02.04.1968
Neðri deild: 89. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1042 í B-deild Alþingistíðinda. (943)

179. mál, vegalög

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Þá höfum við heyrt það, að hv. 4. þm. Austf. er á móti þessu frv. Hann segist ekki vera á móti því út af fyrir sig, að það verði hafizt handa um miklar framkvæmdir í vegamálum, en það verði aðeins að afla fjárins með öðrum hætti, og það sé eðlilegast, að ríkissjóður leggi fram féð. Þetta er nú dálítið einkennilegur málflutningur með tilliti til þess, sem kom fram í fyrri hluta ræðu þessa hv. þm., þegar hann var að lýsa vanefndum ríkissjóðs við atvinnuvegina, vegna þess að hann hefði ekki enn þá haft getu til þess að gera það sem nauðsynlegt var t.d. fyrir sjávarútveginn, og þegar þessi hv. þm. og hv. 3. þm. Vesturl. tala um ríkissjóðinn, þá er eins og þeir haldi það, að ríkissjóður sé einhver brunnur, sem hægt sé að ausa af og aldrei tæmist, og sé raunverulega óviðkomandi skattborgurunum. En skyldi ekki vera eitthvað líkt á komið með ríkissjóði og skattborgurunum? Skyldu ekki skattborgararnir þurfa að opna pyngjuna, til þess að ríkissjóði væri gert mögulegt að borga aukinn vegagerðarkostnað? Ég held, að hv. þm. geti ekki komizt fram hjá þessu. Úr því að hann óskar eftir auknum framkvæmdum — sérstaklega í sínu kjördæmi — og viðurkennir nauðsynina á því að gera varanlega vegi, þar sem umferðin er mest, þá getur hann ekki snúið sig út úr þessu og sagt: Það er ekki hægt með því að fara þessa leið, sem ætlazt er til með þessu frv., heldur aðeins með því, að ríkissjóður leggi fram aukið fé. Það verður að líta svo á, að hv. þm. sætti sig við það, að framkvæmdir í vegamálum verði ekki auknar að sinni, heldur verði látið sitja við það, sem orðið er, og tæplega það, ef ekki verður neitt að gert með aukinni fjáröflun.

Hv. þm. talar um að öðru máli gegni með benzínverð hér en í nágrannalöndunum, þar sem búið sé að gera alla vegi og byggja þá upp, og það sé allt annað, þó að við hefðum þá lægra benzínverð en þeir. En er það ekki einmitt vegna þess, að við erum með vonda vegi — hálfgerða vegi, að við höfum ekki efni á því að selja benzínið á lægra verði en gert er í nágrannalöndunum eða taka minna af umferðinni en þau. Það er reginmunur á því að leggja gjöld á umferðina, eins og lagt er til í þessu frv., og á því að leggja á aðra tolla, t.d. á almennan varning, sem fólkið notar, því að með því að leggja gjöld á umferðina, sem eiga að ganga einungis til vegabóta, er verið að leggja grundvöll að því, að bifreiðaeigendur fái þetta aftur með því að eiga þess kost síðar meir að aka á góðum vegum. Það hefur verið sannað, að með því að aka á góðum vegum sparast benzín og varahlutir og ending bifreiðarinnar verður kannske allt að 50% meiri. Í grein í Tímanum í dag er talað um það, að sé t.d. sérleyfisbíl ekið eftir góðum vegum, þá muni hann endast eins vel í 15 ár á góða veginum og hann gerir nú í 10 ár á lélegu vegunum, og það er þetta, sem réttlætir aukna skattlagningu á bifreiðar, ef skattaaukningin verður látin ganga eingöngu til veganna, því að það eru bifreiðaeigendurnir, sem fá þessi framlög endurgreidd, eftir að vegirnir hafa verið bættir vegna aukinna framlaga, og það er allt annað að leggja á almenna skatta og tolla heldur en gera þetta með þessum hætti. Þess vegna er ekkert skrýtið við það, þó að hér væri lagt fram frv. til tollalækkunar og ráðstafanir gerðar til þess að lækka innflutningstolla almennt og þetta frv. kæmi rétt á eftir, vegna þess að þær ráðstafanir, sem gerðar eru með fyrra frv., koma öllum til góða — einnig þeim, sem enga bíla eiga, en gjöld samkv. þessu frv. koma aðeins niður á þeim, sem eiga bifreiðarnar og eiga að njóta sérstaklega hinna góðu vega, sem eiga að koma í kjölfar þessara gjalda.

