um tugi milljóna að ræða og mun vera á seinni hlutanum í hundraðið. Á þessum árum eru umframtekjur ríkissjóðs umfram það, sem gengur til vegamála, árið 1965 419 millj. kr., 1966 586 millj. kr. og 1967 yfir 600 millj. kr. Þegar þessi samanburður er gerður, kemur í ljós, að á árunum 1955–58 voru umframtekjur ríkissjóðs af umferðinni 225 millj. kr., sem að mestu leyti gengur þá í Útflutningssjóð, en á árunum 1964–67 eru þetta um 2200 millj. kr.
Ef þessi samanburður er hafður í huga, ætti öllum að verða það ljóst, að það er ekki ástæða til þess fyrir hæstv. ríkisstj. eða hæstv. samgmrh. að gorta af framkvæmdunum í vegagerð á Íslandi þessi árin, heldur mætti það öllum ljóst vera, að hér hefur verið illa á málum haldið að hagnýta ekki betur þær tekjur, sem umferðin lagði til, vegna framkvæmda fyrri ára. Ofan á þetta bætist það, að þegar vegalögin voru samþ. hér haustið 1963 með samkomulagi allra hv. alþm., var það margyfirlýst og af engum meira fullyrt en af hæstv. samgmrh., að aldrei yrði minna veitt á fjárl. til vegamála en þær 47 millj. kr., er þá voru á fjárl. Það væri útilokað með öllu, sagði hæstv. vegamálaráðh., að það gæti nokkurn tíma orðið minna. Þörfin fyrir aukið vegafé mundi vaxa, þó að tekjustofnar, eins og Vegasjóður var þá að fá, væru fyrir hendi. Og hvernig er svo reynslan af þessu samkomulagi? Reynslan er þessi: Árið 1964, fyrsta ár vegalaganna og Vegasjóðs, fékk Vegasjóður hinar umtöluðu 47 millj. kr. Árið 1965 var hann lækkaður um 20%, þ.e. 9 millj. kr., og 1966 var það þurrkað út og svo hefur verið síðan. Þarf nokkurn að undra, þó að slík ríkisstj., sem þannig stendur að málum að geta ekki einu sinni haldið það samkomulag að verja úr ríkissjóði 47 millj. kr. á þeim árum, sem hún fær af umferðinni á sjöunda hundrað millj. kr. inn í ríkiskassann, verði fyrir gagnrýni af hendi andstæðinga sinna? Það væri meiri hófsemi en eðlileg og æskileg væri hér á hv. Alþ., ef á þetta væri ekki bent.
Og hvað er svo hér að gerast? Það, sem hér er að gerast, er ekkert annað en það, að verið er að leggja fram frv. til þess að biðja bifreiðaeigendur í landinu að greiða til vegagerðar þær 150 millj. kr., sem ríkissjóður er ranglega búinn að hafa af vegagerðinni á síðustu þremur árum. Það er upphæðin, sem vantar til þess að standa við samkomulagið, sem gert var 1963. Er nokkuð að undra, þó að skoðanir séu skiptar um það á hv. Alþ., hvort rétta eigi hæstv. ríkisstj. þessar 150 millj. kr., vegna þess að hún stóð ekki við það samkomulag, sem hún sjálf gerði?
Þá segir hæstv. ráðh., að það hafi mikið verið gert á þessum síðari árum og sé það ólíkt því, sem áður var. Þetta kom fram í ræðu hæstv. ráðh. áðan, er hann hagaði þannig orðum sínum, eins og ekkert hefði verið gert í vegamálum á Íslandi fyrr en nú á síðustu árum. En tekjur þær, sem ríkissjóður og Vegasjóður hafa af umferðinni, byggist á þeim framkvæmdum nú, sem búið var að vinna að, áður en hæstv. ráðh. settist í stól vegamálaráðh. Þá var búið að leggja vegakerfi um landið, enda greiddi þá ríkissjóður að jafnaði meira til vegamálanna heldur en hann hafði í tekjur af umferðinni. Nú skulum við hins vegar vera sanngjörn við hæstv. vegamálaráðh. og láta hann njóta þess, sem hann á. Þegar hann hefur verið að lýsa ágæti sínu í stjórn vegamála, hefur hann komið að því, að aldrei hafi verið stærra átak gert í vegamálunum heldur en gerð Keflavíkurvegar og fleiri vega, sem ég skal nefna. En ég vil halda því fram, að stærsta átakið, sem hefur verið gert í vegamálum á Íslandi ennþá, hafi verið að leggja þjóðvegakerfi um landið allt og það hafi verið gert af miklum myndarskap einmitt á þeim árum, sem ríkissjóður hafði úr litlu að spila og umferðin létti ekki undir með tekjur í framkvæmdir. En ef við lítum á þessi stórátök, sem gerð hafa verið í vegamálunum, vil ég nefna, eins og hæstv. vegamálaráðh. gerði hér áðan, Keflavíkurveginn, sem kostar 280 millj. kr., Siglufjarðarveginn, sem kostar 70 millj. kr., veginn fyrir Ólafsfjarðarmúla, sem kostar 18.5 millj. kr. og veginn undir Ólafsvíkurenni, sem kostar 15 millj. kr. Þetta eru samtals 383.5 millj. kr.
