02.04.1968
Neðri deild: 89. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1063 í B-deild Alþingistíðinda. (946)

179. mál, vegalög

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. mikið. Það voru aðeins nokkrar aths., sem ég vildi gera við ræðu hæstv. samgmrh., en hann vék hér að nokkrum þeim atriðum, sem ég hafði minnzt á, og það með þeim hætti, að mér þykir ástæða til þess að svara því nokkrum orðum.

Hæstv. ráðh. endurtók það nokkrum sinnum í sinni ræðu, að þau gjöld, sem hér er ráðgert að leggja á, kæmu eingöngu niður á bifreiðaeigendum, og það væri sanngjarnt, að þeir bæru þessi gjöld, því að þeir ættu líka að njóta hinna góðu vega, sem ættu að koma í staðinn. Ég hafði bent á það áður, að þetta er í grundvallaratriðum rangt hjá hæstv. ráðh., vegna þess að það er vitað mál, að af þessum hækkuðu gjöldum mun leiða, að flutningstaxtar í landinu hækka. Á því er enginn vafi. Fargjöld munu almennt hækka. Sjálfur hefur hann gefið upplýsingar um það, að mjólkurverð í landinu muni hækka sem afleiðing af þessum gjöldum. Það er því auðvitað enginn vafi á því, að hér er um að ræða álögur, sem muni koma út í hinu almenna verðlagi og hafa sín áhrif, bæði til þess að íþyngja atvinnurekstrinum í landinu með hækkuðum flutningsgjöldum og auknum rekstrarkostnaði, og einnig mun þetta hafa þær afleiðingar, að hin almenna verðlagsvísitala í landinu hækkar, og þar með hækkar kaupgjald í landinu, og það íþyngir einnig atvinnurekstrinum. Undan þessu er ekki hægt að víkjast. Ef um það hefði verið að ræða að koma hér sérstökum gjöldum aðeins á bifreiðaeigendur eina, átti vitanlega að velja hér aðra leið. Þá hefði t.d. komið til mála að leggja hér á sérstakan lúxusbílaskatt, sem stundum hefur verið talað um áður, og flokka undir það svona meginhlutann af einkabílum í landinu. Það var vitanlega hægt að láta þá aðila taka verulegan þátt í þessu, og þeir gátu ekki velt þessu af sér. Þá var þetta skattur á þessa aðila. En þessi leið, sem valin er, hlýtur að leiða af sér almenna hækkun í fjölmörgum greinum í hinu almenna verðlagi í landinu.

Svo vék hæstv. ráðh. að þessu, sem ég hafði minnzt á, að væri látið skína í það, að sú tekjuöflun, sem hér er á ferðinni, ætti að standa undir stórframkvæmdum í vegagerð á næstunni. En ég hafði bent á það, að í þessu frv. er ekki að finna neina tryggingu fyrir því, að þær tekjur, sem hér á að afla, renni raunverulega til nýrra stórframkvæmda. Það er engin trygging til í frv. fyrir því. Hér er um að ræða hreina tekjuöflun fyrir Vegasjóð, og það er alveg greinilega fram tekið í grg. frv., að allar tekjurnar af hinu nýja gjaldi, sem inn eiga að koma á yfirstandandi ári, eiga að fara í almenn útgjöld Vegasjóðs, en ekki til framkvæmda við það að leggja nýjar hraðbrautir í landinu. Um þetta þarf ekkert að deila. Þetta kemur alveg greinilega fram í grg. frv., og hæstv. ráðh. hefur í rauninni sjálfur gert grein fyrir því. Allar tekjurnar á þessu ári eiga að fara í venjulegar framkvæmdir Vegasjóðs. Og ég held, að allar líkur bendi til þess, að Vegasjóður þurfi að nota sams konar upphæð — þó sennilega nokkru hærri á öllu árinu 1969 til hliðstæðra útgjalda, og þá verði lítið af hinum nýju tekjustofnum, sem geta raunverulega runnið til þessara stórframkvæmda, sem látið er svona skína í, að ráðizt verði í. En hæstv. ráðh. hefur þá þann hátt á, að hann talar um annars vegar, að hér sé að vísu um nýjar álögur að ræða upp á 157 millj. kr. miðað við heils árs grundvöll, en segir þó hins vegar, þegar hann fer að ráðstafa þessum tekjum, að þær séu 190 millj. kr. Það er sem sé ósköp þægilegt að tala um það, að álögurnar séu 157 millj. kr., en tekjurnar, þegar á að fara að ráðstafa þeim á eftir, séu hins vegar 190 millj. kr. Ég teldi því, að það væri nokkuð nærri lagi, að hinar raunverulegu álögur á árinu 1969 yrðu um 190 millj. kr., en ekki 157 millj. kr., eins og talað er um.