Hv. 4. þm. Austf. gerir allt of mikið úr því, að þessi gjöld komi svo þungt niður á atvinnuvegunum, að það sé vafasamt, að atvinnuvegirnir fái undir þessu risið. Hv. þm. talar um það, að vísitalan muni hækka um 0.4 stig af þessum ástæðum og þetta muni auka launagreiðslur í landinu um hvorki meira né minna en 80 millj. kr.

Þessi staðhæfing, held ég, að eigi ekki við rök að styðjast, því að 1 stig í vísitölunni veldur 15 millj. kr. útgjaldaaukningu hjá ríkissjóði vegna ríkisstarfsmanna, 0.4 stig valda þá um 6 millj. kr. útgjaldaaukningu. Þess vegna held ég, að þessi útgjaldaaukning í sambandi við launagreiðslur 80 millj. kr., sem hv. þm. talaði um, sé úr lausu lofti gripin, þótt ég hafi það ekki hér fyrir framan mig, og það væri ágætt, ef hv. þm. vildi minnast þess seinna — og alltaf, að 0.4 vísitölustig hafi áhrif á atvinnureksturinn, en það hefur ekki alltaf virzt vera svo, að hv. þm. gerði sér rækilega grein fyrir því.

Hv. þm. talaði um það, að það réði ekki úrslitum um stórframkvæmdir í landinu, hvort þetta frv. yrði að lögum eða ekki, en hv. þm. gerir þó í öðru orðinu mikið úr því, að hér sé um 160 millj. kr. tekjuaukningu að ræða vegna frv. Það verður 190 millj. kr. tekjuaukning hjá Vegasjóði árið 1969, ef þetta frv. nær fram að ganga, þegar með eru reiknaðar vaxandi tekjur Vegasjóðs vegna aukinnar umferðar og bifreiðafjölgunar, og ef ekki er hægt að hugsa sér það, að talsverður hluti, sem um munar, af þessum 190 millj. kr. fari til stórframkvæmda í vegamálum, þá held ég, að mikið vonleysi hafi verið ríkjandi hjá hv. þm. áður, þegar ekki var séð fram á neina verulega tekjuaukningu eða tekjuöflun hjá Vegasjóði. Ég lýsti því hér áðan -og hv. þm. hlustaði á það, hvernig ég gat hugsað mér að þessum 190 millj. kr. yrði skipt í nýju vegáætluninni, sem samin verður á komandi hausti, og ég lét mér detta í hug, að hv. Alþ. gæti fallizt á það, að allt að 110 millj. kr. færi til hraðbrauta til varanlegrar vegagerðar, og ég gæti enn fremur hugsað mér, að þær 80 millj. kr., sem þá verða eftir, færu til þess að byrja á stórverkum víðs vegar út á landi auk þess, sem nokkuð af því verður að fara til aukins vegaviðhalds. Ég hefði búizt við því af þessum hv. þm., að hann léti það vera að mótmæla þessu frv. og léti sér lynda svo sem hann oft hefur gert áður, þegar mál eru borin fram, að tala, jafnvel mótmæla og finna að þeim till., sem fram eru lagðar, en láta það svo vera, þó að þær verði samþykktar og hugsi sér svo síðar meir að njóta góðs af því, sem hann á takmarkaðan hátt hefur barizt á móti. En nú hefur þessi hv. þm. tekið ákveðið þá afstöðu að vera á móti þessu frv., og tel ég það vanhugsað hjá honum.