En í sambandi við þennan þátt í vegamálunum vil ég geta þess, að þeirri stefnu var fylgt allt fram undir 1960, að ekki væri farið hraðara í framkvæmdum í vegamálum en svo, að framkvæmdirnar væru greiddar samtímis tekjum. Aðeins var heimild fyrir einstök sveitarfélög til að taka smálán út á fjárveitingu næsta árs. Hins vegar voru engin stórlán tekin til vegaframkvæmda á þessum árum. En það, sem hefur gerzt síðan, er, að þessari stefnu hefur verið breytt, og skuldirnar í árslok 1967 eru samkv. skýrslu vegamálastjórnarinnar, sem hefur legið hér fyrir hv. Alþ., þegar við þá skýrslu er bætt skuldaaukningunni vegna gengisbreytingarinnar, sem varð í nóv., samtals 379 millj. kr. eða 41/2 millj. kr. lægri fjárhæð en kostaði að gera Keflavíkurveginn Siglufjarðarveginn, Ólafsfjarðarmúlaveginn og Ólafsvíkurennisveginn. Öll stórátökin, sem gerð hafa verið í vegamálum síðustu ára, eru gerð fyrir lánsfé, sem þarf að greiða í framtíðinni. Við þetta þarf svo að bæta vöxtum vegna þessarar lántöku, sem ekki voru fyrir hendi, áður en þessi háttur var upp tekinn.
Hæstv. vegamálaráðh. sagði í ræðu sinni hér áðan, að það væru takmörk fyrir því, hvað vegalán mættu vera há. Þetta er alveg rétt. Þess vegna verða tekjur til vegagerðar að vera nokkuð í samræmi við framkvæmdina. Og hvaða vegalán eru fyrir hendi nú? Ef við miðum við vegaáætlanirnar, sem nú eru í gildi, óbreyttar og framkvæmdaféð til landsbrauta, hraðbrauta og þjóðbrauta, tekur það okkur 8 ár með þessum fjárveitingum að greiða upp lánin. Það tekur 8 ár, hæstv. samgmrh., með þeim fjárveitingum, sem við höfum til framkvæmda, og við höfum ekki úr öðru fé að spila heldur en framkvæmdafénu. Það tekur tvö kjörtímabil að komast á sama stig og við vorum á 1958, þ.e. skuldlausir í vegamálum. Hæstv. ráðh. getur svo hælt sér af framkvæmdunum, sem aðrir eiga að greiða, sem síðar stjórna vegamálunum í landinu. Hann getur haldið því fram, ef hann langar til, hæstv. ráðh., að þessar skuldir, sem nú eru orðnar til í vegamálunum, hafi ekki áhrif á framkvæmdamátt vegafjárins á næstu árum. Hvernig á að útskýra það, þegar á að greiða upp þessi lán, 380 millj. kr., greiða af þeim háa vexti og taka á sig áhættuna af gengisbreytingu og öðru slíku, að það hafi engin áhrif á framkvæmdamátt vegafjárins, sem er bundinn í l. og takmarkaður með því fé, sem Vegasjóður hefur. Og það er ekki hægt að koma þessu saman með neinum hætti, og ég er líka alveg viss um það, að hæstv. samgmrh. er það vanur að fást við fjármál, að hann veit, að það er ekki hægt að komast hjá því, að það komi við framkvæmdamátt þess fjár, sem er til ráðstöfunar hjá Vegasjóði.