En ég held líka, að hin almennu útgjöld Vegasjóðs muni líka verða hærri á árinu 1969 heldur en þau voru á árinu 1967 og verða á árinu 1968. Hin almennu útgjöld Vegasjóðs munu einnig fara hækkandi. En hæstv. ráðh. var að gera því skóna, að e.t.v. væri hægt að verja til hraðbrautaframkvæmda á árinu 1969 110 millj. kr. Þetta er auðvitað alveg úr lausu lofti gripið hjá hæstv. ráðh. Hann hefur ekkert fyrir sér í því, að þessi fjárhæð verði raunverulega til ráðstöfunar í þessum efnum til nýrra framkvæmda við byggingu varanlegra hraðbrauta á árinu 1969. Enda kom það líka í ljós — og það var einmitt það, sem ég vildi gjarnan fá hér fram — að eftir því, sem leið á ræðuna hjá hæstv. ráðh., fann hann betur og betur, að það var ógætilegt að tala um þetta svona einhliða, og undir ræðulokin sagði hæstv. ráðh., að þegar semja ætti nýja vegáætlun á næsta hausti, gæti vel verið, að á nýjum tekjustofnum þyrfti að halda til þess að standa undir hraðbrautabyggingunum eða stórframkvæmdunum. Þá kom það. Það er nefnilega von á því, að það verði komið fram með nýjar till. síðar um nýja tekjuöflun til þess að standa undir þeim stórframkvæmdum, sem er verið að gera ráð fyrir, að ráðast eigi í, og auðvitað þarf að vinna að fyrr eða síðar. En það, sem hér er um að ræða, er hrein og venjuleg tekjuöflun handa þeim Vegasjóði, sem starfað hefur á undanförnum árum að ákveðnum verkefnum og hefur þau verkefni áfram með höndum.

Það kemur sem sé í ljós, að Vegasjóð vantar tekjur rétt eins og þegar fjmrh. er að lýsa því, að ríkissjóð vantar tekjur. Vegasjóður hefur eytt umfram í ýmsar framkvæmdir á s.l. ári. Vegasjóður þarf að hafa meiri útgjöld á árinu 1968 en 1967 vegna kostnaðarins af gengisbreytingunni. Vegasjóður hefur þurft að eyða talsverðum umframgreiðslum vegna árferðis. Skyldi ekki eitthvað þurfa að eyða umfram á árinu 1968 líka vegna árferðis, og kannske þurfi að greiða það á árinu 1969? Það mætti alveg segja mér það, að útlitið í ár væri ekkert betra með árferði á þessum vetri heldur en það var á síðasta vetri. Hér er því alveg ábyggilega um það að ræða, að það er verið að afla tekna til almennra útgjalda Vegasjóðs með því að leggja á þær álögur, sem þetta frv. fjallar um. En það þykir bara henta, um leið og þessar álögur eru ákveðnar, að segja: Já, en það þarf nú að leggja mikla og góða vegi alla leið austur á Rangárvelli og upp í Borgarfjörð. Þetta eru dýrar framkvæmdir. Og hver vill ekki fá steypta og góða vegi? Og hæstv. ráðh. endaði sitt mál svo með því að segja, að hann væri alls ekki viss um það, að við, sem andæfum þessu frv., nytum meiri vinsælda en hann í okkar tillagnagerð. Það má vel vera, að það verði býsna margir, sem segi: Jú, við viljum fá góðu vegina.