Hv. 3. þm. Vesturl. talaði hér mikið áðan um, að það hefði verið breytt um stefnu 1960 í vegamálum. Fram að þeim tíma voru ekki tekin lán, sagði hv. þm. Fram að þeim tíma var aðeins unnið fyrir þær tekjur, sem voru samtímatekjur, eins og það var orðað, og þetta er alveg rétt. Það var breytt um stefnu 1960. Það var gert bæði með því að auka tekjur — samtímatekjur — til veganna og einnig með því að taka lán til nokkurra vegaframkvæmda. Ef ekki hefði verið breytt um stefnu, þá væri Reykjanesbrautin enn ógerð, ekki væri enn þá farið að byrja á Strákavegi (Siglufjarðarvegi), enn væri eftir að gera veginn fyrir Ólafsvíkurenni, enn væri eftir að gera Múlaveginn og ekki væri enn þá byrjað á Vestfjarðaáætluninni.

Ég hef verið á þingi í 26 ár, og ég held, að fyrsta eða annað árið hafi verið talað um veg fyrir Ólafsvíkurenni og það hafi verið Bjarni á Laugarvatni, sem þá var að bjóða sig fram í Snæfellsnessýslu. Áki Jakobsson talaði um Strákaveginn á sínum tíma, og það eru mörg, mörg ár, síðan talað var um Múlaveginn. Og það eru ákaflega mörg ár, síðan farið var að tala um, að gera þyrfti varanlegan veg til Keflavíkur. En það var algjör kyrrstaða í þessum málum, þangað til breytt var um stefnu og stefna hv. 3. þm. Vesturl. var ekki lengur ráðandi. Og hver vildi óska þess, að þetta, sem ég hér hef talið upp, væri ógert og sú stefna, sem hann talaði um og dásamaði hér áðan, hefði verið ráðandi og þessi verk óunnin?

Það er talað um, að Vegasjóður hafi byrðar af þessum lánum. Ég gat þess áðan, að lánabyrðin og vaxtabyrðin léttist ár frá ári. Það er gert ráð fyrir, að vextir og afborganir af lánum, sem koma Vegasjóði við, verði 64.5 millj. kr. á næsta ári, og yrði það að verulegu leyti tekið af framkvæmdaáætlun og lánum breytt í lán til langs tíma, eins og ég áðan lýsti, að verið væri að hugsa um, þá léttast þessar byrðar ört, eins og ég hef áður lýst, og skerða ekki nema að litlu leyti framkvæmdagetu Vegasjóðs. Það er hlægilegt, þegar menn eru að tala um það og jafnvel að láta það koma í heilsíðufyrirsögn í Tímanum, að allt framkvæmdaféð fari í skuldir og skuldagreiðslur vegna lána, eins og það var orðað í Tímanum í haust. Allt framkvæmdaféð fer í það, og það tekur 8 ár, sagði hv. 3. þm. Vesturl. hér áðan, að borga þessar skuldir með framkvæmdafénu, en ekki 800 ár, eins og hv. 3. þm. Vesturlands lýsti yfir í ræðu einu sinni í vetur, þegar hann sagði, að það tæki 800 ár að byggja vegina með því framkvæmdafé, sem lagt er til hraðbrauta. Það var fróður framsóknarmaður, sem ég talaði við í gær, og hann þóttist vera búinn að reikna það út, að það væru ekki 800 ár, sem það tæki, heldur 400 ár. Ég hef ekki reiknað það út, hvor hefur réttara fyrir sér — framsóknarmaðurinn, sem segir, að það taki 400 ár, eða hv. 3. þm. Vesturl., sem fullyrðir, áð það taki 800 ár. En þegar þessir hv. þm. líta þannig á málið, að það taki hundruð ára að byggja upp vegina með því fé, sem nú er til ráðstöfunar, þá er það því meira undrunarefni, að þeir skuli ekki fagna því þegar gerðar eru ráðstafanir til að afla Vegasjóði aukinna tekna, til þess að það taki a.m.k. ekki margar aldir, heldur kannske aðeins tugi ára að gera það, sem allir bíða eftir. Málflutningur af þessu tagi nær náttúrlega ekki nokkurri átt.