Hvað segir svo þetta frv., sem hér er á ferðinni? Það segir í fyrsta lagi, að það á að leggja nýja skatta á bifreiðaeigendur, á umferðina í landinu og alla landsmenn, sem koma fram í verðlaginu og í flutningunum — strax í mjólkurflutningunum, vöruflutningunum og hækkuðum fargjöldum. En hvernig á svo að nota þetta fé árið 1968? Eins og fram kemur í frv. eiga um 30 millj. kr. að fara til þess að greiða fyrir það, sem nú er þegar búið að gera, þ.e. lausaskuldir vegna eyðslu umfram það, sem gert var ráð fyrir á vegáætlun, og vegna verðhækkana vegna gengisbreytinga. Þá er í öðru lagi gert ráð fyrir því, að til undirbúnings hraðbrauta fari 14 millj. kr. af þessum tekjum og til aukins viðhalds á næsta ári 17 millj. kr. Hér munar nokkru vegna þeirrar hækkunar, sem verður á viðhaldskostnaði vegna gengisbreytingarinnar, og að sjálfsögðu því, að alltaf hefur verið varið of litlu fé til viðhalds vega. Þá eiga 4 millj. kr. að ganga til þess að lagfæra blindhæðir og blindbeygjur, og er það lítil fjárhæð miðað við þá þörf, sem er á því að lagfæra þessa höfuðgalla á vegakerfinu, og mikil nauðsyn er á því að gera þetta einmitt nú í sambandi við umferðarbreytinguna frá vinstri til hægri umferðar. Af þessum 109 millj. kr., sem eiga að koma í Vegasjóð á yfirstandandi ári, eiga 24,3 millj. kr. að ganga til framkvæmda og 9,4 millj. kr. til kaupstaðaveganna. Það, sem hér gerist, eins og fyrr hefur gerzt í sambandi við fjáröflun til Vegasjóðs, er, að sorglega lítið hefur orðið úr fjármununum. Dýrtíðin hefur gleypt þetta eins og annað, og vegna þess að okkur tekst ekki að gera neitt átak í vegamálunum til þess að bæta vegakerfi landsins, en umferðin eykst feikilega, verður viðhaldið þeim mun erfiðara eftir því, sem árin líða. Og við erum að komast víðar í hrein vandræði t.d. með gamlar brýr, sem víða eru að hruni komnar og sumar hafa hálfhrunið. Í raun og veru fer þetta fé, sem hér er verið að afla, til þess að greiða lausaskuldirnar, sem eru hendi næst, og reyna að slétta eitthvað úr holunum, eins og um vegheflun væri að ræða.
Hæstv. samgmrh. ræddi hér nokkuð í sambandi við þetta frv. — og það er gert í grg. þess — um lagningu vega úr varanlegu efni. Það er ljóst, þegar á það mál er litið, að það verður ekkert stórt átak gert í því að leggja hraðbrautir í þessu landi með þeirri fjáröflun, sem hér er á ferðinni. Það mun sýna sig, eins og gert hefur til þessa, að hin daglega fjárþörf Vegasjóðs heldur áfram að vaxa og hér þarf meira að koma til. Það er hins vegar nauðsynlegt að hefja framkvæmdir í varanlegri vegagerð. Það er nauðsynlegt að fara að byggja upp hraðbrautir. Það þarf að gera stórt átak í því að halda áfram að byggja upp þjóðvegakerfið, þar sem það er ekki þegar upp byggt, og það þarf að ljúka við að tengja hringveginn umhverfis landið. En til þess að þetta sé hægt, þarf stórkostlega aukið fé til vegagerðarinnar í landinu, og það, sem þetta frv. sannar okkur, er það, að það þarf stórkostlega aukið umráðafé til þeirra framkvæmda.
Það kemur fram í grg. þessa frv., að það sé hægt að fá lán hjá Alþjóðabankanum til vegaframkvæmda, en þó því aðeins, að það nemi ekki nema 40% af kostnaðinum við framkvæmdina og á móti komi 60%, sem að mestu á að vera framlag, en ekki lán eftir því, sem grg. skýrir frá. Þegar við höfum þetta í huga, er það ljóst, að það er algjörlega þýðingarlaust fyrir okkur að vera að gala um stórátak í gerð hraðbrauta eða stórátak við framkvæmd í vegamálum nema breyta þeirri stefnu, sem við nú fylgjum. Það er algjörlega vonlaust að gera þetta, nema aukið verði framlag til vegamálanna. Það verður ekki framkvæmanlegt, og það á heldur ekki að gera með öðrum hætti en vegagerðin í landinu fái að njóta að verulegu leyti þeirra tekna, sem hún leggur sjálf til. Hv. stjórnarsinnar geta hér á Alþ., vegna þess valds, sem þeir hafa sem meiri hluti, talað með lítilsvirðingu um till. okkar í stjórnarandstöðunni um, að tekjur af umferðinni eigi að mestu að fara til vegamála og þeir geta haldið því fram, að þetta sé óraunhæft, en framtíðin mun sanna það, að það er ekki hægt að leysa vegamálin á annan hátt en nota tekjurnar, sem vegagerðin leggur til, og ekki á að leysa þau á annan hátt en að byggja kerfið þannig upp.