Hæstv. ráðh. orðar það, að menn eigi að fá góða vegi, og þeir taka kannske undir með honum í þeim efnum. Og e.t.v. verða einhverjir, sem vilja gjarnan leggja á sig þessi nýju útgjöld, sem felast í þessu frv., vegna þess að þeir trúa því, að þeir eigi að fá nýja og góða vegi fyrir þennan pening. En það er bara alls ekki um það að ræða. Ég held, að það sé rangt að fara þá leið. Að því leyti til, sem Vegasjóð vantar alveg óhjákvæmilega einhverjar fjárhæðir til þess að standa undir sínum óhjákvæmilegu útgjöldum, varð ríkissjóður að hlaupa undir bagga, og það var hægt af hans hálfu að gera það með því að skera þar nokkuð meira niður útgjöld, en ráðgert hefur verið. En ég vil jafnframt lýsa yfir því sem minni skoðun, að ég tel, að það komi fyllilega til greina að afla ákveðinna tekna t.d. upp á 150–190 millj. kr. til tiltekinna framkvæmda í vegagerðarmálum í landinu og hinda það þá um leið í l., að hinar nýju tekjur skuli renna til tiltekinna framkvæmda og ákveða þær um leið. En til þess að ég telji rétt að ráðast í þetta, þarf þó að vera til grundvöllur í landinu fyrir því að afla þessara tekna. En ég sé ekki þann grundvöll, eins og á stendur nú.

Ég vildi spyrja hæstv. ráðh. um það, hvort hann mundi t.d. vilja afgreiða þetta mál á þeim grundvelli nú, að ákveðið yrði, að af þessari tekjuöflun skyldi t.d. helmingurinn renna til þess að byggja upp tilteknar hraðbrautir á varanlegan hátt og hinn helmingurinn skyldi ganga til tiltekinna annarra stórframkvæmda í vegagerðarmálum úti á landi, því að það er auðvitað enginn vafi á því, að þar þarf á ýmsum stórframkvæmdum að halda þ.e. stórframkvæmdum á mælikvarða landsbyggðarinnar ekki síður en í lagningu góðra vega hér út frá höfuðstaðnum. Og þar sem hér er gert ráð fyrir því, að allir þeir, sem bíla reka í landinu, verði sameiginlega að greiða þessi nýju gjöld, er auðvitað eðlilegt, að tekjunum verði ráðstafað í þjónustu allra landsmanna, en ekki aðeins í þjónustu nokkurra. Vill hæstv. ráðh. afgreiða þetta mál á þeim grundvelli, að helmingurinn af hinum nýju tekjum verði bundinn í það í löggjöfinni að leggja varanlegar hraðbrautir hér út frá þéttbýlinu við Reykjavík og hinn helmingurinn gangi til tiltekinna stórframkvæmda víðs vegar úti um landið? Ég teldi rétt að afgreiða málið þannig, þegar almennt er talinn vera grundvöllur fyrir því að leggja slík gjöld á, sem hér er um að ræða. Hæstv. ráðh. telur þann grundvöll vera nú þegar fyrir hendi. Hann vill ráðast í það að leggja þessi gjöld á, en hann vill ekki binda það á neinn hátt í löggjöfinni, hvað eigi að gera við féð. Féð á bara að renna í hinn almenna Vegasjóð, og hann ætlar að nota það í umframgreiðslu frá árinu 1967 í aukakostnað við viðhald og aðrar framkvæmdir, sem verða á árinu 1968 vegna gengisbreytingarinnar og vegna ýmiss konar aukaútgjalda, sem orðið hafa, og veðráttunni er sérstaklega kennt um. En segir svo hins vegar við þá, sem eiga að borga gjaldið: Já, en það á að nota þetta fé til þess að leggja hér nýja og góða vegi. Þetta er að segja rangt til um eðli málsins, og ef hitt liggur svo í rauninni fyrir, sem mér fannst koma allskýrt fram í lok ræðu hæstv. ráðh., að ef til vill þyrfti að leggja á ný gjöld vegna stórframkvæmdanna við gerð næstu vegáætlunar á næsta hausti, þá þykir mér nú heldur illilega vera farið aftan að mönnum í þessum efnum að ætla að réttlæta þessar álögur nú með stórframkvæmdum.