Hv. 3. þm. Vesturl., sem hefur setið lengi í fjvn. og oft talar um fjármál hér í hv. Alþ., sagði hér áðan nokkurn veginn orðrétt: Hvað ríkissjóði viðkemur, þá eru 100 millj. kr. til eða frá ekki umtalsverðar; 100 millj. kr. til eða frá skipta ekki máli fyrir ríkissjóð. Þess vegna er það að hans áliti hreinn barnaskapur, að ríkissjóður skuli ekki leggja til það fjármagn, sem þarf til þess að koma vegakerfinu í það bezta horf, sem við allir óskum eftir, og þess vegna er þessi hv. þm. alltaf að tala um ríkissjóð, vangreiðslur ríkissjóðs, og tala um það, að ríkissjóður eigi að láta af hendi það, sem hann hefur fengið af umferðinni o.s.frv., alveg eins og ríkissjóður sé eitthvað allt annað en sameign þjóðarinnar. Ríkissjóður og það fjármagn, sem hann hefur yfir að ráða, verður að koma frá fólkinu, og séu þessar upphæðir, sem ríkissjóður nú tekur í innflutningsgjöldum af bifreiðum, tollum af varahlutum og gúmmíum, teknar af ríkissjóði, þá verður vitanlega að afla ríkissjóði tekna til þess að fylla upp í það skarð, sem hlýtur að myndast.

Er það þá eðlilegra og réttara að innheimta slík gjöld t.d. með söluskatti á almenning en leggja gjöld á bifreiðarnar og láta bifreiðaeigendur borga? Ég sagði áðan, að ég teldi eðlilegt, að tollar væru lækkaðir af varahlutum og innflutningsgjöld lækkuð af bifreiðum, þegar ríkissjóður gæti án þeirra verið. Mér finnst það vera nokkuð, sem verði að keppa að, þegar mögulegt er, en að taka þetta núna af ríkissjóði og færa yfir í Vegasjóð hlýtur að verða til þess, að það verður að leggja skatt á almenning. Ef söluskatturinn væri hækkaður um — við skulum segja — 1%, þá kæmi það við allan almenning, líka þá, sem ekki hafa fram að þessu talið sig hafa efni á því að eiga bifreiðar. Er það þetta, sem hv. stjórnarandstæðingar vilja? Eða eru stjórnarandstæðingar svo ábyrgðarlausir, að þeir vilji taka undir með hv. 3. þm. Vesturl. og segja, að 100 millj. kr. til eða frá — eða þá 400-500 millj. kr., þessar tekjur, sem núna eru af umferðinni — skipti engu máli fyrir ríkissjóð? Vilja menn láta stjórnast af fullkomnu ábyrgðarleysi, eins og þessi fullyrðing gefur til kynna, að hv. 3. þm. Vesturl. sé tilbúinn að gera? Þegar hv. 3. þm. Vesturl. er að tala um, að það séu jafngóðar tekjur fyrir Vegasjóð, þó að það, sem hann hefur fengið, sé tekið af ríkissjóði — eins og það, sem hér er lagt til, að hann fái með þessu frv. — þá byggist þetta allt saman á því, að hv. þm. þykist skilja minna heldur en hann gerir eða á þeim vilja hans að taka á þessu af fullkomnu ábyrgðarleysi, sem er ekki sæmilegt af manni, sem setið hefur jafnlengi á Alþ. og þessi hv. þm., af manni, sem hefur setið í fjvn., og af manni, sem iðulega talar hér um fjármál fyrir hönd síns flokks.