Það skiptir engu máli, þó að verið sé að gukta við það, eins og nú er gert, að leggja 900 m — eins og gert var á árinu 1967 — í Keflavíkurveginum, sem kostuðu 10 millj. kr., enda sagði ég hér á hv. Alþ., um daginn, að það tæki um 800 ár að byggja hraðbrautirnar upp með þessu áframhaldi. Það er staðreynd, að um 400 km er að ræða og 1/2 km er hægt að leggja af eigin tekjum, sem árlega nema 5 millj. kr. Með þess háttar vinnubrögðum verða engar hraðbrautir lagðar á Íslandi. Það er ekki nokkur leið að leysa hraðbrautarmálið eða uppbyggingu þjóðvegakerfisins nema láta Vegasjóði í té meiri tekjur af umferðinni heldur en hann nú hefur. Það er hægt að milda þetta gagnvart ríkissjóði með því að taka ríkislán til vega, en ekki láta Vegasjóð standa undir þeim. Það er óframkvæmanlegt, því að það gerist ekki, sem hæstv. vegamálaráðh. nefndi áðan, að möguleikar Vegasjóðs til að greiða af lánum vaxi á næstu árum í land, sem er að mestu veglaust, ef átt er við varanlega vegi. Þannig er ekki hægt að hugsa, þannig er ekki hægt að tala og þannig er ekki hægt að framkvæma. Þess vegna verðum við að gera okkur grein fyrir því, að ætlum við okkur á annað borð að byggja upp hraðbrautirnar, halda áfram að leggja þjóðvegakerfið á sæmilegan hátt og leggja hringveginn umhverfis landið, þá þurfi meiri tekjur. Þær tekjur getum við ekki fengið nema sækja til ríkissjóðs þær tekjur, sem hann nú hefur af umferðinni að einhverju eða nokkru leyti. Það er og á að vera öllum augljóst, að þannig verður að fara að. Og þegar við nú ræðum þetta frv., vil ég enn á ný minna á það, sem ég gat um hér í upphafi, að það voru jafngóðar og eru jafngóðar tekjur fyrir Vegasjóð, sem kæmu af till. okkar um, að leyfisgjöldin gengju þangað, og þær tekjur, sem kæmu af hækkuðum benzínskatti, þungaskatti og gúmmígjaldi. Það eru jafngóðar krónur.
Ef við lítum á vegamálin, eins og þau eru í dag, efast enginn um það, að þörfin er brýn fyrir þær 150–160 millj. kr., sem hér er verið að athuga. Það er ekki það, sem við erum að deila um. Um þörfina þarf ekki að ræða, og við verðum að gera margfalt fleira, ef nokkrum árangri á að ná í vegamálum.
En ég spyr: Er hægt að leggja á nýja skatta? Er ástandið í þjóðmálunum þannig, að það sé hægt að leggja á nýja skatta? Til hvers var þá verið að bjástra við tollalækkunina, ef það á að taka hana aftur eftir nokkra daga með þessum sköttum, sem almenningur í landinu verður að greiða? Og þegar það er svo haft í huga, að ríkissjóður situr inni með 150 millj. kr., sem eru vangoldnar samkv. því samkomulagi, sem gert var, þegar vegalögin voru afgreidd, er þá hægt að fara fram á það við þegnana í landinu, að þeir komi til skjalanna og greiði þessa upphæð fyrir ríkissjóð? Þar við bætist svo, að ríkissjóður hafði í tekjur af umferðinni á árinu, sem leið, frá 1/2–3/4 milljarða kr., og eins mun verða á árinu 1968. Er ekki of langt gengið að ætlast til þess, að þegnarnir í landinu taki þetta á sig, þegar þeir eru búnir að láta ríkissjóði svo mikið í té og eiga hjá ríkissjóði vegna vanefnda þessa fjárhæð? Þá mun því verða svarað til, að ríkissjóður geti heldur ekki greitt þetta nema fá nýjan tekjustofn. Því er til að svara um þannig fjárl. og afgreiðslu á þeim, að þar viðhafa menn svo mikið frjálslyndi, að 100 millj. kr. meira eða minna gera ekki mikið strik í þann reikning, enda er annan daginn verið að lækka tolla um 150 millj. kr., en hinn daginn hækka þá um 150 millj. kr., svo að ég sé ekki eðlismuninn á þessu öllu saman. Hinu verða menn líka að gera sér grein fyrir, að sé svo, þá yrði ríkið sjálft að leysa þetta með lántöku, sem væri ríkislán, til að skila þessum 150 millj. kr., sem vegagerðin á þarna raunverulega. Það er ekki hægt að ætlast til þess, að þegnar landsins taki að sér að leysa þennan þátt. Ríkissjóður verður sjálfur að koma til og leysa þau vandræði, sem hér eru orðin. Þetta frv., sem hér er á ferðinni, er ein af mörgum ráðstöfunum hæstv. ríkisstj. sem við kynnumst nú daglega, til að leysa mál til bráðabirgða. Fyrir nokkrum dögum var verið að afgreiða frv., sem var til þess ætlað að draga úr útgjöldum ríkisins, en með því var í raun verið að ýta flestum málum til framtíðarinnar, og nú er aftur verið að leggja á nýja skatta til þess að geta haldið áfram því kerfi, sem nú er að stranda.