Ég get alveg tekið undir það, sem hv. 5. þm. Norðurl. v. sagði í sinni ræðu. Ég vil ekki gera neitt lítið úr því, sem gert hefur verið í vegaframkvæmdum nú síðustu árin. Ég tel, að vegagerðin suður til Keflavíkur hafi verið mjög myndarleg og átt fyllilega rétt á sér, og ég hef ekki orðið var við það, að neinir þm. hafi amazt við þeirri framkvæmd, þó að lán hafi verið tekið til hennar og sá vegur gerður. Ég tel líka, að vegagerðin til Siglufjarðar hafi átt rétt á sér, og met hana fyllilega, sömuleiðis Múlaveginn, Ennisveginn og aðra slíka vegi, sem hér hefur verið minnzt á. Ég vil ekki á neinn hátt gera lítið úr þessum framkvæmdum, og ég vil heldur ekkert draga úr því, að það er mikil þörf á því að ráðast bæði í byggingu hraðbrautanna hér út frá Reykjavík og eins í ýmsar stórframkvæmdir í vegagerðarmálum víða úti um land. Það er þörf á þessu. En til þess að rétt sé að afla tekna á þann hátt, sem lagt er til í þessu frv. til slíkra framkvæmda, verða að vera skilyrði fyrir því í landinu, að atvinnulíf landsmanna þoli fleiri pinkla á sig heldur en búið er að hengja á atvinnulífið, en ég held, að það þoli ekki fleiri pinkla. Og það er mín skoðun, eins og ég hef hér marglýst, að ég tel, að það, sem nú er orðið aðkallandi, sé einmitt að færa niður útgjöld ríkissjóðs talsvert verulega, til þess að þau geti heitið í einhverju samræmi við þær heildartekjur, sem við höfum úr að spila í sambandi við afköst atvinnuveganna í landinu. Ég tel það alveg ástæðulaust af hæstv. ráðh. að klifa hér á því í sífellu, að af yfir 5000 millj. kr. útgjöldum ríkisins sé ekki hægt að færa þau útgjöld nokkuð niður, þegar sérstaklega stendur á í efnahagslífi þjóðarinnar. Ég held, að hæstv. ráðh. hafi gert allt of mikið af því, að halda þessu fram, því að það er enginn vafi á því, að væri góður vilji fyrir hendi, væri hægt að færa þessi útgjöld allverulega niður.

Hæstv. ráðh. lýsti undrun sinni yfir því, að ég skyldi lýsa því hér yfir, að ég væri andvígur þessu frv. eins og það liggur hér fyrir. En ég tel, að ég hafi leitt að því allveruleg rök, hvernig stendur á því, að ég er það. Ég hefði ekki snúizt gegn þessu frv., ef aðstæður í efnahagslífinu hefðu verið með öðrum hætti en þær eru nú, en við höfum orðið fyrir þannig áfalli, og heildargjöldin, sem nú hvíla á atvinnulífinu, eru svo mikil — og ekki hefur tekizt að fá fram, að þeim væri aflétt í mörgum tilfellum — að ég tel ekki fært sem stendur að bæta hér við nýjum álögum. En hitt tek ég svo jafnframt fram, að þegar að því kemur, að ég fyrir mitt leyti tel fært að leggja á nýjar álögur til þess að leysa nauðsynleg vandamál, eins og þessi stóru vegagerðarmál eru, vil ég líka binda það um leið í löggjöfinni, að þær tekjur, sem innheimta á, renni til tiltekinna átaka í þessum efnum, en fari ekki í einhvern almennan rekstrarsjóð, en ég held, að sá sjóður verði að notast við þær tekjur, sem hann hefur, miðað við þær aðstæður, sem við búum við nú.

Ég skal svo ekki lengja þetta frekar, því að málið á eftir að fara í n., og er þá vitanlega næg aðstaða til þess að ræða það frekar síðar, ef ástæða þykir til að öðru leyti.