Hv. þm. talaði um 47 millj. margnefndu, og sýnist nú vera ástæðulaust að vera að hafa mörg orð um það frá minni hendi. Það er vitanlega alrangt, að Vegasjóður hafi ekki fengið tekjur aftur sem þessu nemur eða miklu meira en það. Ef ríkissjóður hefði látið þessa peninga áfram til vegagerðarinnar, þá hefði vitanlega orðið að innheimta annars staðar frá fé, sem þessari upphæð nam, en fé Vegasjóðs hefur hækkað margsinnis — miklu meira en þessu nemur, og það má alveg eins segja, að Vegasjóður hafi þannig farið inn á það að hækka sínar tekjur á kostnað ríkisins — farið inn á þá tekjustofna, sem ríkissjóður hefði annars getað tileinkað sér. Hv. þm. fór að gera samanburð á því, hvað þá hefði farið til veganna 1958, 1966 og 1967, á því, hvað þá hefði farið til veganna og þeim tekjum, sem voru af umferðinni, en 1958 segir hv. þm., að varið hafi verið til veganna 80 milljónum kr. Tekjurnar af umferðinni voru hins vegar þá 176 millj. kr., segir hv. þm. Þetta sýnir þá það, að ríkissjóður hefur tekið meira en helmingi meira — tekið annað eins af umferðinni og meira en það, sem varið var til vega 1958, en hv. þm. var að afsaka það með því, að hluti af benzínskattinum hefði þá farið í Útflutningssjóð. En hvað fer núna í Útflutningssjóð? Nú er enginn Útflutningssjóður til. Það er ríkissjóður, sem greiðir nú bæði með útgerðinni og útflutningsbætur á landbúnaðarafurðir af þeim tekjum, sem ríkissjóður hefur innheimt, og þetta er þess vegna engin afsökun hjá hv. þm., þegar hann er að tala um, að ríkið hafi á þessum árum ekki tekið í sinn hlut hagnaðinn af umferðinni. En ef við tökum árið 1967 til samanburðar, þar sem hv. þm. talar um 900 millj. kr. — sem ekki er rétt — þetta eru ekki nema um 700 millj. kr. 1967, og þá eru tekjur Vegasjóðs 340 millj. kr. og með því að setja dæmið upp á sama hátt fyrir árið 1958 og 1967 þá er það helmingurinn af tekjunum, sem fer í ríkissjóð nú, en meira en helmingur 1958, því að Útflutningssjóður þá var hluti af ríkissjóði eins og allir hv. þm. vita. En sá er munurinn, að enda þótt tekjur af umferðinni hafi aukizt svona, þá hefur ríkissjóður ekki tekið í sinn hlut stærra hlutfall, heldur minna hlutfall en var 1958. Og satt að segja hélt ég, að hv. 3. þm. Vesturl. hefði verið búinn að gera sér grein fyrir þessu og leitaðist nú ekki við að fara að gera þennan samanburð hér í áheyrn allra hv. þm.

Hv. 3. þm. Vesturl. talaði hér eins og hv. 4. þm. Austf. um tollalækkunina og það öfugstreymi að vera fyrir nokkrum vikum að leggja fram frv. til tollalækkunar og svo aftur nú frv. til tekjuöflunar, en ég var búinn að lýsa því áðan, að hér væri um tvennt ólíkt að ræða og þess vegna ekki eðlilegt að ræða um það samtímis. Hv. 3. þm. Vesturl. spyr um hraðbrautanefnd — hvað hún hafi gert. Hraðbrautanefnd hefur gert ýmislegt. Hún hefur stjórnað því, að áætlunargerð er hafin og nauðsynlegur undirbúningur að hraðbrautagerðinni. Hraðbrautanefnd hefur kynnt sér, hvað tekið er af umferðinni í nágrannalöndunum og allt slíkt, og borið fram till. í líkingu við þær, sem hér eru í þessu frv. um tekjuöflun fyrir Vegasjóð. Hraðbrautanefnd hefur einnig kynnt sér lánakjör í Alþjóðabankanum og möguleika á því að fá lán þar. Hvað þessi nefnd hefur kostað mikið? Ég get fullvissað hv. 3. þm. Vesturl. um það, að það er ekki mikið, sem hún hefur fengið í laun, en hann sem ríkisendurskoðandi mun á sínum tíma komast að því og það mun verða gert opinbert.