Það, sem hér hefur gerzt á valdatíma núv. stjórnvalda, er, að á síðustu árum hefur orðið geysileg fjölgun á bifreiðum í landinu. Það hafa komið stærri bílar en áður, og þungavöruflutningarnir hafa færzt meira inn á landleiðir. Þetta hefur gert það að verkum, að álagið á vegina hefur margfaldazt og ástand þeirra hefur stórum versnað. Jafnhliða þessu hefur það svo gerzt, að hæstv. ríkisstj. hefur ofmetið þá fjármuni, sem hún hefur lagt til vegagerðarinnar í landinu, og þess vegna hafa fjármunir þeir, sem raunverulega hafa verið lagðir til vegagerðarinnar með samtímistekjum orkað svo litlu til þess að mæta aukinni umferð. Og hæstv. ríkisstj. hefur ekki gætt að því, sem var höfuðatriðið, þ.e. að nota tekjur af þessari auknu umferð til þess að bæta vegakerfið í landinu. Það var það, sem á reið, til þess að vegirnir gætu mætt því álagi, sem á þá var lagt, og þeim kröfum, sem nú eru gerðar til vega í landinu. Í stað þess hefur það verið látið viðgangast, að ríkissjóður hefur fengið verulegan hluta — og meiri hlutann — af þessum tekjum til annarra þarfa, og vegakerfið hefur verið svelt.
Eins og ég gat um áðan, hefur í raun og veru ekki verið gert stórátak í sambandi við vegamálin, þegar litið er á fjárhagshliðina, vegna þeirrar stefnubreytingar, sem varð eftir 1960, þegar farið var að nota lánsfé til vegaframkvæmda. Það verður því að greiða í framtíðinni stærstu átökin, sem hafa verið gerð í vegamálum á síðustu árum. Enn fremur hefur það svo gerzt á þessu tímabili, að möguleikarnir, sem við höfðum á tekjum af umferðinni frá árslokum 1958, gáfu hæstv. ríkisstj. tækifæri til þess að hækka þessa skatta, sem hér er verið að hækka nú, frá 300–500%. Nú er hins vegar svo komið, að það er búið að tæma þessa möguleika. Við erum komnir með benzínverð og aðra skatta á bifreiðar álíka hátt og þær þjóðir, sem hafa vel uppbyggt þjóðvegakerfi. Þess vegna erum við búnir að tæma þessa möguleika; það hefur verið gert á þessum síðustu árum til viðbótar skuldasöfnuninni.
Ég vil því undirstrika það, að eigi að leysa þau verkefni, sem við verðum að leysa og allir hafa hug á að leysa, þá verður það ekki gert með öðru móti en því, að ríkissjóður verður að sleppa allverulegum hluta af þeim tekjum, sem hann hefur nú af umferðinni. Þetta er hægt að milda og jafnframt hraða uppbyggingu vegakerfisins í landinu með því að taka ríkislán til vegagerða, en ekki með því að láta Vegasjóð gera það. Ef við ekki förum þessar leiðir, munum við ekki leysa vegamálin með öðrum hætti en við gerum nú, þ.e. með því að slétta úr verstu holunum, til þess að við komumst áleiðis um vegina.