Ég held, að ég hafi nú komið að flestu, sem þessir hv. þm. töluðu um hér áðan. Hv. 3. þm. Vesturl. taldi alveg útilokað, að það yrði byrjað á nokkrum vegaframkvæmdum að ráði, nema tekið væri ríkislán. Þeir tóku í sama streng báðir, hv. 4. þm. Austf. og 3. þm. Vesturl., um það, að enda þótt hér væri um 190 millj. kr. tekjuaukningu að ræða hjá Vegasjóði á næsta ári frá því, sem það er á árinu 1968, þá raunverulega munaði ekkert um það; það væri ósköp lítið hægt við þetta fé að gera.

Ég held, að hv. þm. tali hér meira af vilja en skynsemi, þegar þeir eru að reyna að gera lítið úr þessu frv. Það má vel vera, að hv. n. sjái ástæðu til að gera ráðstafanir til að afla Vegasjóði aukinna tekna í haust í sambandi við samningu vegáætlunarinnar, en það er þó ljóst, að það eru takmörk fyrir því, hvað langt má ganga í að leggja á þungaskatt og hækka benzín. Á meðan gjöldin hér eru lægri en í nágrannalöndunum, þar sem búið er að byggja upp vegina, er þó ekkert eðlilegt, að hér sé talað um óeðlilega skattlagningu. Það er vegna þess, hvað við eigum mikið ógert, að við hljótum að taka a.m.k. eins mikið og gert er annars staðar, og það væri jafnvel hægt að afsaka það, þótt benzínið væri hér nokkru hærra en í nágrannalöndunum einmitt vegna þess, hvað við eigum mikið ógert.

Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta í sambandi við það, sem þessir tveir hv. þm. hafa sagt, en ég harma það, að þeir skuli líta á þetta mál óraunhæft og tala um það frá áróðurssjónarmiði, og ég er nú ekki viss um, að þessir hv. þm. hafi hitt naglann á höfuðið, þegar þeir taka þessa afstöðu í þeirri trú, að það verði vinsælt hjá öllum almenningi. Ég held, að allur almenningur í þessu landi geri sér ljóst, að við verðum að gera vegina góðagera varanlega vegi, þar sem umferðin er mest. Ég held, að almenningur hafi gert sér það ljóst, að eina leiðin til þess, að vegirnir geti batnað, sé sú að leggja fram aukin framlög til veganna, og ég held, að fjöldinn geri sér grein fyrir því, að með því að fá bætta vegi fái þeir endurgreitt nokkuð af því, sem þeir leggja nú fram vegna hækkunar á benzíni og öðrum gjöldum af bifreiðum. Það er áreiðanlegt, að allur fjöldi manna skilur það, að það árar ekki þannig nú, að það sé mögulegt fyrir ríkissjóð að láta af hendi tugi eða hundruð millj. kr. af þeim tekjum, sem hann hefur haft af umferðinni undanfarið.

Þetta skilur allur fjöldi almennings í landinu, og þess vegna er það, að þessir hv. þm. hafa ekki gert sér grein fyrir því, að þeir fara villir vegar, þegar þeir halda það, að málflutningur þeirra verði samþykktur af öllum fjölda í þessu landi. Fólkið veit, hvernig ríkissjóður er staddur nú, og það veit, að það er nauðsynlegt að fá vegina bætta frá því, sem verið hefur undanfarið.